Rauði krossinn hefur neyðarsöfnun fyrir Beirút

Rauði kross­inn á Íslandi hefur hafið neyð­ar­söfnun vegna spreng­ing­anna sem urðu í Beirút höf­uð­borg Líbanons í gær. Forseti Íslands sendi for­seta Líbanons sam­úð­ar­kveðju sína og þjóð­ar­innar í dag.

Frá Beirút, þar sem gríðarlega öflug sprenging olli manntjóni og gríðarlegum skemmdum síðdegis í gær.
Frá Beirút, þar sem gríð­ar­lega öflug spreng­ing olli mann­tjóni og gríð­ar­legum skemmdum síð­degis í gær. Mynd: EPA

Rauði kross­inn á Íslandi hefur hafið neyð­ar­söfnun vegna spreng­ing­anna sem urðu í Beirút höf­uð­borg Líbanon í gær og tekur þannig þátt í átaki Rauða kross hreyf­ing­ar­innar á heims­vísu.

Staðfest er að 135 manns séu látin og yfir fimm þús­und særð en ótt­ast er að tölur um fjölda lát­inna og særðra muni hækka, því enn er margra saknað. Spítalar í borg­inni urðu einnig sumir mjög illa úti og ljóst að mikið end­ur­bygg­ing­ar­starf er framundan í borg­inni.[links]

Rauði kross­inn segir á vef­síðu sinni að ljóst sé að þörfin fyrir neyð­ar­að­stoð sé gríð­ar­leg, en yfir­völd í Líbanon hafa gefið það út að heim­ili yfir 300.000 manns séu óíbúð­ar­hæf eftir spreng­ing­arnar.

„Þá ber að hafa í huga að Líbanon er það ríki sem hýsir hæsta hlut­fall flótta­fólks í heimi miðað við höfða­tölu. Um fjórð­ungur íbúa er flótta­fólk og þar af er rúm 1,5 milljón manns frá Sýrlandi. Þessar ham­farir koma að auki ofan í COVID-19 far­ald­ur­inn og ótt­ast er að sú ringul­reið sem skap­ast hefur í kjöl­far spreng­ing­ar­innar kunni að valda aukn­ingu í smitum, m.a. vegna þess hve illa gengur að sinna per­sónu­legu hrein­læti og við­hafa fjar­lægð­ar­tak­mörk,“ segir á vef Rauða kross­ins.

[adspot]

Hægt er að styrkja hjálp­ar­starf Rauða kross­ins um 2.900 kr. með því að senda SMS-ið HJALP í núm­erið 1900, en einnig má leggja inn á reikn­ing 0342-26-12, kt. 530269-2649.

Forseti Íslands sendi Líbönum kveðju

Guðni Th. Jóhann­es­son for­seti Íslands sendi Michael Aoun for­seta Líbanons sam­úð­ar­kveðju sína og íslensku þjóð­ar­innar fyrr í dag. Hann sagði að hugur lands­manna væri nú með þeim sem sön­uðu ást­vina sinna og hefðu misst heim­ili vegna þessa skelfi­lega atburðar.

Einnig minnti hann á að íslensk stjórn­völd væru fús til að útvega aðstoð við björg­un­ar­að­gerðir í borg­inni, en Guð­laugur Þór Þórð­ar­son utan­ríkis- og þró­un­ar­mála­ráð­herra sagði hið sama í yfir­lýs­ingu í gær.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár