Kosningaspá sýnir fylgið enn falla af Pírötum

Helgi Hrafn Gunnarsson, þingmaður Pírata, í þingsal.
Helgi Hrafn Gunn­ars­son, þing­maður Pírata, í þing­sal. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Fylgi Pírata heldur áfram að minnka sam­kvæmt nýj­ustu kosn­inga­spá Baldurs Héð­ins­sonar og Kjarnans sem unnin var í morgun úr fyr­ir­liggj­andi könn­unum sem gerðar hafa verið á fylgi stjórn­mála­flokka. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn er nú með mest fylgi sam­kvæmt kosn­inga­spánni en tapar þó fylgi síðan spáin var gerð síð­ast.

Kosn­inga­spá Kjarn­ans og Bald­urs Héð­ins­sonar er nú gerð í annað sinn, fyrir Alþing­is­kosn­ingar sem boð­aðar hafa verið í haust. Baldur hefur útbúið spálíkan sem vigtar kann­anir sem gerðar eru á fylgi stjórn­mála­flokka eftir áreið­an­leika. Sama líkan var notað fyrir sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ing­arnar árið 2014 fyrir fylgi fram­boða í Reykja­vík og nið­ur­staðan birt á vef Kjarn­ans og á vefn­um kosn­inga­spá.is. Í nýj­ustu kosn­inga­spánni eru nýj­ustu kann­an­irnar vegn­ar: Skoðn­ana­könnun Félags­vís­inda­stof­unar HÍ fyrir Morg­un­blaðið 17. maí, skoð­ana­kann­anir Frétta­blaðs­ins 9. maí og 2. til 3. maí, Þjóð­ar­púls Gallup 14. til 28. apríl og skoð­ana­könnun MMR 22. til 26. apr­íl.

Í nýj­ustu kosn­inga­spánni mæl­ast Píratar með 28,1 pró­sent fylgi, miðað við 29,3 pró­sent í síð­ustu kosn­inga­spá. Sjálf­stæð­is­flokkur minnkar um hálft pró­sentu­stig og er með 28,5 pró­sent fylgi.

Vinstri græn bæta við sig örlitlu fylgi og mælist nú með 17,2 pró­sent fylgi. Framsókn og Sam­fylk­ingin eru enn með minna en 10 pró­sent. Framsókn er með 9 pró­sent sam­kvæmt kosn­inga­spánni og Sam­fylk­ingin 8,5 pró­sent. Björt fram­tíð er enn með um fjögur pró­sent, og skammt undan er Viðreisn með 3,2 pró­sent. Ætla má að fram­boð sem hljóta minna en fimm pró­sent fylgi á lands­vísu nái ekki kjöri til Alþingis.

Tvö ný fram­boð mæl­ast í nýj­ustu kosn­inga­spánni. Það eru Dögun og Alþýðu­fylk­ingin sem bæði mæl­ast með undir eitt pró­sent fylgi. Önnur fram­boð mæl­ast varla.

Hvað er kosningaspáin?

Kosn­inga­spálíkan Bald­urs Héð­ins­sonar miðar að því að setja upp­lýs­ing­arnar sem skoð­ana­kann­anir veita í sam­hengi. Fyr­ir­liggj­andi skoð­ana­kann­anir eru teknar saman og þeim gefið vægi til þess að spá fyrir um úrslit kosn­inga. Kjarn­inn birti Kosn­inga­spá Bald­urs fyrir sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ing­arnar og reynd­ist sú til­raun vel. Á vefnum kosn­inga­spá.is má lesa nið­ur­stöður þeirrar spár og hvernig vægi kann­ana var í takt við frá­vik kann­ana miðað við kosn­inga­úr­slit­in.

Áreið­an­leiki könn­un­ar­að­ila er reikn­aður út frá sögu­legum skoð­ana­könn­unum og kosn­inga­úr­slit­um. Einnig hefur það vægi hversu langt er síðan könn­unin var fram­kvæmd og svo hversu margir svara í könn­un­un­um.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2016

Fréttirkosningar2016

Ekki ein­hugur um ráð­herra­val innan Sjálf­stæð­is­flokks­ins

Ein­hverjir þing­menn Sjálf­stæð­is­flokks­ins studdu ekki til­lögu Bjarna Bene­dikts­sonar, for­manns flokks­ins, um ráð­herra­skipan í nýrri rík­is­stjórn. Birgir Ármanns­son, sem tók við sem þing­flokks­for­maður af Guðlaugi Þór Þórð­ar­syni í gær, segir að til­laga Bjarna hafi þó verið sam­þykkt með afger­andi hætti. Þetta kemur fram í Morg­un­blað­inu. Þar er rætt við Harald Bene­dikts­son, odd­vita Sjálf­stæð­is­manna í Norð­vest­ur­kjör­dæmi. Hann seg­ist sjálfur sáttur við að...
Fréttirkosningar2016

Stjórn­ar­sátt­máli: Evr­ópu­mál fara til þings­ins undir lok kjör­tíma­bils

Í drögum að stjórn­ar­sátt­mála rík­iss­stjórnar Sjálf­stæð­is­flokks, Við­reisnar og Bjartrar fram­tíðar kemur fram að hún muni ekki leggja fram til­lögu á Alþingi varð­andi umsókn Íslands um aðild að Evr­ópu­sam­band­inu á þessu kjör­tíma­bili. Þar segir hins vegar að þing­menn stjórn­ar­meiri­hlut­ans geti stutt þing­mál varð­andi umsókn­ar­ferli að Evr­ópu­sam­band­inu komi slíkt mál fram undir lok kjör­tíma­bils­ins. Frá þessu er greint í Morg­un­blað­inu. Þetta er...
Fréttirkosningar2016

Þingmenn innan Sjálf­stæð­is­flokks efast um sam­starf við miðju­flokka

Fullyrt er í Morg­un­blað­inu í dag að hluti þing­manna Sjálf­stæð­is­flokks efist um ágæti þess að mynda rík­is­stjórn með Viðreisn og Bjartri fram­tíð. Þeir meti það hins vegar sem svo að Bjarni Bene­dikts­son, for­maður flokks­ins, hafi óskorað umboð til þess að mynda slíka rík­is­stjórn. Form­legar stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræður flokk­anna þriggja hafa staðið yfir alla þessa viku eftir að Bjarni fékk stjórn­ar­mynd­un­ar­um­boð frá for­seta...

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár