Framsókn telur hugmyndir um flugvöll í Hvassahrauni óraunhæfar

Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn hafnar flug­velli í Hvassa­hrauni og telur hag­kvæmara að efla Reykja­vík­ur­flug­völl og Kefla­vík­ur­flug­völl í þeirra hlut­verkum.

Sigurður Ingi Jóhannsson er formaður Framsóknarflokksins.
Sigurður Ingi Jóhanns­son er for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn telur hug­myndir um flug­völl í Hvassa­hrauni óraun­hæfar og telur hag­kvæmara að efla Reykja­vík­ur­flug­völl og Kefla­vík­ur­flug­völl í þeirra hlut­verkum. Þetta kemur fram í við­bót við ályktnu um sam­göngu­mál sem Jóhann Friðrik Frið­riks­son, efsti maður á fram­boðs­lista flokks­ins í Reykja­nesbæ í kom­andi sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ingum, lagði fram á flokks­þingi Fram­sókn­ar­flokks­ins í dag og var sam­þykkt.

Jóhann Friðrik greinir frá þessu í stöðu­upp­færslu á Facebook-síðu sinni. Þar segir hann: „Miðstöð inn­an­lands­flugs á Íslandi er í Reykja­vík og milli­landa­flugs á Suð­ur­nesjum. Svæð­is­skipu­lag Suð­ur­nesja sem sam­þykkt hefur verið af öllum sveit­ar­fé­lögum svæð­is­ins gerir ekki ráð fyrir flug­starf­semi í Hvassa­hrauni. Hvassa­hraun liggur á vatns­vernd­ar­svæði á svoköll­uðu fjar­svæði vatns­verndar fyrir Suðurnes. Við skil­grein­ingu fjar­svæðis er litið til þátta eins og mis­gengis og sprungna þar sem gæta þarf sér­stakrar var­úðar og því eru fram­kvæmdir þar tak­mörkum settar. Áætlað er að flug­vall­ar­fram­kvæmdir í Hvassa­hrauni geti kostað yfir 200 millj­arða króna. Fjár­munum er mun betur varið til vega­mála þar sem stór­átaks er þörf.“

Sigurður Ingi Jóhanns­son, for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, er sam­göngu- og sveit­ar­stjórn­ar­ráð­herra og er því æðsti yfir­maður sam­göngu­mála í land­inu.

Rögnu­nefnd­in, stýri­hópur rík­is­ins, Reykja­vík­ur­borgar og Icelandair Group sem hafði það mark­mið að kanna og meta nokkra staði fyrir nýjan inn­an­lands­flug­völl á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, skil­aði skýrslu sinni árið 2015. Í nið­ur­stöðu hennar kom fram að hag­kvæm­ast sé að byggja nýjan flug­völl í Hvassa­hrauni, sem er á mörkum Hafn­ar­fjarðar og Voga. Nefndin lagði til að flug­vall­ar­skil­yrði í Hvassa­hrauni yrðu full­könnuð með nauð­syn­legum rann­sóknum og að sam­hliða yrði náð sam­komu­lagi um rekstr­ar­ör­yggi Reykja­vík­ur­flug­vallar í Vatns­mýri verði tryggt á meðan að nauð­syn­legur und­ir­bún­ingur og, eftir atvik­um, fram­kvæmdir fari fram.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár