„Ég gæti ekki einu sinni séð einföld form“

Gauti Páll Jónsson er með hugsýna­stol og getur því ekki séð hluti myndrænt fyrir sér. „Þangað til nýlega vissi ég ekki að þetta væri eitthvað sem fólk gæti gert,“ segir hann. Sálfræðingur sem stundar rann­sóknir á þessu sviði telur að margir viti ekki að þeir séu með hugsýna­stol.

Les mikið
Les mikið Það kom Gauta á óvart að kom­ast að því að þegar flest fólk læsi gæti það búið til ein­hvers konar atburða­rás í hug­anum. Mynd: Víkingur

Ímyndaðu þér epli. Reyndu að sjá það fyrir þér í huganum. Hvernig lítur það út? Hvernig er það á litinn og í laginu? Sérðu glampa á það? Er það kannski svart­hvítt? Mótar aðeins fyrir útlínum þess?

Það hvernig fólk sér hluti myndrænt fyrir sér í huganum er bæði einstaklings­bundið og mismun­andi. Sumir hafa mjög sterkt ímyndunarafl og eru færir um að sjá flókna og marg­brotna hluti fyrir sér, en aðrir síður.

Síðan eru enn aðrir sem sjá alls ekkert þegar þeir eru beðnir um að sjá eitthvað fyrir sér. Þetta fyrirbæri, skortur á hæfi­leikanum að geta séð hluti fyrir sér í huganum, er kallað hugsýna­stol (e. aphantasia) og er talið að upplifun þriggja til fjögurra prósenta fólks einkennist af því. 

Fannst tilhugsunin fáránleg

Í þau skipti sem sagn­fræðingurinn Gauti Páll Jónsson var í áranna rás beðinn um að „sjá hluti fyrir sér“ áttaði hann sig …

Kjósa
19
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár