Útlendingastofnun beðin um að bíða með brottvísun hælisleitenda til Ítalíu

Ólöf Nordal inn­an­rík­is­ráð­herra hefur óskað eftir því við Útlend­inga­stofnun að hún bíði með að vísa á brott tveimur hæl­is­leit­endum, sem Hæsti­réttur ákvað fyrir helgi að ætti að vísa úr landi og til Ítalíu á grund­velli Dyfl­inn­ar­reglu­gerð­ar­innar. Þetta kom fram í svari Ólafar við fyr­ir­spurn Helga Hrafns Gunn­ars­sonar, þing­manns Pírata, á Alþingi í dag.

Helgi Hrafn og Sigríður Ingi­björg Inga­dóttir, þing­kona Sam­fylk­ing­ar­innar, spurðu Ólöfu bæði um málið á þingi, ekki síst í ljósi þess­ara tveggja Hæsta­rétt­ar­dóma sem féllu síð­ast­lið­inn fimmtu­dag. Þau minntu á að þann 17. sept­em­ber síð­ast­lið­inn sagði Ólöf á Alþingi að Grikk­land, Ítalía og Ung­verja­land væru ekki örugg ríki til að senda fólk aftur til.

Ólöf sagði mjög vand­með­farið fyrir sig að fara að ræða um ein­stök mál. Hún sagð­ist hafa miklar áhyggjur af því sem hún sagði stærsta veik­leik­ann í íslenska kerf­inu, að fólk biði eftir máls­með­ferð lengi, jafn­vel svo árum skipti. Hún sagði að afstaða Íslands ætti að ríma við það sem ger­ist í nágranna­ríkjum okkar, en afstaða ann­arra væri „tölu­vert á iði“ þessa dag­ana. Það þyrfti að passa að steypa ekki fólki í óör­uggi, en sagði jafn­framt að ungir karl­menn hefðu jafnan verið sendir aftur til Ítalíu og Ung­verja­lands, á meðan að mál „við­kvæm­ari hópa“, kvenna og barna væru metin hvert um sig. Annar mann­anna sem Hæsti­réttur ákvað að vísa úr landi er frá Nígeríu og er sam­kyn­hneigður. Hann gæti búist við refs­ingu, jafn­vel dauða­refs­ingu, verði hann sendur aftur til síns heima.

Sigríður Ingi­björg benti á að þetta væri ekki bara spurn­ing um þessa tvo hæl­is­leit­endur, heldur væri fjöldi fólks sem biði í ótta við að vera vísað héðan. Hún spurði hvort Ísland ætl­aði að senda burt fólk til sömu landa og Evr­ópu­sam­bandið hefði ákveðið að flytja á annað hund­rað þús­und manns í burtu frá.

Ólöf sagði þetta eðl­is­ó­líkt því fólkið sem verið væri að flytja frá þessum ríkjum væri fólk sem ekki hefði fengið neina efn­is­með­ferð sinna mála. Hún sagði að það væri ekki ábyrgt af henni að full­yrða neitt um neina hluti „fyrr en ég er búin að fá það algjör­lega á hreint hvernig er í pott­inn búið.“ Málin væru til skoð­unar, hún væri ekki að láta skoða þessi mál nema vegna þess að það sé ástæða til þess. „Lengra get ég ekki gengið“.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár