Flestir þingmenn VG sýna Katrínu skilning

Kjarninn spurði alla þing­menn VG álits um mögu­legt for­seta­fram­boð for­manns­ins, Katrínar Jak­obs­dóttur. Flestir flokks­menn segj­ast sýna henni fullan skiln­ing en eft­ir­sjá verði af henni af Alþingi ef hún ákveði að taka slag­inn.

Katrín Jakobsdóttir ætlar að nýta næstu daga til að ákveða hvort hún bjóði sig fram til forseta.
Katrín Jak­obs­dóttir ætlar að nýta næstu daga til að ákveða hvort hún bjóði sig fram til for­seta. Mynd: Birgir Þór

Katrín Jak­obs­dóttir hefur verið orðuð við for­seta­emb­ættið annað veifið und­an­farið ár. Hún hefur ítrekað mælst sem lang­vin­sæl­asti stjórn­mála­mað­ur­inn á Alþingi, með mest traust og mest per­sónu­fylgi. Flokk­ur­inn hennar, Vinstri græn, virð­ist þó ekki ná að nýta sér vin­sældir Katrínar til að afla sér fylgis og hefur hald­ist með í kring um tíu pró­senta fylgi í skoð­ana­könn­unum frá síð­ustu kosn­ingum.

Katrín hefur ekki viljað svara hvort hún ætli að bjóða sig fram til for­seta Íslands. Stundin birti for­síðu­við­tal við hana í gær þar sem fram kom að hún væri að hugsa málið alvar­lega. Þá var líka birt skoð­ana­könnun blaðs­ins sem leiddi í ljós að lang­flestir virð­ist treysta henni til að sinna emb­ætt­inu.

For­mað­ur­inn lét sam­flokks­menn sína vita á mið­viku­dag af skoð­ana­könnun Stund­ar­innar. Kjarninn sló á þráð­inn til þing­manna VG og vara­for­manns­ins og spurði þau álits um mögu­legt for­seta­fram­boð for­manns­ins.

Spurt var: Hvaða skoðun hefur þú á mögu­legu for­seta­fram­boði Katrínar Jak­obs­dóttur?

Bjarkey Olsen Gunn­ars­dóttir: „Þetta er auð­vitað alfarið hennar ákvörðun. En það verður vissu­lega mikil eft­ir­sjá af henni ef hún ákveður að fara út póli­tík, ver­andi sá stjórn­mála­maður sem hún er og hvað hún getur gert. En það kemur alltaf maður í manns stað og Katrín á að gera nákvæm­lega það sem hana langar til að gera.”

Björn Valur Gíslason (vara­for­maður og utan þings): „Ég held að fólk af hennar kali­beri gæti end­ur­heimt for­seta­emb­ættið eftir það sem undan er gengið. Katrín getur gert hvað sem hún vill. Hvað sem hún gerir og hvað sem hún tekur sér fyrir hendur mun fara henni vel. Hún nýtur míns stuðn­ings í hverju sem hún tekur sér fyrir hendur. En auð­vitað verður mikil eft­ir­sjá af henni af Alþingi ef hún tekur þessa ákvörðun.” 

Lilja Rafney Magn­ús­dóttir: „Ef hún ákveður að gera þetta mun ég sakna hennar gíf­ur­lega, en ég mundi virða val hennar. Hún á fyrst og fremst að svara þessu sjálf frá innstu hjartarótum og taka ákvörðun út frá því - ekki vænt­an­legum hags­munum flokks­ins. Hún á að vera frjáls en ekki skuld­bundin flokknum.”

Stein­grímur J. Sig­fús­son: „Ég tjái mig ekk­ert um það fyrr en ég hef heyrt í Katrínu eða nið­ur­staða hennar liggur fyrir. Ég ætla ekk­ert að trufla hana í því sem hún er að hug­leiða þessa dag­ana.”

Steinunn Þóra Árna­dóttir: „Ég styð hana í því sem hún gerir. Auðvitað eft­ir­sjá af henni af þingi, hún er svo öfl­ugur stjórn­mála­maður. En hún yrði líka rosa­lega flottur for­seti.”

Svandís Svav­ars­dóttir (þing­flokks­for­maður): „Hún á að ákveða þetta alveg sjálf og mér finnst ekki tíma­bært að kommenta á þetta.”

Ögmundur Jónasson: „Ekkert komment.”

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

forsetaframboð

Aðsentforsetaframboð

Halla Tómasdóttir

End­ur­skil­greinum árangur í við­skiptum

Ég hef lengi verið á þeirri skoðun að til­gangur fyr­ir­tækja sé ekki ein­ungis að skapa arð fyrir hlut­hafa og hef fylgst áhuga­söm með fyr­ir­tækjum og leið­togum sem eru sama sinnis. Síðustu dagar hafa styrkt mig enn frekar í þeirri trú að nauð­syn­legt sé að end­ur­skil­greina árangur í við­skiptum. Á náms­árum mínum las ég bók­ina Byggt til að end­ast (Built to...

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár