Brutust þráðlaust inn í tölvukerfi bíls og tóku stjórnina

Tveimur hökk­urum hefur tek­ist að bjót­ast þráð­laust inn í tölvu­kerfi Jeep Cherokee-jeppa af árgerð 2014. Þeir hyggj­ast opna kóð­ann sem þeir nota til þess að taka stjórn á tölvu­kerfi bíls­ins í næsta mán­uði. Tugir slíkra bíla eru skráðir á Íslandi.

Hakk­ar­arnir Charlie Miller og Chris Valasek hafa búið til hug­búnað sem getur tekið yfir stjórn­tæki bíls­ins þráð­laust í gegnum inter­netið, gagn­gert til að sýna fram á að þessi örygg­is­galli sé til staðar. Þeir vona að í fram­hald­inu gái bíla­fram­leið­endur betur að tölvu­ör­yggi bíla sinna.

Tækni­tíma­ritið Wired greinir frá þess­ari til­raun Miller og Valasek. Forrit þeirra getur tekið stjórn­ina á hvaða Jeep Cherokee-jeppa af þess­ari sömu árgerð 2014 sem búinn er sams­konar tölvu. Í gegnum for­ritið er hægt að drepa á vél­inni, stjórna blæstri mið­stöðv­ar­innar, hækkað í útvarp­inu, birt mynd­skeið í mæla­borð­inu, stjórnað hrað­anum sem bíll­inn ferð­ast á, skipt um gír og tekið brems­urnar úr sam­bandi. Allt þetta er hægt að gera í far­tölvu hvar sem er í heim­inum.

Komist alvöru þrjótur yfir svip­aða tækni er auð­séð að hægt er að valda tölu­vert meiri skaða með því að brjót­ast inn í bíla en að brjóta rúðu. Í mynd­band­inu hér að neðan má sjá hvernig blaða­maður Wired fær ekk­ert við ráðið þegar hakk­ar­arnir taka stjórn­ina.

„Þegar maður missir trúna á það að bíll­inn fylgi skip­unum þínum, þá breyt­ist hug­myndin þín um hvernig bíll­inn virkar,“ segir Miller í við­tali við Wired. Í næsta mán­uði munu þeir kynna þennan hug­búnað betur á ráð­stefnu um vef­ör­yggi í Las Vegas. Þegar hefur verið ráð­gert að leggja fram frum­varp á Banda­ríkja­þingi um tölvu­ör­yggi í bíla­iðn­aði.

Helstu nýj­ungar í bíla­iðn­aði í heim­inum í dag eru tölvu­kyns og mið­aðar að því að auka þæg­indi far­þega og bíl­stjóra með því að gera hlut­ina sjálf­virk­ari. Nú þegar eru fram­leiddir bílar sem bakka sjálf­krafa í bíla­stæði, sumir bílar finna bíla­stæðin jafn­vel sjálfir. „Frá sjón­ar­hóli hakk­ara þá er þetta mik­ill veik­leiki,“ segir Miller.

Tæknin sem Chrysler, fram­leið­andi Jeep Cherokee-jepp­ana, notar í alla sína inter­nettengdu bíla síðan 2013 heitir Uconnect. Það er í raun tölva sem teng­ist inter­net­inu og tengir snjall­síma til dæmis þráð­laust við bíl­inn. Þessi tækni hefur verið til í fleiri teg­undum bíla síðan 2008. Þeir Miller og Valasek hafa ekki enn prófað að brjót­ast inn í aðrar gerðir bíla en þennan jeppa frá 2014 en telja slíkt mögu­legt.

Ætla að opna nær allan kóðann


Eftir ráð­stefn­una í Las Vegast ætla hakk­ar­arnir tveir að gefa tölvukóð­ann sem býr að baki for­rit­inu sem stjórnar þessum bif­reiðum. Um leið munu allir hafa tólin í hönd­unum til þess að „ræna“ Jeep Cherokee-jeppum frá 2014.

Miller og Valasek ætla hins vegar ekki að gefa kóð­ann sem end­ur­for­ritar tölvu­búnað jepp­ana svo fjar­stýri­for­ritið virki. Þeir hakk­arar sem ætla að ræna bílum yfir inter­netið þurfa því að skrifa sjálfir þann kóða sem tók tví­menn­ing­ana marga mán­uði að skrifa.

Auk þess hafa tví­menn­ing­arnir unnið náið með Chrysler und­an­farna mán­uði og deilt með þeim gögnum sínum. Fyr­ir­tækið gaf þess vegna út hug­bún­að­ar­upp­færslu fyrir þessa bíla í síð­ustu viku sem á að „auka raf­rænt öryggi“ bíl­anna. Wired seg­ist hafa yfir­lýs­ingu frá Chrysler undir höndum þar sem til­teknar eru fleiri teg­undir bíla sem kunna að búa yfir örygg­is­gall­anum.

Þar eru nefndar árgerðir 2013-2014 af Dodge Ram, árgerðir 2013-2014 af Doge Viper, árgerð 2014 Jeep Cherokee, Jeep Grand Cherokee og Dodge Durango. Miller og Valasek segj­ast hafa fundið fleiri teg­undir sem tengdar eru inter­net­inu og hægt er að bjót­ast inn í. Miller seg­ist hafa kannað upp­færsl­una. „Það lítur út eins og árásir okkar virki ekki lengur en ég mundi ekki leggja líf mitt við.“

Samkvæmt upp­lýs­ingum Kjarnans hefur engin meld­ing borist Fíat umboð­inu í Reykja­vík, sem hafa umboð fyrir umrædda bíla, frá fram­leið­and­anum um örygg­is­gall­ann sem Miller og Valasek not­færa sér. Tölvu­kerfi bíl­anna séu alltaf upp­færð með nýj­ustu upp­færslum þegar þeir koma í skoðun, og ber­ast jafn­vel margar upp­færslur á dag.

Fíat umboðið hefur selt Jeep Cherokee-jeppa árgerð 2014 og sam­kvæmt upp­lýs­ingum frá Sam­göngu­stofu skipta slíkir bílar á Íslandi tugum. Erfitt er að festa fingur á það hversu margir eru búnir Uconnect-tölv­unni. Eigendur slíkra bíla eru hvattir til að slá inn auð­kenn­ing­ar­númer bíls­ins hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár