Segir Vinstri græn hafa ákveðið að veita Sjálfstæðisflokknum uppreist æru

Formaður Mið­flokks­ins rýnir í stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræður og segir að eftir allar þær hástemmdu yfir­lýs­ing­arnar um hið óstjórn­tæka íhald hafi VG nú ákveðið að veita Sjálf­stæð­is­flokknum upp­reist æru.

Sigmundur Davíð Guðlaugsson, formaður Miðflokksins.
Sig­mundur Davíð Guð­laugs­son, for­maður Mið­flokks­ins. Mynd: Birgir Þór Harðarson

„Eftir allar hástemmdu yfir­lýs­ing­arnar um hið óstjórn­tæka íhald hefur Vg nú ákveðið að veita Sjálf­stæð­is­flokknum upp­reist æru. Af fréttum að dæma virð­ist Vg auk þess ætla að leyfa for­manni Sjálf­stæð­is­flokks­ins að verða ráð­herra í rík­is­stjórn­inni þrátt fyrir fyrri efa­semdir þar um. Þó virð­ist alls ekki víst að hann fái að halda utan um efna­hags­málin í fjár­mála­ráðu­neyt­inu,“ segir Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, for­maður Mið­flokks­ins í grein á síðu flokks­ins í dag.

Hann segir að margt hafi verið sér­kenni­legt við yfir­stand­andi stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræður. Skýr­ingar hafi feng­ist á sumu en annað verði sífellt und­ar­legra. Allt sé þetta áhuga­vert fyrir áhuga­menn um stjórn­mál.

Stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræður standa nú yfir en for­menn Fram­sókn­ar­flokks, Sjálf­stæð­is­flokks og Vinstri grænna fund­uðu fram á kvöld í gær um myndun rík­is­stjórnar. Áður höfðu for­menn­irnir fundað með for­ystu­fólki vinnu­mark­að­ar­ins, ASÍ og Samtökum atvinnu­lífs­ins til þess að fá yfir­sýn yfir þá stöðu sem við blasir í kjara­við­ræðum. Þetta kemur fram í frétt RÚV í morgun.

„Komið hefur í ljós að við­ræður vinstri­flokk­anna voru ekki bara leik­sýn­ing af hálfu Fram­sókn­ar­flokks­ins heldur Vg líka.

Það liggur líka fyrir að stjórn­ar­mynstrið er sér­stakt áhuga­mál flokks­eig­enda flokk­anna þriggja. Sumir þeirra reyndu með öllum til­tækum ráðum að koma á sams konar stjórn fyrir ári. Við­ur­nefnið „flokks­eig­enda­stjórnin“ er ekki úr lausu lofti gripið. Menn í þessum flokkum telja slíka rík­is­stjórn best til þess fallna að efla þá hags­muni sem eru þeim kær­astir. Þar skjátl­ast þeim lík­lega ekki,“ segir Sig­mundur Davíð í grein sinni.

Hann segir jafn­framt að ljóst sé að starf­andi for­menn flokk­anna þriggja þurfi allir á því að halda að kom­ast í rík­is­stjórn til að halda velli, þ.e. kom­ast hjá því að verða settir af eða deyja (póli­tískt) úr leið­indum. Óleyst sé þó gátan um einkar óvenju­lega hegðun Sjálf­stæð­is­flokks­ins.

„Formaður flokks­ins þráir nú að kom­ast í rík­is­stjórn með fólki sem hefur um langt skeið kallað hann glæpa­mann og öðrum verri nöfnum. Hann leit­ast við að koma til valda fólki sem gekk hart fram við að reyna að koma fyrr­ver­andi for­manni Sjálf­stæð­is­flokks­ins og for­sæt­is­ráð­herra í fang­elsi, ásamt fjár­mála­ráð­herra flokks­ins. Auk þess áformar hann að brjóta blað með því að gera sós­í­alista að for­sæt­is­ráð­herra á Íslandi í fyrsta skipti. Full ástæða verður til að óska Katrínu Jak­obs­dóttur til ham­ingju með að ná þessum áfanga og að hafa tek­ist ætl­un­ar­verkið með því að beygja bæði gras­rót eigin flokks og allan Sjálf­stæð­is­flokk­inn sam­tímis. Það er ekki lítið afrek,“ segir hann.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2017

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár