Íslendingar eyddu 10,5 til 12 milljörðum króna í fjárhættuspil á síðasta ári

Happ­drætti Háskóla Íslands vill opna spila­víti á Íslandi og vísar meðal ann­ars í árlega upp­hæð sem Íslend­ingar eyða í fjár­hættu­spil máli sínu til stuðn­ings, sem nam um 12 millj­örðum króna á síð­asta ári. HHÍ vill einnig bjóða upp á fjár­hættu­spil á net­inu.

Happdrætti Háskóla Íslands hefur lagt til við starfshóp um happdrætti og fjárhættuspil að sérleyfishöfum skjávéla og söfnunarkassa verði heimilt að opna spilavíti hér á landi.
Happ­drætti Háskóla Íslands hefur lagt til við starfs­hóp um happ­drætti og fjár­hættu­spil að sér­leyf­is­höfum skjá­v­éla og söfn­un­ar­kassa verði heim­ilt að opna spila­víti hér á landi. Mynd: Skjáskot

Íslend­ingar eyddu á bil­inu 10,5 til 12 millj­örðum króna í fjár­hættu­spil á síð­asta ári. Þetta er meðal þess sem fram kemur í minn­is­blaði frá Happ­drætti Háskóla Íslands (HHÍ) til starfs­hóps dóms­mála­ráðu­neyt­is­ins um happ­drætti og fjár­hættu­spil sem Kjarninn hefur undir höndum.

Upphæðin mið­ast við upp­lýs­ingar frá Lands­bank­anum en ekki er tekið fram hve stór hluti upp­hæð­ar­innar kom frá íslenskum fyr­ir­tækjum. Hins vegar liggur fyrir að hreinar happ­drætt­is­tekjur erlendra net­síðna af pen­inga­spili hér á landi á síð­asta ári voru um 5,7 millj­arðar króna, sam­kvæmt upp­lýs­ingum frá talna­gagna­fyr­ir­tæk­inu H2 Gambling. Áætlað er að upp­hæðin muni hækka á næstu árum og verði um 6,5 millj­arðar í ár og rúm­lega átta millj­arðar árið 2025.

[adspot]Bryndís Hrafn­kels­dóttir, for­stjóri HHÍ, und­ir­ritar minn­is­blaðið, sem dag­sett er í maí síð­ast­liðnum, en hún á einnig sæti í starfs­hópnum sem minn­is­blaðið er stílað á.

Vilja reka spilavíti sem „spilahöll“ á Íslandi

Breski mið­ill­inn Times Higher Education, sem fjallar sér­stak­lega um mál­efni háskóla, greindi frá inni­haldi minn­is­blaðs­ins í síð­ustu viku, þar sem kemur meðal ann­ars fram að HHÍ leggur fram til­lögu um að núver­andi sér­leyf­is­höfum skjá­v­éla og söfn­un­ar­kassa verði heim­ilt að opna spila­víti. Í minn­is­blað­inu er þó not­ast við annað orða­lag en spila­víti og lagt til að leyfi verði veitt til að opna „spila­höll (Casínó)“.

Um til­lögu er að ræða og rétt er að taka fram að form­leg beiðni um leyfi til að opna spila­víti hefur ekki borist dóms­mála­ráðu­neyt­inu.

Ekki er fjallað nánar um útfærslu spila­vít­is­ins í minn­is­blað­inu en lagt er til að stjórn­völd fái erlendan sér­fræð­ing á sviði happ­drætt­is­mála, Philippe Vlaeminnck, til að „ráð­leggja hvernig málum verði best háttað með það að mark­miði að íslensk happ­drætt­is­lög stand­ist sam­an­burð við slíka lög­gjöf ann­ars staðar í Evrópu“. Miðar það að því að skil­yrði EES-samn­ings­ins verði upp­fyllt og að staða íslenskra happ­drætta verði styrkt „svo þau geti sinnt því óum­deil­an­lega meg­in­hlut­verki sínu til að afla fjár til styrktar íslenskum þjóð­þrifa­málum“.

HHÍ hefur „barist ötullega“ fyrir fjárhættuspili á netinu

HHÍ leggur einnig til að þeir sem starfa á grund­velli sér­stakrar laga­heim­ildar á íslenskum happ­drættis- og get­rauna­mark­aði verði heim­ilað að bjóða út vörur sínar og þjón­ustu, það er fjár­hættu­spil, á net­inu. Lagt er til að öðrum íslenskum happ­drætt­is­fyr­ir­tækjum verði veitt heim­ild til að taka þátt í að standa að því að bjóða upp á net­leiki sem ekki rúm­ast innan leyfa núver­andi sér­leyf­is­hafa skjá­v­éla og söfn­un­ar­kassa, til dæmi Bingó.

Í rök­stuðn­ingi til­lög­unnar segir að Íslend­ingar hafi í dag greiðan aðgang að erlendu og jafn­framt ólög­legu pen­inga­spili á net­inu. „Það skýtur því skökku við að inn­lendir sér­leyf­is­hafar hafi ekki mátt bjóða upp á pen­inga­spil á Netinu og þarf að leið­rétta það mis­ræmi,“ segir í til­lögu HHÍ.

Í til­lög­unni segir jafn­framt að þróun á leikja­mörk­uðum innan ríkja Evr­ópu­sam­bands­ins hafi leitt í ljós að breyt­ingar og reglu­setn­ing eru nauð­syn­legar til að bregð­ast við auk­inni eft­ir­spurn neyt­enda eftir net­leikjum. „Reglu­setn­ing er leið til að skapa heil­brigt leikjaum­hverfi sem allir njóta góðs af,“ segir í til­lögu HHÍ.

HHÍ hefur lengi barist fyrir því að fá að halda úti fjár­hættu­spili á net­inu. Á heima­síðu HHÍ er sér­stak­lega tekið fram að ötul­lega hafi verið barist fyrir því síð­ustu ár að bjóða upp á íslenskt pen­inga­spil á net­inu, með leikjum sam­bæri­legum þeim sem eru í Gull­námunni og skaf­mið­unum í Happa­þrenn­unni „en ekki haft erindi sem erf­iði hjá stjórn­völdum. Nið­ur­stöður eru ekki í sjón­máli og því alls óvíst hvort og hvenær af því verður,“ segir á heima­síðu HHÍ.

Með til­lög­unni til starfs­hóps­ins er von­ast til þess að HHÍ fái loks leyfi til að bjóða upp á fjár­hættu­spil á net­inu.

Hagnaður HHÍ yfir milljarður þrátt fyrir áhrif heimsfaraldurs

Happ­drætti Háskóla Íslands aflar tekna með þrenns konar hætti. HHÍ var stofnað árið 1933 og hefur aflað fjár með happ­drættum allt frá árinu 1934. Árið 1987 hóf HHÍ að selja skaf­miða, hinar svoköll­uðu happa­þrenn­ur, og árið 1993 voru fyrstu spila­kassar HHÍ teknir í notkun undir merkjum Gull­námunn­ar. Fram kemur á heima­síðu HHÍ að frá stofnun hafi happ­drættið fjár­magnað nær allar bygg­ingar Háskóla Íslands en allur hagn­aður af rekstri HHÍ fer til upp­bygg­ingar Háskóla Íslands.

Nýjasti aðgengi­legi árs­reikn­ingur happ­drætt­is­ins er frá árinu 2020. Þar kemur fram að kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn hafi haft veru­leg áhrif á rekstr­ar­af­komu árs­ins, sér­stak­lega á rekstur Gull­námunnar sem heldur úti spila­kössum. Allir staðir í Gull­námunni og sjálfsalar í Happa­þrenn­unni voru lok­aðir frá 24. mars til 24. maí 2020.

Hagnaður árið 2020 var 1.026 millj­ónir króna og minnk­aði um 37 pró­sent milli ára, eða 593 millj­ónir króna. Veltan jókst í Flokka­happ­drætt­inu en minnk­aði í Gull­námunni og Happa­þrenn­unni.

Framlag HHÍ til Háskóla Íslands nam 950 millj­ónum króna, sem er tölu­vert hærra en árið á undan þegar fram­lagið var 580 millj­ónir króna. Vert er að taka fram að hagn­aður HHÍ kemur ekki alfarið frá rekstri spila­kassa, heldur eru tekju­stoð­irnar þrjá; happ­drætt­ið, happa­þrenn­urnar og spila­kass­arn­ir.

Spurningamerki ítrekað sett við tekjuöflun HHÍ

Umræða um fjár­hættu­spil sem tekju­öfl­un­ar­leið HHÍ og þar með Háskóla Íslands koma reglu­lega upp í sam­fé­lags­um­ræð­unni.

Í byrjun febr­úar 2021 stóðu Samtök áhuga­fólks um spilafíkn (SÁS), sem stofnuð voru árið 2019, fyrir her­ferð­inni Lokum spila­kössum. Í árs­reikn­ingi HHÍ fyrir árið 2020 segir að her­ferð­inni hafi mark­visst verið beint gegn rekstri Gull­námunnar og Íslands­spilum og bendir HHÍ að happ­drættið hafi „lagt ríka áherslu á ábyrga spilun og hefur meðal ann­ars inn­leitt staðal sam­taka evr­ópsku happ­drætt­is­fyr­ir­tækja um ábyrga spilun.“ HHÍ og Íslands­spil reka saman vef­inn abyrg­spilun.is, sem hét áður spilafikn.is.

[adspot]Í fram­haldi af átaki SÁS sendi stjórn Sið­fræði­stofn­unar Háskóla Íslands Jóni Atla Bene­dikts­syni, rektor HÍ, bréf um ólík sjón­ar­horn á rekstri háskól­ans á happ­drætti og spila­kössum. Í mars skip­aði rektor starfs­hóp innan háskól­ans sem ætlað var að meta sið­ferði­leg og önnur álita­efni tengd tekju­öflun HHÍ.

Í sama mán­uði, mars 2021, skip­aði Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir, þáver­andi dóms­mála­ráð­herra, starfs­hóp til að kanna mögu­legar rétt­ar­bætur á sviði happ­drætt­is­mála. Hópnum er ætlað að gera til­lögur til ráð­herra um breyt­ingar á lögum og reglu­gerðum um happ­drætti, telj­ist þær nauð­syn­legar, og eftir atvikum að greina fjár­þörf til þess að tryggja að mögu­legar breyt­ingar geti átt sér stað.

Formaður hóps­ins er Sigurður Kári Krist­jáns­son lög­maður en þar eiga einnig sæti full­trúar þeirra happ­drætt­is­fyr­ir­tækja sem starfa á íslenskum happ­drætt­is­mark­aði, auk full­trúa Samtaka áhuga­fólks um spilafíkn. Hópnum var gert að skila til­lögum í júní 2021 en það gekk ekki eftir og var hópnum veittur ótil­greindur frestur.

Háskólinn leggi áherslu á skaðaminnkandi aðgerðir

Starfs­hópur Háskóla Íslands skil­aði hins vegar sínum til­lögum í júní í fyrra. Hópurinn komst að þeirri nið­ur­stöðu að Háskóli Íslands verði að taka til­lit til nýj­ustu rann­sókna um áhrif spila­kassa á til­tekna hópa sam­fé­lags­ins. Hvorki sam­keppn­is­sjón­ar­mið né mögu­legt tekju­tap séu nægj­an­legar ástæður til fresta því að grípa til aðgerða sem tryggja ábyrga spilun. Hópurinn telur HHÍ bera að leggja sér­staka áherslu á skaða­minnk­andi aðgerðir.

Á síð­asta þingi lagði Flokkur fólks­ins fram frum­varp um bann við spila­kössum. Í umsögn Háskóla Íslands um frum­varpið er kallað eftir því að málin „séu skoðuð heild­stætt og ekki hrapað að nið­ur­stöðu,“ enda sé árlegt fram­lag HHÍ skól­anum mik­il­vægt. Frum­varpið náði ekki fram að ganga en var end­ur­flutt í haust en hefur ekki verið tekið til umræðu á þingi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

spilakassar

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár