Ekki víst hver fer á þing fyrir Björt Ólafsdóttur

Ekki hefur verið tekin ákvörðun um það hver tekur sæti Bjartar Ólafs­dóttur á þingi í haust, en Björt og maður hennar eiga á von á tví­burum. Fyrsti vara­þing­maður Bjartrar fram­tíðar í kjör­dæm­inu Reykja­vík norður er Heiða Kristín Helga­dóttir, fyrr­ver­andi stjórn­ar­for­maður flokks­ins, og núver­andi fjöl­miðla­kona á 365.

Val­gerður Björk Páls­dóttir, fram­kvæmda­stjóri Bjartrar fram­tíðar, stað­festi þetta í sam­tali við Kjarnann. Hún sagði Björtu ekki hafa tekið neina ákvörðun um það hversu lengi hún hygg­ist vera í burtu frá þing­inu, og að engin ákvörðun hafi verið tekin um það hvort Heiða Kristín setj­ist á þing í hennar stað eða hvort næsti maður á eftir henni á list­anum komi inn. Heiðu Kristínu yrði hins vegar tekið fagn­andi ef hún ákvæði að taka sæti. Heiða Kristín stað­festi einnig við Kjarnann að engin ákvörðun hefði verið tekin. Næsti maður á eftir Heiðu Kristínu er Eldar Ást­þórs­son.

Heiða Kristín hætti sem stjórn­ar­for­maður Bjartrar fram­tíðar um miðjan des­em­ber, og ætl­aði að hvíla dag­leg afskipti af stjórn­málum um sinn, eins og sjá má í til­kynn­ingu hennar um málið sem sjá má hér að neðan. Hún starfar nú hjá 365 miðlum og í und­ir­bún­ingi er viku­legur þáttur um þjóð­mál undir hennar stjórn.

 



Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár