„Samningar eiga að vera á kostnað vinnuveitenda en ekki ríkisins“

Fjár­mála­ráð­herra fagnar því að sjó­menn og útgerð­ar­menn hafi tek­ist að gera kjara­samn­ing án aðkomu rík­is­ins.

Benedikt Jóhannesson, fjármálaráðherra.
Benedikt Jóhann­es­son, fjár­mála­ráð­herra. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Benedikt Jóhann­es­son fjár­mála­ráð­herra óskar sjó­mönnum, útgerð­ar­mönnum og sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra til ham­ingju með nýja kjara­samn­inga í milli sjó­manna og útgerð­ar­manna. Samn­ing­arnir voru und­ir­rit­aðir í húsa­kynnum rík­is­sátta­semj­ara í nótt eftir um það bil tveggja mán­aða langt verk­fall.

Verk­fall­inu hefur hins vegar ekki enn verið aflýst því for­ystu­menn Sjó­manna­fé­lags Íslands vilja að félags­menn fái tæki­færi til þess að kynna sér og greiða atkvæði um samn­ing­inn áður en haldið verður aftur til veiða.

„Það eru frá­bærar fréttir að samn­ingar hafi tek­ist,“ skrifar Benedikt á Facebook-síðu sína í morgun. „[E]kki síst að ríkið hafi ekki þurft að koma að samn­ing­unum. Þor­gerður Katrín stóð sig eins og hetja, en það er eng­inn vafi á því að hennar afstaða markar tíma­mót í deilum á vinnu­mark­aði. Samn­ingar eiga að vera á kostnað vinnu­veit­enda en ekki rík­is­ins. Til ham­ingju sjó­menn, útgerð­ar­menn og Þor­gerður!“

Mikill þrýst­ingur var á stjórn­völd frá bæði sjó­mönnum og útgerð­ar­mönnum um að veita sjó­mönnum skatta­af­slátt á dag­pen­inga. Ráðamenn höfðu hins vegar ítrekað hafnað því að slíkt væri mögu­leiki. Þor­gerður Katrín lagði til mála­miðl­un­ar­til­lögu við báða aðila kjara­deil­unnar í gær­kvöldi, en hún gekk of skammt að mati deilu­að­ila. Þess vegna var þrýst­ing­ur­inn enn meiri á að samn­ingar myndu takast í nótt, enda var það til­finn­ing manna að ann­ars myndi ríkið setja lög á verk­fallið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár