Stjórnvöld leggja til umbætur í þágu félagslegs stöðugleika

Stjórn­völd segj­ast til­búin til marg­vís­legra aðgerða til að tryggja félags­legan stöð­ug­leika á vinnu­mark­aði.

Stjórn­völd segj­ast til­búin í marg­vís­legar aðgerðir í þágu félags­legs stöð­ug­leika á almennum vinnu­mark­aði.

Í minn­is­blaði sem birt hefur verið á vef stjórn­valda, kemur fram að stjórn­völd séu meðal ann­ars til­búin til að styrkja sjóði eins og Ábyrgða­sjóð launa, Atvinnu­leys­is­trygg­inga­sjóð, Vinnu­staða­náms- og Fræðslu­sjóð. Þá er einnig tekið fram sér­stak­lega að stjórn­völd séu til­búin til aðgerða í gegnum tekju­skatts­kerfið.

Það verður einkum horft til þess að minnka skatt­byrði og „mögu­legar breyt­ingar á fyr­ir­komu­lagi per­sónu­af­sláttar og sam­spili við bóta­kerfi sem ætlað er að styðja við tekju­lægri hópa (lág­tekjur og lægri milli­tekjur),“ eins og það er orðað í minn­is­blað­inu.

Samtal stjórn­valda við aðila vinnu­mark­að­ar­ins hófst í des­em­ber síð­ast­liðnum, og hafa fundir verið haldnir um ein­stök mál, eins og félags­legar und­ir­stöður, vinnu­mark­aðstengda sjóði og fjár­mögnun þeirra, mennta­mál, efna­hags­mál, kjara­ráð og und­ir­stöður launa­töl­fræði, að því er segir í minn­is­blað­inu.

Meðal þess sem horft er til, er að und­ir­bua upp­töku launa­upp­lýs­inga frá öllum launa­greið­endum að norskri fyr­ir­mynd. Þá er einnig horft til þess að útvíkka hlut­verk þjóð­hags­ráðs­ins til að tryggja sam­hengi og jafn­vægi efna­hags­legs og félags­legs stöð­ug­leika í umræðu um stjórn opin­berra fjár­mála, pen­inga­stefnu og kjara­mála.

Í minn­is­blað­inu er fjallað um þau fjögur atriði sem stjórn­völd eru til­búin að koma með að borð­inu, til að tryggja félags­legan stöð­ug­leika og meiri ró á almennum vinnu­mark­aði.

Þau fara orð­rétt, eins og þau koma fyrir í minn­is­blað­inu, hér á eftir.

1. Ábyrgða­sjóður launa Stjórn­völd eru reiðu­búin til að hækka hámarks­fjár­hæð mán­að­ar­legra greiðslna úr Ábyrgða­sjóði launa án þess að sam­tímis sé hreyft við því gjaldi sem greitt er til sjóðs­ins. Hámarks­greiðsla er nú 385 þús. kr. á mán­uði vegna launa­missis í allt að 3 mán­uði, auk trygg­ingar á greiðslu orlofs allt að 617 þús. kr. Hámarks­greiðsla á mán­uði verður 633 þús. kr. og gildir frá 1. júlí 2018.

2. Atvinnu­leys­is­trygg­ingar Atvinnu­leys­is­bætur verða hækk­aðar og stofnað verður til sam­ráðs milli stjórn­valda og aðila vinnu­mark­að­ar­ins um skil­grein­ingu á jafn­að­ar­gjaldi í Atvinnu­leys­is­trygg­inga­sjóð þar sem horft er til sjálf­bærni sjóðs­ins til lengri tíma litið og sveiflu­jöfn­un­ar­hlut­verks hans í hag­stjórn­ar­legu til­liti. Ákvörðun um breyt­ingar á fjár­hæðum atvinnu­leys­is­trygg­inga felur í sér að bætur hækki og verði 90% af dag­vinnu­tekju­trygg­ingu og tekur breyt­ingin gildi frá 1. maí nk.. Sér­stakur starfs­hópur, skip­aður full­trúum fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neytis, vel­ferð­ar­ráðu­neytis og full­trúum aðila vinnu­mark­að­ar­ins, fær það hlut­verk að leggja mat á stöðu Atvinnu­leys­is­trygg­inga­sjóðs og gera til­lögur um þau hlut­lægu við­mið sem lögð verði til grund­vallar ákvörðun um atvinnu­leys­is­trygg­inga­gjald til lengri tíma og yfir hag­sveifl­una. Sjóð­ur­inn gegnir mik­il­vægu hlut­verki til efna­hags­legrar sveiflu­jöfn­unar. Í tengslum við þessa vinnu verði hugað að mögu­legri stytt­ingu bóta­tíma­bils­ins í 24 mán­uði þannig að það verði sam­bæri­legt við það sem ger­ist ann­ars staðar á Norð­ur­lönd­unum. Starfs­hóp­ur­inn skal skila af sér í haust.

3. Tekju­skatts­kerfið Hafin verður end­ur­skoðun á tekju­skatts­kerf­inu með áherslu á lækkun skatt­byrði og mögu­legar breyt­ingar á fyr­ir­komu­lagi per­sónu­af­sláttar og sam­spili við bóta­kerfi sem ætlað er að styðja við tekju­lægri hópa (lág­tekjur og lægri milli­tekjur). Meðal þess sem skoðað verður er að sett verði á fót heild­stætt kerfi er taki jafnt til stuðn­ings hins opin­bera við barna­fjöl­skyldur og stuðn­ings vegna hús­næð­is­kostn­aðar, hvort heldur er fyrir íbúð­ar­eig­endur eða leigj­endur. Þessi vinna verður undir for­ystu fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neytis í sam­starfi við sam­tök laun­þega í því skyni að sem breið­ust sam­staða geti náðst um áherslur og end­an­legar breyt­ingar. Ætlunin er að ljúka þess­ari vinnu á haust­mán­uðum 2018 áður en fjár­lög árs­ins 2019 verða afgreidd. Stjórn­völd skuld­binda sig til sam­tals um skatt­lagn­ingu greiðslna úr sjúkra­sjóðum. Kannaðir verði mögu­leikar á því að tryggja skatt­leysi slíkra greiðslna til laun­þega vegna heil­brigð­is­þjón­ustu, svo sem sál­fræði­þjón­ustu og tann­lækn­inga, án nei­kvæðra áhrifa á skatt­fram­kvæmd.

4. Fræðslu­sjóður og Vinnu­staða­náms­sjóður Gerð verður úttekt á stöðu Fræðslu­sjóðs og Vinnu­staða­náms­sjóðs með til­liti til skil­virkni og árang­urs. Samstaða er um að tryggja verði námsúr­ræði og tæki­færi fyrir þá sem litla menntun hafa á vinnu­mark­aði og að sér­stak­lega þurfi að tryggja að nám þeirra sem stunda starfs- eða verk­nám á vinnu­stað sé í sam­ræmi við skil­greind náms- og færni­mark­mið. Ef sýnt er að auk­inna fjár­muna sé þörf til að tryggja þessi mark­mið munu stjórn­völd bregð­ast við því. Þessari vinnu mun ljúka á haust­mán­uðum 2018 áður en fjár­lög árs­ins 2019 verða afgreidd. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár