Mynd: Birgir Þór Harðarson

Svartasta sviðsmyndin reiknar með 50 þúsund landsmönnum á hlutabótum

Rúmlega fjórð­ungur starf­andi Íslend­inga mun fá hluta af launum sínum greiddum úr Atvinnu­leys­is­trygg­inga­sjóði fram til 1. júní verði dekksta sviðs­mynd stjórn­valda að veru­leika. Í henni er gert ráð fyrir að kostn­aður við þá stöðu yrði 32 millj­arðar króna.

Ef 50 þús­und manns leita eftir samn­ingum við vinnu­veit­endur um að fá hluta launa sinna greidda úr Atvinnu­leys­is­trygg­inga­sjóði á næstu mán­uðum, og helm­ingur þeirra muni fara í 25 pró­sent starfs­hlut­fall, 30 pró­sent í hálft starf og fimmt­ungur í 75 pró­sent starfs­hlut­fall, mun það kosta rík­is­sjóð 12,8 millj­arða króna á mán­uði. Samtals mun kostn­að­ur­inn, frá 15. mars til 31. maí, því nema 32 millj­örðum króna.

Þetta kemur fram í kostn­að­ar­mati sem félags- og barna­mála­ráðu­neytið vann vegna breyt­inga á frum­varpi Ásmundar Einars Daða­sonar, ráð­herra mála­flokks­ins, sem er ætlað að reyna að við­halda ráðn­ing­ar­sam­bandi milli launa­fólks og atvinnu­rek­enda í stað þess að þús­undum manns verði sagt upp um kom­andi mán­aða­mót. Tilurð frum­varps­ins eru aðstæður efna­hags­líf­inu sem skap­ast hafa vegna útbreiðslu veirunnar sem veldur COVID-19 sjúk­dómnum. Vert er að taka fram að þetta er svartasta sviðs­myndin sem kostn­að­ar­matið dregur upp.

Samkvæmt tölum sem Hagstofa Íslands birti í gær var fjöldi þeirra sem voru starf­andi á Íslandi á fjórða árs­fjórð­ungi 2019 á aldr­inum 15-69 ára að jafn­aði 195.163. Um 80 pró­sent þeirra eru með íslenskan bak­grunn en um fimmt­ungur telj­ast til inn­flytj­enda.

Því gerir svartasta sviðs­mynd félags- og barna­mála­ráðu­neyt­is­ins ráð fyrir því að rúm­lega fjórð­ungur alls vinnu­afls á land­inu þurfi að gera samn­inga um að láta Atvinnu­leys­is­trygg­inga­sjóð greiða hluta launa sinna næsta tvo og hálfan mán­uð­inn hið minnsta.

Til að setja þessa tölu í sam­hengi er hægt að benda á að skráð atvinnu­leysi í febr­úar mæld­ist fimm pró­sent og að jafn­aði voru 9.162 ein­stak­lingar á atvinnu­leys­is­skrá í þeim mán­uði. Svartasta sviðs­mynd ráðu­neyt­is­ins gerir ráð fyrir að rúm­lega fimm sinnum fleiri muni sækj­ast eftir hluta­bótum.

Mat ráðherrans reiknar með 20 til 30 þúsund manns

Breyt­ing­arnar fela í sér að Atvinnu­leys­is­trygg­inga­sjóður mun greiða frá 25 pró­sent og allt að 75 pró­sent af launum þeirra sem gera slíka samn­inga, en í upp­haf­legu frum­varpi hafði hámarks­hlut­fallið yrðu 50 pró­sent. Í kostn­að­ar­mat­inu er gengið út frá því að um helm­ingur allra sem það geri muni þurfa á hámarks­hlut­fall­inu að halda, sem þýðir að fyr­ir­tækin sem við­kom­andi vinnur hjá munu ein­ungis geta greitt 25 pró­sent af launum hans.

Ásmundur Einar Daðason lagði frumvarpið fram. Mynd: Bára Huld Beck
Ásmundur Einar Daðason lagði frum­varpið fram. Mynd: Bára Huld Beck

Aðrar lyk­il­breyt­ingar sem gerðar hafa verið á frum­varp­inu er að hámark á heild­ar­tekjum þeirra sem gera samn­inga hefur verið hækkað úr 650 þús­und krónum í 700 þús­und krónur og hver og einn getur fengið allt að 90 pró­sent af núver­andi heild­ar­launum upp að því þaki, en það hlut­fall var 80 pró­sent í fyrstu útgáfu frum­varps­ins. Þá hefur launa­lægsta hópnum verið tryggð full afkomu og þeir sem eru með laun undir 400 þús­und krónum á mán­uði munu geta fengið þau að öllu leyti áfram, þrátt fyrir samn­ing­inn. Það vekur líka athygli að ákveðið hefur verið að stytta tím­ann sem bráða­birgða­úr­ræðið verður í boði frá 1. júlí til 1. júní.

Ásmundur Einar sagði í fréttum Stöðvar 2 í gær að „það fjár­magn sem fer í þetta [fer] mjög mikið upp og má gera ráð fyrir því að það verði á bil­inu tólf til tutt­ugu millj­arðar, eftir því hversu margir nýta sér úrræðið.“

Miðað við kostn­að­ar­matið þá var Ásmundur Einar þar að gefa sér að á bil­inu 20 til 30 þús­und lands­menn myndu gera samn­inga um skert starfs­hlut­fall og nýta sér greiðslur úr Atvinnu­trygg­inga­sjóði á móti. Þá myndu greiðslur, á ofan­greindum for­sendum, verða 12,8 til 19,2 millj­arðar króna.

Verði bjart­sýn­asta sviðs­mynd ráðu­neyt­is­ins að veru­leika, sem gerir ráð fyrir að fimm þús­und manns sæk­ist eftir hluta­bótum, mun kostn­að­ur­inn hins vegar verða mun lægri, eða 3,2 millj­arðar króna yfir umrætt tveggja og hálfs mán­aðar tíma­bil.

Mikil eftirspurn þegar skapast

Í nefnd­ar­á­liti vel­ferð­ar­nefndar, sem allir nefnd­ar­menn skrifa undir (tveir þing­menn, Halldóra Mogensen Pírati og Anna Kolbrún Árna­dóttir úr Mið­flokknum, skrifa undir með fyr­ir­vara) kemur fram að vænt­an­legur sam­dráttur vegna útbreiðslu COVID-19-sjúk­dóms­ins muni hafa víð­tæk sam­fé­lags­leg og efna­hags­leg áhrif. „Við sér­stakar aðstæður sem þessar er nauð­syn­legt að mæta þeim vanda sem fyr­ir­sjá­an­legur er hjá fólki og fyr­ir­tækjum. Tryggja þarf afkomu launa­fólks, gera atvinnu­rek­endum kleift að minnka umfang starf­semi sinnar tíma­bundið vegna hæg­ari gangs í hag­kerf­inu og styðja þá sjálf­stætt starf­andi ein­stak­linga sem þurfa að þola til­heyr­andi sam­drátt í rekstri. Markmið frum­varps­ins er að treysta grund­völl fólks og fyr­ir­tækja á óvissu­tímum og vinna gegn atvinnu­leysi til skemmri og lengri tíma og þeim nei­kvæðu afleið­ingum sem af því leiðir. Fram­lagn­ing frum­varps­ins er hluti af nauð­syn­legum aðgerðum á tímum mik­illa áskor­ana og er ætlað að skjóta stoðum undir við­spyrnu sam­fé­lags­ins og hag­kerf­is­ins eftir að ástandið sem nú ríkir er yfir­staðið.“

Ljóst má vera að mikil eft­ir­spurn hefur þegar skap­ast eftir úrræð­inu, þrátt fyrir að ekki sé enn búið að afgreiða það á Alþingi.

Þegar farið er inn á heima­síðu Vinnu­mála­stofn­unar blasir við upp­skot þar sem bent sé á að það sé ekki hægt að sækja um minnkað starfs­hlut­fall vegna sam­dráttar eins og er þar sem frum­varpið sé enn til með­ferðar á Alþingi og því liggi end­an­leg útfærsla ekki fyrir. „Þrátt fyrir það leggur Vinnu­mála­stofnun nú kapp á að vinna að staf­rænni útfærslu fyrir þessa umsókn miðað við frum­varps­drögin og á meðan á þeirri vinnu stendur er ekki hægt að sækja um minnkað starfs­hlut­fall á vef Vinnu­mála­stofn­unar. Við munum senda út til­kynn­ingu þegar umsókn­ar­grunn­ur­inn er til­bú­inn og ein­stak­lingar sem fara í minnkað starfs­hlut­fall geta sótt um. Athugið að allar umsóknir munu gilda aft­ur­virkt frá 15. mars. Vinnu­mála­stofnun biður fólk um að sýna bið­lund vegna mik­ils álags og hvetur alla til að fylgj­ast með til­kynn­ingum á heima­síðu stofn­un­ar­innar.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

atvinnuleysi

Mest lesið undanfarið ár