Búa Landspítala undir að taka við COVID-veikum börnum

Styrkja á getu Land­spít­al­ans til að taka við börnum sem veikst hafa af COVID. Reynslan frá Norð­ur­lönd­unum sýnir að 1,5 sinnum fleiri smit­aðra þurfa að leggj­ast inn á sjúkra­hús vegna hins breska afbrigðis veirunnar.

Alma Möller, landlæknir.
Alma Möller, land­læknir. Mynd: Almannavarnir

„Vegna þess að nú er það breska afbrigðið sem komið er á kreik þá má búast við fleiri inn­lögnum hlut­falls­lega en við höfum áður séð, sagði Alma Möller land­læknir á upp­lýs­inga­fundi dags­ins. Reynslan frá Norð­ur­löndum sýni að 1,5 sinnum fleiri þurfi á sjúkra­húsinn­lögn að halda en áður. Hingað til hefur um 4 pró­sent smit­aðra þurft inn­lögn hér á landi en nú má búast við allt að 10 pró­sent.

[links]Því er haf­inn víð­tækur und­ir­bún­ingur innan heil­brigð­is­kerf­is­ins, ekki síst á Land­spít­ala. COVID-göngu­deildin hefur verið styrkt sem og geta spít­al­ans til að taka við börnum sem gætu þurft inn­lögn. „Það eru allir í við­bragðs­stöðu og búa yfir mik­illi reynslu til að takast á við far­ald­ur­inn.“

Hún sagði að við ættum enn eftir að læra á þetta breska afbrigði sem Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir sagði að væri „alls­ráð­andi“ á t.d. Norð­ur­lönd­unum. Alma benti á að nú væru nokkrir í eft­ir­liti hjá COVID-göngu­deild­inni vegna mik­illa ein­kenna, fólk sem gæti þurft á inn­lögn að halda síðar.

Síðustu sól­ar­hringa hefur orðið mikil aukn­ing í greindum smitum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Þau tengj­ast þremur hóp­sýk­ingum sem upp hafa komið – sýk­inga af völdum breska afbrigðis veirunnar. Tvær þeirra er hægt að rekja saman en þá þriðju, hefur ekki verið hægt að rekja til landamæra­skimunar. Sá sem bar hana hingað til lands hefur sum sé ekki farið í skimun eða ekki greinst í þeim skimunum sem hann und­ir­gekkst.

[adspot]

Þetta hópsmit greind­ist fyrir fjórum dögum og hefur leitt til þess að um 500 manns hafa þurft að fara í sótt­kví. Í heild­ina hafa tutt­ugu manns greinst í tengslum við það en búast má við fleiri til­fellum á næstu dögum. „En von­andi verða þeir allir í sótt­kví við grein­ingu,“ sagði Þórólfur á upp­lýs­inga­fundi dags­ins.

Í gær greindust átta inn­an­lands og allir voru þeir í sótt­kví. Allir tengj­ast þeir klasa­smit­inu sem kom upp síð­ustu helgi. Það hópsmit hefur nú teygt sig inn í fleiri grunn­skóla á höf­uð­borg­ar­svæð­inu.

„Því er ljóst að það er komin tölu­verð útbreiðsla af veirunni í sam­fé­lagið af völdum breska afbrigð­is­ins,“ sagði Þórólfur og benti á að í raun hefði tvö afbrigði af því breska greinst.

„Þessi þróun veldur áhyggjum því ekki er þetta afbrigði bara meira smit­andi heldur veldur alvar­legum veik­indum í öllum ald­urs­hópum nema hjá yngsta ald­urs­hópnum, yngri en 6 ára.“

Reynslan frá Noregi sýni að fleiri börn eru á sjúkra­húsi vegna sjúk­dóms­ins nú en áður og í Danmörku hefur einnig sést mark­tæk aukn­ing smita hjá börnum.

„Til að stemma stigu við frek­ari útbreiðslu taldi ég nauð­syn­legt að bregð­ast hratt og hart við stöð­unni,“ sagði Þórólfur en hertar aðgerðir, með tíu manna fjölda­tak­mörk­unum, tóku gildi á mið­nætti. „Með því að ganga svona hart fram núna bind ég vonir við að böndum verði náð á far­ald­ur­inn sem fyrst og að fljót­lega verði hægt að hefja aflétt­ingar að nýju.“ Það verður þó tæp­lega fyrr en eftir 2-3 vikur.

Þórólfur sagði vissu­lega von­brigði að þessi staða væri komin upp. „En það á í sjálfu sér ekki að koma á óvart miðað við þró­un­ina erlendis og hvernig hún hefur verið hér á landa­mærum og hvaða reynslu við höfum af því að fást við þennan far­aldur. En ég bind miklar vonir við að við náum tökum fyrr en áður því við beitum hörðum aðgerðum strax í upp­hafi.“

Hann benti á að við vitum núna hvað þurfi að gera. „Við verðum áfram að standa saman í því að binda enda á far­ald­ur­inn því sam­staðan er lyk­il­at­riði í þess­ari bar­áttu og hefur ein­kennt okkar árangur til þessa.“

Rögn­valdur Ólafsson, aðstoð­ar­yf­ir­lög­reglu­þjónn, benti fólki á að taka upp páskakúlur – sam­bæri­legar jólakúl­unum sem fólk gerði í des­em­ber. Sum sé: Hitta aðeins fáa – muna tíu manna fjölda­tak­mark­anir. „Hvaða hóp ætlar þú að hafa í kringum þig,“ sagði hann vera spurn­ingu sem fólk ætti nú að huga að. Og eins og áður: Allir verða að hafa sótt­varnir efst í huga.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár