HÆTTIÐ! skrifar Trump um ESB

Vernd­ar­tollar ESB eru slæmir að mati Donalds Trump sem er ánægður með vinnu við nýjan og „stóran“ frí­versl­un­ar­samn­ing við Bretland.

Donald Trump, forseti Bandaríkjanna.
Donald Trump, for­seti Banda­ríkj­anna. Mynd: EPA

Donald Trump, for­seti Banda­ríkj­anna, er ánægður með vinnu við nýjan frí­versl­un­ar­samn­ing við Bretland sem á að taka við eftir Brexit. Trump fjall­aði um þetta á Twitter en var gagn­rýn­inn á Evr­ópu­sam­bandið um leið.

„Við vinnum að stórum versl­un­ar­samn­ingi við Bretland. Gæti orðið mjög stór og spenn­andi. STÖRF! ESB er mjög vernd­ar­tolla­sinnað við BNA. HÆTTIÐ!“ skrif­aði Trump á Twitter, í laus­legri þýð­ingu.

Full­trúar Hvíta húss­ins og við­skipta­ráðu­neytis Banda­ríkj­anna vildu ekki svara spurn­ingum frétta­veit­unnar Reuters um málið þegar eftir því var leitað.

Fyrr í þessum mán­uði ákvað Trump að tryggja fljóta vinnu við nýjan frí­versl­un­ar­samn­ing milli Banda­ríkj­anna og Bret­lands, jafn­vel þó breskir ráða­menn hafi verið efins um að slíkt væri mögu­legt.

[adspot]

Á fundi G20-ríkj­anna í Hamburg í Þýska­landi fyrr í júlí ræddi Trump við Theresu May, for­sæt­is­ráð­herra Bret­lands. Þar sagði hann tví­hliða samn­ingi sem „mjög, mjög mik­il­vægu máli“ og sagði mjög sterkan samn­ing verða frá­bæran fyrir bæði ríki.

[links]Í kjöl­far Brexit mun Bretland þurfa að semja um nið­ur­fell­ingu tolla og við­skipti við önnur ríki á nýjan leik. Hversu umfangs­mikil sú vinna þarf að vera á eftir að koma í ljós, en enn hefur ekki verið ákveðið (í það minnsta opin­ber­lega) hversu mik­ill aðskiln­aður Bret­lands og Evr­ópu­sam­bands­ins verður.

Brexit – Bretland gengur úr Evr­ópu­sam­band­inu – mun verða í mars 2019, tveimur árum eftir að May virkj­aði fimmtu grein Lisbon-sátt­mál­ans sem fjallar um úrsögn úr Evr­ópu­sam­starf­inu. Brexit mun verða jafn­vel þó ekki hafi verið samið um hvernig sam­skiptum Bret­lands og ESB verði háttað til fram­tíðar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár