Ánægja með störf Pútíns hefur aukist hratt eftir að stríðið í Úkraínu hófst

Í könnun á meðal rúss­nesks almenn­ings sem fram­kvæmd var í mars sögð­ust 83 pró­sent aðspurðra sátt með störf Vla­dimírs Pútíns í emb­ætti. Stríðs­rekst­ur­inn í Úkraínu virð­ist mæl­ast vel fyrir í Rúss­landi, rétt eins og inn­limun Krím­skaga árið 2014.

Heil 83 prósent aðspurðra í könnun Levada Center í mars sögðust sátt með störf Vladimírs Pútíns Rússlandsforseta.
Heil 83 pró­sent aðspurðra í könnun Levada Center í mars sögð­ust sátt með störf Vla­dimírs Pútíns Rúss­lands­for­seta. Mynd: EPA

Þrátt fyrir að Vladimír Pútín for­seti Rúss­lands hafi verið for­dæmdur af vest­rænum leið­togum og fregnir ber­ist nú dag­lega af hörmu­legum voða­verkum rúss­neska inn­rás­ar­liðs­ins í Úkraínu hefur for­set­inn aukið vin­sældir sínar meðal almenn­ings í Rúss­landi gríð­ar­lega frá því að stríðið, sem ekki má kalla stríð í Rúss­landi, hófst.

Samkvæmt nýj­ustu mæl­ingu óháða könn­un­ar­fyr­ir­tæk­is­ins Levada Center í Rúss­landi segj­ast nú, í fyrsta sinn frá árinu 2018, fleiri en 80 pró­sent Rússa ánægð með emb­ætt­is­færslur Pútíns, en Levada fram­kvæmir mán­að­ar­legar mæl­ingar á við­horfum rúss­nesks almenn­ings til starfa for­set­ans. 83 pró­sent aðspurðra sögð­ust sátt með störf for­set­ans þegar spurt var í mars­mán­uði, en ein­ungis 15 pró­sent ósátt. Um tvö pró­sent tóku svo ekki afstöðu í aðra hvora átt­ina.

Ánægja með störf Pútíns hafði dalað

Vin­sælda­stökk Pútíns nú er mjög svipað og það sem átti sér stað árið 2014, er Rússar inn­lim­uðu Krím­skaga. Við þá atburði reis ánægja með störf Pútíns úr rúmum 60 pró­sentum og upp í tæp 90 pró­sent og hélst yfir 80 pró­sentum allt fram á mitt ár 2018, en dal­aði þá niður í 60-70 pró­sent með nokkrum sveiflum á milli mán­aða.

Ánægja með störf Pútíns mæld­ist minnst í upp­hafi kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins, en í apríl árið 2020 sögð­ust ein­ungis 59 pró­sent svar­enda í könnun Levada ánægð með störf for­set­ans. Síðan þá hafði ánægjan ekki farið upp fyrir 70 pró­sent, fyrr en í febr­úar 2022 – og reis síðan upp í 83 pró­sent í síð­asta mán­uði sem áður segir.

Sá hópur sem lýsir yfir óánægju með for­set­ann hefur að sama skapi meira en helm­ing­ast, en í des­em­ber síð­ast­liðnum sögð­ust 34 pró­sent svar­enda óánægð með frammi­stöðu Pútíns í emb­ætti. Það hlut­fall var komið niður í 27 pró­sent í febr­úar og mæld­ist svo 15 pró­sent í mars, sem áður segir.

70 prósent sátt með störf ríkisstjórnarinnar

Ánægja með störf rík­is­stjórn­ar­innar heilt yfir hefur einnig vaxið mjög frá því að stríðs­rekst­ur­inn í Úkraínu hófst og segj­ast nú 70 pró­sent sátt með störf rúss­nesku stjórn­ar­innar en ein­ungis 27 pró­sent ósátt. Undir lok síð­asta árs voru um það bil jafn margir sem sögð­ust sáttir og ósáttir með störf stjórn­ar­innar.

[adspot]

Þegar spurt er hvort svar­endur telji Rússland almennt vera að fær­ast í rétta átt eða í ógöngur hefur einnig orðið mikil við­horfs­breyt­ing. 69 pró­sent sögðu í könnun Levada í mars að Rússland væri á réttri leið, en ein­ungis 48 pró­sent í des­em­ber­mán­uði. Að sama skapi töldu ein­ungis 22 pró­sent að Rússland væri á rangri leið þegar spurt var í mars, en 44 pró­sent þegar spurt var í des­em­ber.

Viðhorf til Vesturlanda snarversna

Viðhorf rúss­nesks almenn­ings til Vest­ur­landa hafa einnig snar­versnað frá því að stríðið í Úkraínu hófst. Í nóv­em­ber síð­ast­liðnum sögð­ust 45 pró­sent vera jákvæð í garð Banda­ríkj­anna en 42 pró­sent nei­kvæð. Í mars voru hins­vegar ein­ungis 17 pró­sent svar­enda jákvæð í garð Banda­ríkj­anna en 72 pró­sent nei­kvæð.

Hvað Evr­ópu­sam­bandið hafa við­horf einnig snar­versnað, en í mæl­ingum Levada hafa fleiri Rússar verið jákvæðir en nei­kvæðir gagn­vart ESB í nær öllum mæl­ingum frá árinu 2019. Nú er öldin önnur – 67 pró­sent aðspurðra sögð­ust nei­kvæð gagn­vart Evr­ópu­sam­band­inu er spurt var í mars.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár