Þingmenn og ráðherrar fóru verst út úr hruninu

Launa­þróun þing­manna og ráð­herra hefur verið hæg­ari en meðal ann­arra opin­berra starf­stétta.

Laun þingmanna hafa ekki hækkað til jafns við aðra opinbera embættismenn. Myndin tengis fréttinni ekki beint.
Laun þing­manna hafa ekki hækkað til jafns við aðra opin­bera emb­ætt­is­menn. Myndin tengis frétt­inni ekki beint. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Laun Alþing­is­manna og ráð­herra höfðu breyst lítið í fyrra miðað við laun þeirra árið 2008. Laun emb­ætt­is­manna og ann­arra opin­berra starfs­manna hafa hækkað hraðar. For­stjórar fyr­ir­tækja í einka­rekstri er sú starf­stétt sem að jafn­aði hefur hæst laun á Íslandi, sam­kvæmt álagn­ing­ar­skrám sem Frjáls verslun hefur unnið upp úr og birti í tekju­blaði sínu. Um þetta er fjallað í nýjasta hefti viku­rits­ins Vís­bend­ingar.

Í Vís­bend­ingu er rýnt í launa­þróun í völdum starf­stéttum. For­stjórar hafa síðan eftir hrun að jafn­aði haft hæstu launin, þó sjó­menn hafi siglt framúr á árunum 2011 og 2012. Í fyrra voru for­stjórar orðin lang­launa­hæsta starf­stéttin. Næstir komu sjó­menn, næst­ráð­endur fyr­ir­tækja og banka­menn með nokkuð sam­bæri­leg laun.

Athygli vekur að laun emb­ætt­is­manna, ráð­herra og alþing­is­manna hafa dreg­ist aftur úr, og er launa­skrið þess­ara starf­stétta ekki jafn hratt og meðal for­stjóra, banka­manna eða næst­ráð­enda. Samkvæmt gögnum Vís­bend­ingar hafa alþing­is­menn og ráð­herrar tæp­lega milljón að jafn­aði í laun. Sjómenn, banka­menn og næst­ráð­endur fyr­ir­tækja hafa um 2,5 millj­ónir að jafn­aði í laun og for­stjórar ríf­lega fjórar millj­ónir. Sveit­ar­stjórn­ar­menn, emb­ætt­is­menn og fram­kvæmda­stjórar ýmissa hags­muna­sam­taka hafa um 1,3 millj­ónir í laun að jafn­aði.

Sá fyr­ir­vari er á úttekt Vís­bend­ingar að í tekju­blaði Frjálsrar versl­unar eru nafn­tog­aðir ein­stak­lingar yfir­leitt taldir til auk þeirra sem hæst hafa launin. Þær tölur sem fjallað er um kunna því að vera hærri en gengur og ger­ist í ákveðnum stéttum. Hins vegar var gerð heild­ar­út­tekt á launum alþing­is­manna og ráð­herra.

Alþing­is­menn og ráð­herrar virð­ast hafa farið hvað verst út úr hrun­inu, enda virð­ast laun þeirra sára­lítið hafa breyst í fyrra miðað við árið 2008. Laun þeirra lækk­uðu á árunum 2008 til 2011 í krónum talið á meðan laun sveit­ar­stjórn­ar­manna, emb­ætt­is­manna og fram­kvæmda­stjóra ýmissa hags­muna­sam­taka stóðu í stað. Laun þeirra síð­ar­nefndu hafa síðan 2011 hækkað um 30 pró­sent.

Í upp­hafi tíma­bils­ins voru laun allra þess­ara opin­beru aðila á bil­inu 850 til 1.000 þús­und krónur að með­al­tali. Í Vís­bend­ingu segir að alþing­is­menn hafi verið í miðj­unni með um 969 þús­und krónur í laun. „Í lokin hafa hinir hóp­arnir allir hækkað í lið­lega 1.300 þús­und krónur á meðan alþing­is­menn eru enn með um 962 þús­und.“

Kjararáð tók ákvörðun í nóv­em­ber í fyrra um hækkun launa alþing­is­manna og ráð­herra. Eftir þá hækkun, og við­bót­ar­hækkun sem tók gildi í sumar, er þing­far­ar­kaup 763 þús­und krónur á mán­uði og laun ráð­herra ann­ara en for­sæt­is­ráð­herra 1.347 þús­und krónur á mán­uði. Margir for­stöðu­menn rík­is­stofn­anna eru nú með umtals­vert hærri laun en allir ráð­herrar lands­ins. Þannig er Birgir Jak­obs­son land­læknir með 1,6 millj­ónir á mánðui í laun eftir að kjara­ráð úrskurð­aði um hækkun launa hans. Haraldur Johann­es­sen rík­is­lög­reglu­stjóri er með sömu upp­hæð.

Nýlegur úrskurður kjara­ráðs um kjör for­stöðu­manna nokk­urra rík­is­stofn­anna varð til þess að laun þeirra hækk­uðu gíf­ur­lega mikið. Hækk­an­irnar voru aft­ur­virkar til allt að 1. des­em­ber 2014 og bæt­ast ofan á 7,15 pró­sent hækkun sem tók gildi um mán­að­ar­mótin júní-júlí.

Kjararáð á eftir að taka ákvörðun um hækkun á launum þing­manna og ráð­herra svo þau verði í takt við laun sam­bæri­legra starfs­stétta. Í fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­inu liggja drög að frum­varpi til nýrra laga um kjara­ráð sem mun, ef það verður sam­þykkt hafa miklar breyt­ingar í för með sér fyrir ráðið. Fjallað var um drögin í Kjarn­anum um miðjan síð­asta mánuð.

Í drög­unum er meðal ann­ars lagt til að það verði ein­göngu verk­efni kjara­ráðs að ákvarða laun og starfs­kjör þjóð­kjör­inna manna, dóm­ara, sak­sókn­ara, allra ráð­herra, ráðu­neyt­is­stjóra og þeirra skrif­stofu­stjóra sem heyra undir ráð­herra sem fer með starfs­manna­mál rík­is­ins og fara með fyr­ir­svar fyrir hönd ráð­herra við gerð kjara­samn­inga, seðla­banka­stjóra og aðstoð­ar­seðla­banka­stjóra og rík­is­sátta­semj­ara.

Þá er lagt til að kjör skrif­stofu­stjóra í Stjórn­ar­ráði Íslands og sendi­herra verði látin taka mið af kjara­samn­ingum á hefð­bund­inn hátt, þe. kjara­samn­ingum Félags háskóla­mennt­aðra starfs­manna Stjórn­ar­ráðs­ins, og að kjör aðstoð­ar­manna ráð­herra taki mið af kjörum skrif­stofu­stjóra.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár