Hnuplaði 11 milljónum króna með aðstoð listagyðjunnar

Í stað þess að ramma pen­inga­seðla inn fyrir sýn­ingu í nútíma­lista­safn­inu í Álaborg þá stakk lista­mað­ur­inn Jens Haaning pen­ing­unum sem hann hafði fengið til verks­ins frá safn­inu ein­fald­lega í vas­ann. Sá gjörn­ingur varð lista­verkið og ramm­arnir hanga tómir.

Gestir virða fyrir sér annan af þeim römmum sem Jens Haaning sendi nútímalistasafninu í Álaborg. Til stóð að ramminn væri fulllur af dönskum seðlum.
Gestir virða fyrir sér annan af þeim römmum sem Jens Haaning sendi nútíma­lista­safn­inu í Álaborg. Til stóð að ramm­inn væri fulllur af dönskum seðlum. Mynd: EPA

Nýjasta sköp­un­ar­verk danska lista­manns­ins Jens Haaning hefur vakið reiði meðal stjórn­enda nútíma­lista­safns­ins í Álaborg, þar sem verkið er til sýnis. Ástæðan er ein­föld: lista­verkið sem um ræðir er hreinn og klár þjófn­aður og ekki í takt við það sem starfs­fólk lista­safns­ins hafði átt von á. Lista­mað­ur­inn hirti 534 þús­und danskar krónur, sem sam­svarar tæpum ell­efu milljón íslenskra króna, sem safnið hafði lánað lista­mann­inum. Seðl­arnir átti lista­mað­ur­inn að nota til þess að end­ur­gera eldri lista­verk.

Lista­verkin sem til stóð að Jens myndi skila af sér áttu ann­ars vegar að sýna með­al­tekjur Dana og hins vegar með­al­tekjur Aust­ur­rík­is­manna. Líkt og áður segir er um end­ur­gerð á eldri verkum lista­manns­ins að ræða, en hann límdi pen­inga­seðla sem sam­svara með­al­tekjum á striga. Pen­ing­arnir sem safnið lán­aði lista­mann­inum áttu að vera nýttir í þeim til­gangi en þegar starfs­fólk lista­safns­ins hafði tekið á móti lista­verk­unum kom í ljós að í römm­unum voru engir pen­ingar. Jens Haaning sendi þeim nýtt lista­verk sem hann hefur gefið lýsandi nafn: „Take the Money and Run“.

Danska rík­is­út­varpið fjallar um málið en Jens var til við­tals í morg­un­þætt­inum Morgen á P1 danska rík­is­út­varps­ins á dög­unum, ásamt safn­stjór­anum Lasse And­ers­son. Í við­tal­inu sagði Jens að sá gjörn­ingur að láta rúm­lega hálfa milljón danskra króna hverfa væri lista­verkið. Líkt og áður segir lán­aði safnið honum þetta fé og til stóð að hann myndi skila pen­ing­unum að sýn­ingu lok­inni en það ætlar lista­mað­ur­inn ekki að gera. „Nei, það geri ég ekki. Verkið er það að ég hef tekið þessa pen­inga þeirra,“ sagði Jens í útvarps­þætt­inum.

Mótmælir lágum launum

Verkið er hluti sýn­ing­ar­innar Work it Out sem nú stendur yfir í nútíma­lista­safn­inu í Álaborg. Lista­menn­irnir sem eiga verk á sýn­ing­unni beina sjónum að sjálf­virkni­væð­ingu, streitu, skil­virkni, skrifræði og auk­inni tækni­væð­ingu en sýn­ingin fjallar fyrst og fremst um atvinnu, fram­tíð hennar og teng­ingu manns­ins við vinn­una.

„Hvað er vinna og hvers vegna vinnum við? Getum við þegar fram líða stundir skapað skil­virkara vinnu­um­hverfi sem gagn­ast bæði ein­stak­lingnum sem og sam­fé­lag­inu?“ eru á meðal þeirra spurn­inga sem varpað er fram í sýn­ing­ar­texta á vef safns­ins. Þar segir einnig að nú sé ef til vill kom­inn tími til þess að end­ur­hugsa hvernig og hversu mikið við vinnum.

Í við­tal­inu sagði Jens hafa tekið ákvörðun um að skapa verk sem leggur út af þema sýn­ing­ar­innar í stað þess að end­ur­skapa verk sem talar inn í sam­tíma sem sé löngu lið­inn. Þetta hafi hann gert til þess að mót­mæla þaum launum sem honum stóð til boða frá safn­inu, þau hafi ein­fald­lega verið of lág.

Segir verkið ekki vera stuld heldur brot á samningi

Lasse And­ers­son safn­stjóri sagði í áður­nefndu við­tali að Jens hefði með Take the Money and Run skapað áhuga­vert lista­verk og að það rími vel við umfjöll­un­ar­efni sýn­ing­ar­innar. „En þetta er ekki í sam­ræmi við það sem við höfðum samið um,“ sagði Lasse og bætti því við að hann ætti ekki rétt á því að halda pen­ing­unum. Spurður að því hvort að málið myndi rata til lög­regl­unnar ef að Jens skil­aði ekki pen­ing­unum við sýn­ing­ar­lok í jan­úar á næsta ári sagði Lasse ekki ætla að tjá sig um það.

Jens ítrek­aði að hann ætl­aði ekki að skila pen­ing­unum og hafn­aði því að um stuld væri að ræða. „Þetta er ekki þjófn­aður, þetta er brot á samn­ingi og brot a samn­ingi er hluti lista­verks­ins,“ sagði Jens.

Vakti athygli myndlistargagnrýnanda Morgunblaðsins á síðustu öld

Þetta er ekki fyrsti gjörn­ingur Jens Haaning sem hverf­ist um und­an­skot. Þannig rataði gjörn­ingur hans inn í umfjöllun Braga Ásgeirs­sonar, sem var mynd­list­ar­gagn­rýn­andi hjá Morg­un­blað­inu í ára­tugi, sem birt­ist í blað­inu árið 1998. Bragi hafði þá gert sér ferð til Berlínar til þess að taka púls­inn á mynd­list­ar­sen­unni þar í borg. Meðal þess sem vakti athygli hans var gjörn­ingur Jens Haaning en í gjörn­ingnum nýtti lista­mað­ur­inn sér skatta­lög­gjöf svo að eftir var tekið.

Janes setti á lagg­irnar ferða­skrif­stofu í list­húsi og seldi gestum sýn­ing­ar­innar flug­miða undir mark­aðs­verði. Þannig var mál með vexti að á þeim tíma voru skattar á listir átta pró­sentum lægri en skattar á neyslu­vörur í Þýska­landi. Bragi heit­inn stað­setti þennan gjörn­ing Danans „eitt­hvað mitt á milli til­bú­innar listar, „ready made“, og skattsvindls.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár