Þingmenn halda áfram, fjölmiðlastjórnendur funduðu með Sigmundi og bréf til forseta

Vikan hefur verið við­burða­rík á Kjarn­anum, líkt og í sam­fé­lag­inu. Fjöl­margar frétta­skýr­ingar, fréttir, hlað­vörp og pistlar hafa birst í vik­unni og hér verður farið yfir brot af því besta.

Kjarninn kann­aði afstöðu allra sitj­andi þing­manna og ráð­herra til næsta kjör­tíma­bils og komst að því að meiri­hluti sitj­andi þing­manna ætlar sér að bjóða fram krafta sína á ný. Nokkrir eru óákveðnir, aðrir neita að svara og örfáir eru búnir að ákveða að hætta.

Kjarninn birti líka fyrstu frétta­skýr­ingar sínar upp úr Panama­skjöl­unum, í sam­starfi við Reykja­vík Media. Fyrstu skýr­ing­arnar fjalla um Jón Ásgeir Jóhann­es­son og Ingi­björgu Pálma­dóttur, og félög sem notuð hafa verið til að fjár­magna ýmis verk­efni þeirra. Hér má skoða alla umfjöllun Kjarnans úr Panama­skjöl­unum.

Forsetinn veldur usla

Ólafur Ragnar Grímsson, for­seti Íslands, hélt blaða­manna­fund í byrjun viku og til­kynnti að í sjötta skipti myndi hann bjóða fram krafta sína í for­seta­emb­ættið. Sigurður Ingi Jóhanns­son, for­sæt­is­ráð­herra, og Ásmundur Einar Daðason, þing­flokks­for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, fögn­uðu báðir ákvörð­un­inni.

Aðrir voru minna hrifnir, meðal ann­ars rit­höf­und­ur­inn Jón Kalmann Stef­áns­son, sem skrif­aði bréf til for­set­ans þar sem hann sagði meðal ann­ars: „Þeir sem kjósa þig eru þar með að kjósa hið gamla Ísland, þeir eru að kjósa sam­fé­lag Dav­íðs Odds­son­ar, Sig­mundar Dav­íðs og Ólafs Ragn­ars. Þeir eru ein­fald­lega að kjósa gegn fram­tíð­inni.“

Þrír fram­bjóð­endur hafa dregið fram­boð sín til baka eftir ákvörðun Ólafs Ragnars. Farið var yfir það í frétta­skýr­ingu hvernig til­kynn­ing hans snéri kosn­inga­bar­átt­unni á haus.

Brugðist við umboðsmanni

Forsætisráðuneytið hefur brugðist við ábendingum umboðsmanns Alþingis í kjölfar Lekamálsins. Unnið er að nýjum siðareglum í samráði við öll ráðuneyti og búið er að uppfæra reglur um samskipti og erindisbréf fyrir aðstoðarmenn. Þetta var tilkynnt í vikunni, en rúmt ár er liðið frá því að umboðsmaður Alþingis beindi tilmælunum til ráðuneytisins.

Eft­ir­lits­stofnun EFTA, ESA, úrskurð­aði í vik­unni að íslensk stjórn­völd þurfi að setja lög sem krefj­ast þess að alltaf sé greitt mark­aðs­verð þegar orku­fyr­ir­tækjum eru veitt rétt­indi til að nýta nátt­úru­auð­lindir í almanna­eigu. Farið var ítar­lega yfir þetta mál í þess­ari frétt. ESA kveður einnig á um að íslensk stjórn­völd verði að end­ur­skoða alla gild­andi samn­inga um nýt­ingu nátt­úru­auð­linda til að tryggja að orku­fyr­ir­tæki greiði mark­aðs­verð það sem eftir lifir af gild­is­tíma samn­ing­anna.

Og greint var frá því í vik­unni að þegar Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son var for­sæt­is­ráð­herra kall­aði hann fjöl­miðla­stjórn­endur á sinn fund. Hann hitti hitti þáver­andi útvarps­stjóra RÚV, frétta­stjóra 365 og rit­stjóra 365. Sigurjón Magnús Egilsson greindi frá því að fundur hans með for­sæt­is­ráð­herr­anum hafi snú­ist um fréttaum­fjöllun hans. Greint var ítar­lega frá þessu máli í Kjarn­anum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Panamaskjölin

Skýring

Hvernig pen­inga­slóð stjórn­enda Kaup­þings og maka þeirra liggur til Tortólu

Notkun eig­in­kvenna fyrr­ver­andi stjórn­enda Kaup­þings­banka á félögum á aflands­svæð­inu Kypur er enn eitt dæmið um það að þessir aðilar hafi not­ast við slík félög í við­skiptum sínum eftir efna­hags­hrunið 2008. Hreiðar Már Sig­urðs­son, fyrr­ver­andi for­stjóri Kaup­þings, og eig­in­konu hans tengd­ust til dæmis félögum í Panama­skjöl­unum og árið 2019 var sagt frá Tortóla­fé­lagi sem notað var til að halda utan um eignir á Íslandi sem tengd­ust þeim.

8 mín. lestur

Úttekt

Sæmarks­stjóri ákærður ásamt lög­manni fyrir stór­felld skatt­svik og pen­inga­þvætti

Sigurður Gísli Björns­son, sem í fjölda ára var einn umsvifa­mesti fisk­út­flytj­andi lands­ins, er sak­aður um að hafa stungið rúm­lega millj­arði króna undan sköttum og fært í gegnum falska reiknn­inga og aflands­fé­lög í eigin vasa. Hann er ákærður fyrir stó­felld brot á skatta­lögum, bók­halds­lögum og pen­inga­þvætti. Íslenskur lög­maður sem einnig er ákærður seg­ist sak­laus.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár