Píratar vilja lækka laun þingmanna með lögum

Píratar hafa lagt fram frum­varp þess efnis að kjara­ráði verði skipað að kveða upp nýjan úrskurð um laun þing­manna og ráð­herra, þannig að launin verði lækkuð.

Þing­flokkur Pírata hefur lagt fram frum­varp um breyt­ingar á lögum um kjara­ráð. Flokk­ur­inn vill að kjara­ráð kveði upp nýjan úrskurð sem feli í sér launa­lækkun alþing­is­manna og ráð­herra sem sam­svari því að laun þeirra fylgi almennri launa­þróun frá 11. júní 2013.

Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá Pírötum, sem bjóða öðrum þing­mönnum að vera með á mál­inu. Tilefnið er að í morgun var sagt frá því að ASÍ teldi að for­sendur kjara­samn­inga 70 pró­sent launa­fólks væru brostnar. Eftir viku lýkur mati á for­sendum þess að segja upp kjara­samn­ingum milli ASÍ og Samtaka atvinnu­lífs­ins.

„Alþingi hefur 7 daga til að bregð­ast við með góðu for­dæmi og fyr­ir­skipa kjara­ráði að lækka laun þing­manna, ráð­herra og ann­arra sem heyra undir ráðið til sam­ræmis við launa­þróun frá 2013 sem kjara­samn­ingar flestra laun­þega miða við. Þetta frum­varp gerir það.“

Samkvæmt frum­varpi Pírata verður kjara­ráði gert sam­kvæmt lögum að kveða upp nýjan úrskurð sem feli í sér launa­lækkun alþing­is­manna og ráð­herra. Ákvörð­unin eigi að taka gildi ekki síðar en 28. febr­úar, sem er í næstu viku. „Jafn­framt skal kjara­ráð svo fljótt sem auðið er end­ur­skoða kjör ann­arra er undir það heyra, til sam­ræmis. Ákvæði þetta gildir ekki um for­seta Íslands.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár