Engin ólögmæt ríkisaðstoð í samningi Landsvirkjunar við Thorsil

ESA hefur sam­þykkt raf­orku­samn­ing Lands­virkj­unar við Thorsil. Mál ESA gegn íslenska rík­inu fyrir EFTA-dóm­stólnum um íviln­un­ar­samn­inga við m.a. Thorsil hefur ekki verið til lykta leitt.

Frá undirritun samningsins 10. maí. Fyrir miðju sitja Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar, og Hákon Björnsson, forstjóri Thorsil. Á myndinni eru einnig Jón Sveinsson, stjórnarformaður Landsvirkjunar, og Eyþór Arnalds, stjórnarmaður í Thorsil.
Frá und­ir­ritun samn­ings­ins 10. maí. Fyrir miðju sitja Hörður Arnarson, for­stjóri Lands­virkj­unar, og Hákon Björns­son, for­stjóri Thorsil. Á mynd­inni eru einnig Jón Sveins­son, stjórn­ar­for­maður Lands­virkj­unar, og Eyþór Arnalds, stjórn­ar­maður í Thorsil. Mynd: Landsvirkjun.

Eft­ir­lits­stofnun EFTA (ESA) hefur kom­ist að nið­ur­stöðu um að samn­ingur Lands­virkj­unar við Thorsil um sölu á raf­orku feli ekki í sér ólög­mæta rík­is­að­stoð. Samn­ing­ur­inn var háður því að hljóta sam­þykki ESA til þess að öðl­ast fulln­að­ar­gildi. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá ESA sem barst fjöl­miðlum í morgun.

Lands­virkjun mun afhenda allt að 55 mega­vött af afli til kís­il­vers Thorsil í Helguvík í Reykja­nesbæ. Samn­ing­ur­inn var sendur eft­ir­lits­stofn­un­inni til stað­fest­ingar á því að hann gengi ekki gegn reglum Evrópska efna­hags­svæð­is­ins um sam­keppni á mark­aði. ESA hefur kom­ist að nið­ur­stöðu um að samn­ing­ur­inn sé gerður á mark­aðs­kjörum „og felur þar af leið­andi ekki í sér rík­is­að­stoð,“ segir í til­kynn­ingu frá ESA.

„Lands­virkjun lagði fram yfir­grips­mikil gögn sem sýna, að mati Eft­ir­lits­stof­un­ar­innar, að samn­ing­ur­inn um kaup á raf­orku er arð­samur og skil­málar hans slíkir að einka­rekið fyr­ir­tæki myndi sam­þykkja hann við sam­bæri­legar aðstæður,“ segir enn fremur í til­kynn­ing­unni. Opinber útgáfa ákvörð­un­ar­innar liggur hins vegar ekki fyrir en verður lögð fram innan eins mán­aðar.

ESA stefndi íslenska rík­inu síð­asta haust vegna þess að íslensk stjórn­völd höfðu ekki orðið við fyr­ir­mælum um að stöðva og end­ur­heimta ólög­mæta rík­is­að­stoð, eins og Kjarninn greindi frá. Það mál hefur enn ekki verið til lykta leitt. Málið sér­ist um íviln­un­ar­samn­inga sem íslenska ríkið gerði við fimm fyr­ir­tæki, þar á meðal Thorsil, auk Becromal, Verne, Íslenska kís­il­fé­lagið og GMR end­ur­vinnsl­una. ESA komst að þeirri nið­ur­stöðu í fyrra að þessir samn­ingar fælu allir í sér rík­is­að­stoð sem gengi gegn EES-samn­ingnum. Samn­ingur Lands­virk­unar og Thorsil teng­ist þessum mála­ferlum ekki.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár