Ríkissáttasemjari íhugar forsetaframboð

Bryndís Hlöðvers­dóttir rík­is­sátta­semj­ari íhugar nú alvar­lega að bjóða sig fram til for­seta Íslands.

Bryndís Hlöðversdóttir tók við starfi ríkissáttasemjara í maí 2015.
Bryndís Hlöðvers­dóttir tók við starfi rík­is­sátta­semj­ara í maí 2015.

Bryndís Hlöðvers­dóttir rík­is­sátta­semj­ari íhugar nú alvar­lega að bjóða sig fram til for­seta Íslands. Hún seg­ist hafa fengið hvatn­ingu til að bjóða sig fram und­an­farna daga og vikur. 

„Ég við­ur­kenni að það hefur hreyft hressi­lega við mér og er að hugsa málið af fullri alvöru,” segir Bryndís í sam­tali við Kjarnann. „En þó að maður meti áskor­anir mik­ils, og ég er mjög stolt af því að fólk sjái mig í þessu hlut­verki, þá er þetta mjög stór og per­sónu­leg ákvörðun.”

Bryndís seg­ist ætla að taka sér ein­hverja daga til að hugsa málið og mun til­kynna af eða á í kring um eða eftir páska.

Spurð hvort ákvörðun Katrínar Jak­obs­dóttur, for­manns Vinstri grænna, um að bjóða sig ekki fram hafi haft áhrif, segir Bryndís að vissu­lega hafi allt slíkt áhrif. Það hafi þó verið um síð­ustu helgi þegar hún ákvað að hugsa málið af alvöru. Katrín sendi frá sér til­kynn­ingu í gær­morgun um að hún hugð­ist ekki bjóða sig fram.

„Þetta hefur ekki haft langan aðdrag­anda. Ég ákvað á sunnu­dag­inn, eftir að hafa átt sam­töl við fólk um nokk­urt skeið, að gefa þessu fullan gaum. En á end­anum verður ákvörð­unin tekin á mínum eigin for­sendum en ekki ann­arra fram­bjóð­enda.”

Nýskipuð ríkissáttasemjari

Eygló Harð­ar­dóttir, félags- og hús­næð­is­mála­ráð­herra, skip­aði Bryndísi í emb­ætti rík­is­sátta­semj­ara í lok maí í fyrra. Hún hefur því sinnt því starfi í átta og hálfan mánuð. Ráðn­ingin var til fimm ára.

„Ég hafði ekk­ert hugsað mér til hreyf­ings,” segir Bryndís. „En þetta er líka mjög spenn­andi tæki­færi sem mér finnst vert að skoða það af fullri alvöru.”

Bryndís var ekki hluti af val­mögu­leikum í skoð­ana­könnun Frétta­blaðs­ins um hvern fólk vill sjá í emb­ætti for­seta Íslands sem birt var í morgun. Þar mælist Vigfús Bjarni Alberts­son sjúkra­hús­prestur með mestan stuðn­ing utan Katrínar og Ólafs Ragnars Gríms­sonar, sem bæði hafa til­kynnt að þau ætli ekki fram.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

forsetaframboð

Aðsentforsetaframboð

Halla Tómasdóttir

End­ur­skil­greinum árangur í við­skiptum

Ég hef lengi verið á þeirri skoðun að til­gangur fyr­ir­tækja sé ekki ein­ungis að skapa arð fyrir hlut­hafa og hef fylgst áhuga­söm með fyr­ir­tækjum og leið­togum sem eru sama sinnis. Síðustu dagar hafa styrkt mig enn frekar í þeirri trú að nauð­syn­legt sé að end­ur­skil­greina árangur í við­skiptum. Á náms­árum mínum las ég bók­ina Byggt til að end­ast (Built to...

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár