Ríkisstjórn Pírata og Sjálfstæðisflokks möguleg?

Aðeins Píratar og Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn gætu myndað tveggja flokka meiri­hluta á þingi ef gengið yrði til alþing­is­kosn­inga nú. Kosn­inga­spáin krufin.

Miðað við nýj­ustu kosn­inga­spá verður flókið mál að mynda rík­is­stjórn án aðkomu fleiri flokka en tveggja. Í kosn­inga­spánni sem gerð var í gær, 23. sept­em­ber, er Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn enn stærstur en með 25,1 pró­sent fylgi. Píratar eru næst stærsti flokk­ur­inn en hafa ekki mælst minni allt þetta ár og eru með 24,1 pró­sent fylgi.

Fylgið heldu áfram að jafn­ast út meðal fram­boð­anna því Vinstri hreyf­ingin grænt fram­boð mælist nú með 13,3 pró­sent á lands­vísu, Viðreisn mælist með 11,0 pró­sent, Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn með 10,1 pró­sent og Sam­fylk­ingin með 8,4 pró­sent. Björt fram­tíð mælist með 3,2 pró­sent og önnur fram­boð sam­an­lagt með 4,8 pró­sent.

Sam­an­lagt munu tveir stærstu flokk­arnir fá minna en helm­ing atkvæða ef gengið yrði til kosn­inga nú. Sam­an­lagt eru þeir með 49,2 pró­sent atkvæða. Í grófum útreikn­ingum Kjarnans kemur hins vegar í ljós að flokk­arnir muni hafa sam­an­lagðan meiri­hluta þing­manna eða 34. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn mun, sam­kvæmt útreikn­ing­unum, fá 17 þing­menn og Píratar 17.

Þeir fyr­ir­varar eru þó gerðir á útreikn­ing­unum að hér er um beina hlut­falls­tölu af heild­ar­fjölda þing­manna að ræða. Til þess að fá hlut­falls­legan fjölda þing­manna á hvert fram­boð þurfa fram­boðin að njóta minnst fimm pró­sent fylgis í nýj­ustu kosn­inga­spánni til þess að „ná kjöri“. Þeir flokkar sem eftir standa deila þá með sér 63 þing­sætum í réttu hlut­falli við fylgi sitt í kosn­inga­spánni.

[adspot]

Þær skekkjur sem aug­ljós­lega eru á útreikn­ing­unum eru til dæmis að fjöldi þing­manna úr hverju kjör­dæmi er mis­mun­andi og það er fylgi flokk­anna líka eins og sést ef rýnt er í kosn­inga­úr­slit síð­ustu ára. Þá eiga jöfn­un­ar­þing­menn eftir að koma til en það er aðferð sem notuð er til þess að vega upp á móti misvægi atkvæða milli kjör­dæma. Kjarninn treystir sér ekki til þess að spá fyrir um fjölda þing­manna eftir fylgi í hverju kjör­dæmi enda liggja ekki fyrir nógu ítar­legar og margar kann­anir á sund­ur­lið­uðu fylgi fram­boða eftir kjör­dæmum.

Möguleg stjórnarmynstur

Ef eitt­hvað er að marka þessar nið­ur­stöður munu Sjálf­stæð­is­menn verða 17 á kom­andi kjör­tíma­bili og þing­menn Pírata 17. Sam­an­lagt gætu engir aðrir tveir flokkar myndað tveggja flokka meiri­hluta á þing­inu. Hvorki Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn né Píratar gætu tekið annan með sér í meiri­hluta­stjórn. Vilji þeir ekki vinna saman mun þurfa þrjá eða fleiri flokka í sam­steypu­stjórn.

Fylgi í kosningaspá, hlutfall þingsæta og fjöldi þingmanna

Fram­boðFylgi% AlþingiÞing­menn
Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn (D)25.1%25.127.3%17
Píratar (P)24.1%24.126.2%17
Vinstri hreyf­ingin - grænt fram­boð (V)13.3%13.314.5%9
Við­reisn (C)11.0%1112.0%8
Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn (B)10.1%10.111.0%7
Sam­fylk­ingin (S)8.4%8.49.1%6
Björt fram­tíð (A)3.2%3.20.0%0
Aðr­ir*4.8%4.80.0%0
Sam­tals100.0%100100.0%63

Sex minni­hluta­stjórnir hafa verið mynd­aðar hér á landi, þar af fjórar á lýð­veld­is­tím­anum. Þær hafa yfir­leitt verið mynd­aðar til bráða­birgða og hafa þá ekki verið lang­lífar. Þessar minni­hluta­stjórnir eiga það allar sam­eig­in­legt að hafa verið mynd­aðar eftir að ósætti milli stjórn­ar­flokka sprengdi meiri­hluta­sam­starf. Alltaf hefur það verið einn af flokkum frá­far­andi stjórnar sem myndað hefur minni­hluta­stjórn­ina. Síðasta minni­hluta­stjórnin var fyrra ráðu­neyti Jóhönnu Sig­urð­ar­dóttur sem varð til í jan­úar 2009 og brú­aði bilið á milli rík­is­stjórnar Geirs H. Haarde og kosn­ing­anna í apríl 2009. Sú stjórn var varin falli af Fram­sókn­ar­flokknum. Verði til minni­hluta­stjórn eftir kosn­ing­arnar í haust verður sú minni­hluta­stjórn merki­leg í þessu til­liti.

Hér verður hins vegar reynt að púsla saman meiri­hluta­sam­starfi og koma nokkur mynstur til greina. Þetta er allt gert án þess að taka til greina hugs­an­leg ágrein­ings­mál sem hamlað gætu sam­starfi.

Samanlagður fjöldi þingsæta miðað við kosningaspá 23. september *

Til að ráða meirihluta þingsæta þá þarf 32 þingsæti. Í samsteypustjórn tveggja flokka myndi aðeins samstarf Sjálfstæðisflokks og Pírata duga.

+DPVCBS
D3426252423
P3426242322
V2626171615
C2524171413
B2423161413
S2322151313

* Reiknað út frá fylgi framboða á landsvísu. Framboð með minna en fimm prósent fylgi fengu ekkert vægi, enda er miðað við að framboð nái kjöri sé hann með meira en fimm prósent fylgi á landsvísu.

Búið er að nefna mögu­leik­ann á sam­starfi Sjálf­stæð­is­flokks og Pírata sem hefði 34 þing­manna meiri­hluta. Það verður hins vegar að telj­ast nokkuð tæpur meiri­hluti á þing­inu, sér­stak­lega með Pírata inn­an­borðs, í sam­an­burði við sterkan meiri­hluta rík­is­stjórn­ar­innar sem nú situr með 38 þing­menn gegn 25 þing­mönnum stjórn­ar­and­stöð­unnar. Innan beggja flokka (Sjálf­stæð­is­flokks og Fram­sókn­ar­flokks) er mikil hefð fyrir því að ganga eftir flokkslínum og styðja mál rík­is­stjórn­ar­innar. Píratar verða að telj­ast ólík­legir til þess að styðja mál jafn skil­yrð­is­laust.

Rík­is­stjórn­ar­sam­starf Fram­sókn­ar­flokks og Sjálf­stæð­is­flokks er nokkuð örugg­lega fallið. Sam­an­lagt njóta þessir flokkar aðeins 35,2 pró­sent fylgis í kosn­inga­spánni. Eftir grófa útreikn­ing­ana verður sam­an­lagður þing­manna­fjöldi þeirra aðeins 24 (D + B); minni en minni­hlut­inn á þing­inu ræður yfir nú. Ef stjórn­ar­flokk­arnir kippa Viðreisn með sér um borð verður til eins tæpur meiri­hluti og hægt er með akkúrat 32 þing­menn (D + B + C).

Píratar gætu ekki myndað meiri­hluta með vinstri­flokk­unum Vinstri grænum og Sam­fylk­ing­unni (P + V + S) en ef Viðreisn er skipt út fyrir Sam­fylk­ing­una verður til eins manns meiri­hluti (P + V + C).

Sé vilji til þess að meiri­hluta­sam­starf verið myndað yfir miðj­una og til vinstri í hinu póli­tíska lit­rófi er hægt að mynda sterkan 39 þing­manna meiri­hluta með sam­starfi Pírata, Vinstri grænna, Sam­fylk­ing­ar­innar og Við­reisnar (P + V + S + C). Sam­an­lagt njóta þessir fjórir flokkar 56,8 pró­sent fylgis á lands­vísu sam­kvæmt kosn­inga­spánni.

Samstarfsmöguleikar, fylgi og þingsætafjöldi

Sam­starfSam­an­lagt fylgi31 < 32Til að ná meiri­hluta
P + V + S45.8%31-1
P + V + C48.4%331
P + C + S43.5%30-2
D + B35.2%24-8
D + B + C46.2%320
P + V + S + C56.8%397
D + P49.2%342

Hvar lendir „stjórnarmyndunarumboðið“?

Guðni Th. Jóhann­es­son tók við emb­ætti for­seta Íslands í sumar og mun þess vegna takast á við stjórn­ar­myndun í fyrsta sinn eftir kosn­ing­arnar í haust. Spenn­andi verður að sjá hvaða hlut­verk Guðni vill taka sér í stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræð­unum. Forveri hans í emb­ætti sá for­seta­emb­ættið sem mik­il­vægan hlekk milli leið­toga stjórn­mála­flokk­anna og taldi sig þurfa að veita flokkum „stjórn­ar­mynd­un­ar­um­boð“.

Það eru hins vegar ekki allir sam­mála um að for­set­inn þurfi að leiða stjórn­mála­leið­toga í gegnum stjórn­ar­mynd­anir eins og leiks­skóla­börn; sér­stak­lega ef það liggur beint fyrir hvaða flokkar eru að fara að ræða saman um hugs­an­legt sam­starf. Þannig var það eftir kosn­ing­arnar 2013, þegar Bjarni Bene­dikts­son og Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son ræddu saman um stjórn­ar­myndun.

Þá fór Sig­mundur Davíð á Bessa­staði og þáði stjórn­ar­mynd­un­ar­um­boð af Ólafi Ragnari. Þá þótti Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn hafa unnið kosn­inga­sigur og var þess vegna rétt­mætur hand­hafi þessa umboðs. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn hlaut hins vegar fleiri atkvæði í kosn­ing­unum.

Guðni Th. Jóhann­es­son, nýr for­seti, á þess vegna vanda­samt verk­efni fyrir höndum ef nið­ur­stöður kosn­ing­anna verða eins og kosn­inga­spáin sýnir. Munu Píratar fá stjórn­ar­mynd­un­ar­um­boð í krafti „kosn­inga­sig­urs“ eða munu Sjálf­stæð­is­menn fá að ráða ferð­inni? Hvað með nýja flokka á borð við Viðreisn sem mæl­ast með tölu­vert fylgi á lands­vísu?

Sem sagn­fræð­ingur rann­sak­aði Guðni for­seta­emb­ættið. Hann hefur því nokkra inn­sýn í hvaða for­dæmi eru til staðar ef stjórn­ar­kreppa verður eftir kosn­ing­arnar.

Um kosningaspána

Nýjasta kosn­inga­spáin tekur mið af þremur nýj­ustu könn­unum sem gerðar hafa verið á fylgi fram­boða í alþing­is­kosn­ing­unum í haust. Í spálík­an­inu eru allar kann­anir vegnar eftir fyr­ir­fram ákveðnum atrð­inum. Þar vega þyngst atriði eins og stærð úrtaks, svar­hlut­fall, lengd k-nnun­ar­tíma­bils og sögu­legur áreið­an­leiki könn­un­ar­að­ila. Í kosn­inga­spánni 16. sept­em­ber er það næst nýjasta könn­unin sem hefur mest vægi. Helgast það aðal­lega af lengd könn­un­ar­tíma­bils­ins og fjölda svar­enda í könn­un­inni, miðað við hinar tvær sem vegnar eru. Kann­an­irnar sem kosn­inga­spáin tekur mið af eru:

  • Skoð­ana­könnun MMR 12. sept­em­ber – 19. sept­em­ber (vægi 31,8%)
  • Þjóð­ar­púls Gallup 31. ágúst – 14. sept­em­ber (vægi 50,3%)
  • Skoð­ana­könnun Frétta­blaðs­ins 6.-7. sept­em­ber (vægi 17,9%)

Kosn­­­­­­­­inga­­­­­­­­spálíkan Bald­­­­­­­­urs Héð­ins­­­­­­­­sonar miðar að því að setja upp­­­­­­­­lýs­ing­­­­­­­­arnar sem skoð­ana­kann­­­­­­­­anir veita í sam­hengi. Fyr­ir­liggj­andi skoð­ana­kann­­­­­­­­anir eru teknar saman og þeim gefið vægi til þess að spá fyrir um úrslit kosn­­­­­­­­inga. Kjarn­inn birti Kosn­­­­­­­­inga­­­­­­­­spá Bald­­­­­­­­urs fyrir sveit­­­­­­­­ar­­­­­­­­stjórn­­­­­­­­­­­­­­­ar­­­­­­­­kosn­­­­­­­­ing­­­­­­­­arnar og reynd­ist sú til­­­­­­­­raun vel. Á vefnum kosn­­­­­­­­inga­­­­­­­­spá.is má lesa nið­­­­­­­­ur­­­­­­­­stöður þeirrar spár og hvernig vægi kann­ana var í takt við frá­­­­­­­­vik kann­ana miðað við kosn­­­­­­­inga­úr­slit­in.

Áreið­an­­­­­­­­leiki könn­un­­­­­­­­ar­að­ila er reikn­aður út frá sög­u­­­­­­­­legum skoð­ana­könn­unum og kosn­­­­­­­­inga­úr­slit­­­­­­­­um. Einnig hefur það vægi hversu langt er síðan könn­unin var fram­­­­­­­­kvæmd og svo hversu margir svara í könn­un­un­­­­­­­­um.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2016

Fréttirkosningar2016

Ekki ein­hugur um ráð­herra­val innan Sjálf­stæð­is­flokks­ins

Ein­hverjir þing­menn Sjálf­stæð­is­flokks­ins studdu ekki til­lögu Bjarna Bene­dikts­sonar, for­manns flokks­ins, um ráð­herra­skipan í nýrri rík­is­stjórn. Birgir Ármanns­son, sem tók við sem þing­flokks­for­maður af Guðlaugi Þór Þórð­ar­syni í gær, segir að til­laga Bjarna hafi þó verið sam­þykkt með afger­andi hætti. Þetta kemur fram í Morg­un­blað­inu. Þar er rætt við Harald Bene­dikts­son, odd­vita Sjálf­stæð­is­manna í Norð­vest­ur­kjör­dæmi. Hann seg­ist sjálfur sáttur við að...
Fréttirkosningar2016

Stjórn­ar­sátt­máli: Evr­ópu­mál fara til þings­ins undir lok kjör­tíma­bils

Í drögum að stjórn­ar­sátt­mála rík­iss­stjórnar Sjálf­stæð­is­flokks, Við­reisnar og Bjartrar fram­tíðar kemur fram að hún muni ekki leggja fram til­lögu á Alþingi varð­andi umsókn Íslands um aðild að Evr­ópu­sam­band­inu á þessu kjör­tíma­bili. Þar segir hins vegar að þing­menn stjórn­ar­meiri­hlut­ans geti stutt þing­mál varð­andi umsókn­ar­ferli að Evr­ópu­sam­band­inu komi slíkt mál fram undir lok kjör­tíma­bils­ins. Frá þessu er greint í Morg­un­blað­inu. Þetta er...
Fréttirkosningar2016

Þingmenn innan Sjálf­stæð­is­flokks efast um sam­starf við miðju­flokka

Fullyrt er í Morg­un­blað­inu í dag að hluti þing­manna Sjálf­stæð­is­flokks efist um ágæti þess að mynda rík­is­stjórn með Viðreisn og Bjartri fram­tíð. Þeir meti það hins vegar sem svo að Bjarni Bene­dikts­son, for­maður flokks­ins, hafi óskorað umboð til þess að mynda slíka rík­is­stjórn. Form­legar stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræður flokk­anna þriggja hafa staðið yfir alla þessa viku eftir að Bjarni fékk stjórn­ar­mynd­un­ar­um­boð frá for­seta...

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár