Segir fjölgun öruggra landa skipta miklu máli fyrir ferðaþjónustuna

Frá og með morg­un­deg­inum þurfa ein­stak­lingar sem dvalið hafa í að minnsta kosti tvær vikur í löndum sem talin eru örugg ekki að fara í skimun eða sótt­kví. Það er fagn­að­ar­efni að mati fram­kvæmda­stjóra Samtaka ferða­þjón­ust­unnar.

Jóhannes Þór gerir ráð fyrir að farþegum frá Suður-Evrópu muni fjölga í ágúst.
Jóhannes Þór gerir ráð fyrir að far­þegum frá Suður-Evrópu muni fjölga í ágúst. Mynd: Bára Huld Beck

Fjölgun landa sem skil­greind eru utan svæðis með mikla smitá­hættu skiptir miklu máli fyrir íslenska ferða­þjón­ustu að mati Jóhann­esar Þórs Skúla­sonar fram­kvæmda­stjóra Samtaka ferða­þjón­ust­unnar. Í sam­tali við Kjarnann segir Jóhannes löndin sem um ræðir vera hluta af okkar kjarna­mörk­uðum og því mik­il­vægt fyrir ferða­þjón­ust­una að þau séu skil­greind örugg.

Á upp­lýs­inga­fundi almanna­varna í gær til­kynnti Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir að frá og með 16. júlí yrði löndum sem talin eru utan svæðis með mikla smitá­hættu fjölgað úr tveimur í sex. Löndin sem bæt­ast á list­ann eru Danmörk, Noregur, Finnland og Þýska­land. Fyrir voru Færeyjar og Grænland á list­anum. Farþegar sem koma frá þessum löndum og hafa verið þar sam­fleytt í 14 daga þurfa ekki að fara í skimun eða sæta sótt­kví við kom­una til lands­ins.

Samþætting efnahags- og sóttvarnalegra þátta

„Þetta er mjög skyn­sam­leg sam­þætt­ing á þessum efna­hags­legu og sótt­varna­legu þáttum, byggð á þeim gögnum sem búið er að safna í skimunum hér heima og frá Evrópsku heil­brigð­is­stofn­un­inni,“ segir Jóhannes um ákvörðun sótt­varna­læknis.

Jóhannes segir sér­stak­lega mik­il­vægt að fá Þýska­land á list­ann. „Þjóð­verjar eru með tölu­vert mikla ferða­með­vit­und gagn­vart alls konar hindr­unum þannig að þeir eru lík­legir, líkt og við höfum séð á und­an­förnum viku, til að slá ferð á frest eða afbóka hana ef það eru miklar hindr­anir í gangi.“

Fleiri farþegar frá Suður-Evrópu í ágúst

Hann telur tíma­setn­ing­una einnig skipta máli: „Við sjáum það síðan að það að hafa gert þetta svona er mjög skyn­sam­legt hjá stjórn­völdum á þessum tíma­punkti því það lá fyrir að það hefði þurft að fara í algjör­lega ótækar aðgerðir gagn­vart því að fella niður flug eða að breyta áður stað­festum lend­ing­ar­tímum sem ein­fald­lega hefði haft í för með sér alls konar vanda­mál,“ segir Jóhannes og vísar þar í nið­ur­fell­ingu fluga sem að óbreyttu hefði þurft að ráð­ast í vegna tak­mark­aðrar skimun­ar­getu á næstu dögum.

Þá gerir Jóhannes ráð fyrir því að flugum eigi eftir að fjölga í ágúst og að sam­setn­ing far­þega breyt­ast. Íbúar Suður-Evrópu fari í auknum mæli í frí í ágúst og þar af leið­andi muni fjöldi far­þega þaðan aukast. Hann von­ast til þess að hægt verði að halda áfram að finna lausnir til að taka á móti auknum fjölda ferða­manna með skyn­sam­legum hætti.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár