ESA stefnir Íslandi vegna ólögmætrar ríkisaðstoðar

ESA, eft­ir­lits­stofnun EFTA, hefur ákveðið að stefna Íslandi fyrir EFTA-dóm­stól­inn vegna þess að íslensk stjórn­völd hafa ekki sinnt fyr­ir­mælum um að stöðva og end­ur­heimta ólög­mæta rík­is­að­stoð. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá ESA.

Málið snýst um íviln­un­ar­samn­inga sem íslenska ríkið gerði við fimm fyr­ir­tæki: Becromal, Verne, Íslenska kís­il­fé­lagið, Thorsil og GMR end­ur­vinnsl­una. ESA komst að þeirri nið­ur­stöðu í fyrra að þessir samn­ingar fælu allir í sér rík­is­að­stoð sem gengi gegn EES-samn­ingnum. Stjórn­völdum á Íslandi var fyr­ir­skipað að stöðva allar frek­ari greiðslur rík­is­að­stoðar á grund­velli þess­ara fimm samn­inga og sjá til þess að öll sú aðstoð sem veitt hafði verið fram að því yrði end­ur­greidd innan fjög­urra mán­aða. Það var fyrir 9. febr­úar á þessu ári. Þá var íslenskum stjórn­völdum gert að til­kynna eft­ir­lits­stofn­un­inni fyrir 9. des­em­ber í fyrra hver heild­ar­fjár­hæð ólög­mætrar rík­is­að­stoðar hefði verið veitt og til­kynna hvernig ríkið hygð­ist end­ur­heimta þessa fjár­hæð.

„Nærri ári eftir ákvörðun ESA hafa íslensk stjórn­völd enn ekki upp­fyllt neina af þeim þremur kvöðum sem mælt var fyrir um í umræddri ákvörðun," segir ESA í til­kynn­ingu í dag. Af þessum sökum verði að höfða mál gegn Íslandi fyrir EFTA-dóm­stólnum. „Tafir á end­ur­heimtu ólög­mætrar rík­is­að­stoðar við­halda þeirri sam­keppn­is­röskun sem aðstoðin hefur í för með sér. Það er óvið­un­andi að nærri ári eftir að end­an­leg ákvörðun stofn­un­ar­innar lá fyrir hefur Ísland enn ekki stöðvað eða end­ur­heimt ólög­mæta rík­is­að­stoð,“ segir Sven Erik Svedman, for­seti ESA, í til­kynn­ing­unni.

ESA sam­þykkti styrkja­kerfi til nýfjár­fest­inga sem íslensk stjórn­völd höfðu sam­þykkt til að efla atvinnu­þróun á lands­byggð­inni árið 2010. Kerfið byggð­ist á lögum um íviln­anir vegna nýfjár­fest­inga, en lögin heim­il­uðu rík­is­styrki einkum í formi skattaí­viln­ana. Íslensk stjórn­völd skrif­uðu undir samn­inga við þessi fimm fyr­ir­tæki á grund­velli þessa á árunum 2010 til 2012. Lögin féllu svo úr gildi árið 2013.

Árið 2013 ákvað ESA að skoða form­lega hvort rík­is­að­stoðin sem Ísland veitti þessum fyr­ir­tækjum hefði verið í sam­ræmi við EES-samn­ing­inn, enda höfðu verið gerðar breyt­ingar á styrkja­kerf­inu, og komst að því í októ­ber í fyrra að svo væru ekki.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár