Enn 765 manns í trúfélagi bræðra sem ákærðir eru fyrir fjársvik og peningaþvætti

Þrátt fyrir að for­svars­menn trú­fé­lags­ins Zuism hafi verið ákærðir fyrir fjár­svik og pen­inga­þvætti eru enn 765 manns skráð í félagið, sam­kvæmt nýjum tölum frá Þjóðskrá. Í Þjóð­kirkj­unni eru nú slétt 62 pró­sent lands­manna.

Bræðurnir Einar og Ágúst Arnar Ágústssynir hafa verið í forsvari fyrir trúfélagið Zuism.
Bræð­urnir Einar og Ágúst Arnar Ágústs­synir hafa verið í for­svari fyrir trú­fé­lagið Zuism. Mynd: Skjáskot úr Kastljósi RÚV

Þrátt fyrir að for­svars­menn trú­fé­lags­ins Zuism sæti ákæru fyrir að svíkja sókn­ar­gjöld úr rík­is­sjóði og nota þau í eigin þágu um nokk­urra ára skeið eru enn 765 manns í trú­fé­lag­inu, sem er þó það trú­fé­lag sem minnkað hefur mest frá því í des­em­ber 2020, sam­kvæmt nýj­ustu tölum frá Þjóðskrá.

Zúistar eru nú 151 færri en þeir voru þá. Trú­fé­lagið, ef slíkt má kalla, er þó enn það tíunda stærsta hér á landi, þegar horft er til fjölda með­lima. Þegar með­limir í Zuism voru flestir fór fjöldi þeirra yfir þrjú þús­und. Það var í upp­hafi árs 2016, en skömmu áður hafði hópur fólks tekið yfir trú­fé­lagið, sem núver­andi for­svars­menn stofn­uðu árið 2013.

Hópurinn lof­aði með­limum Zuism því að sókn­ar­gjöld þeirra yrðu end­ur­greidd, í gjörn­ingi sem var ádeila á núver­andi trú­fé­lags­kerfi og inn­heimtu rík­is­ins á sókn­ar­gjöldum. Þessi hópur, sem kall­aði sig öld­unga­ráð Zúista, missti þó trú­fé­lagið úr sínum höndum og aftur til bræðr­anna sem stofn­uðu það – Einars og Ágústs Arnars Ágústs­sona, sem eru þekktir sem Kickstarter-bræður.[links]

Zuism fékk 84,7 milljónir frá ríkinu

Tug­millj­ónir streymdu síðan í sjóði félags­ins úr rík­is­sjóði næstu árin vegna þess fjölda félaga sem enn voru í trú­fé­lag­inu. Rík­is­sjóður greiddi 36 sinnum inn á reikn­ings félags­ins í Arion banka frá októ­ber 2017 til jan­úar 2019 vegna sókn­ar­gjalda áranna 2016 til 2018 – alls 84,7 millj­ónir króna.

Í ákæru hér­aðs­sak­sókn­ara gagn­vart bræðr­unum, trú­fé­lag­inu og tveimur öðrum félögum í eigu bræðr­anna, sem þing­fest var í des­em­ber síð­ast­liðnum, segir að þeir hafi blekkt íslenska ríkið til þess að fá fjár­muni með því að þykj­ast reka trú­ar­lega starf­semi, en engin trú­ar­iðkun hafi farið fram í félag­inu.

[adspot]

Þeir eru einnig ákærðir fyrir pen­inga­þvætti, fyrir að hafa flutt og nýtt pen­ing­ana sem Zuism fékk úr rík­is­sjóði, meðal ann­ars til í að taka þátt í hluta­fjár­út­boðum Heima­valla og Arion banka og í ýmsa dag­lega neyslu eftir að fé hafði verið flutt inn á banka­reikn­inga bræðr­anna eða félaga í þeirra eigu.

Bræð­urnir reyndu að fá ákæru hér­aðs­sak­sókn­ara vísað frá, en þeirri kröfu var hafnað í Hér­aðs­dómi Reykja­víkur fyrir rúmum mán­uði síðan.

Slétt 62 prósent í Þjóðkirkjunni

Samkvæmt nýj­ustu tölum Þjóð­skrár, um skrán­ingu í trú­fé­lög 1. maí, fækk­aði um 88 manns í Þjóð­kirkj­unni frá því 1. des­em­ber 2020. Nú standa slétt 62 pró­sent lands­manna innan Þjóð­kirkj­unnar, alls 229.629 ein­stak­lingar. Hlutfall lands­manna í kirkj­unni lækkar því um 0,3 pró­sentu­stig á síð­ustu 5 mán­uðum.

15,2 pró­sent eru í öðrum trú- og lífs­skoð­un­ar­fé­lögum. Þeirra fjöl­menn­ust eru Kaþólska kirkjan með 14.671 með­limi og Frí­kirkjan í Reykja­vík með 9.996 með­limi. Félögum í Siðmennt og Ása­trú­ar­fé­lag­inu hefur fjölgað mest frá því í byrjun des­em­ber, eða um 143 og 144 með­limi.

Nýtt trú­fé­lag, Islamic Cultural Centre of Iceland (ICCI), var skráð í síð­asta mán­uði, sam­kvæmt til­kynn­ingu Þjóð­skrár. Þar eru nú 26 með­limir.

15,1 pró­sent lands­manna eru með ótil­greinda trú­fé­laga­skrán­ingu og 7,7 pró­sent eru skráð utan trú- og lífs­skoð­un­ar­fé­laga.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

trúmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár