Fullorðinsvandi Facebook: Unglingum fækkar

Banda­rískum ung­lingum mun fækka á Facebook á þessu ári.

Mark Zuckerberg er stofnandi og aðaleigandi Facebook.
Mark Zuckerberg er stofn­andi og aðal­eig­andi Facebook. Mynd: EPA

Færri ung­menni á aldr­inum 12 til 17 ára munu nota Facebook á þessu ári en í fyrra, eða því sem nemur 3,4 pró­sentum á milli ára, ef marka má spá mark­aðs­grein­and­ans eMar­keter. Frá þessu er greint á vef CNBC.

Ung­mennin sækja frekar í Snapchat og Instagram í stað þess að fara á Facebook. Enn fremur mun mán­að­ar­leg notkun barna undir 12 ára aldri og í ald­urs­hópnum 18 til 24 ára vaxa hægar en áður hafði verið spáð, segir eMar­keter. Þessi nýja spá gefur vís­bend­ingar um að ungt fólk hafi ekki eins mik­inn áhuga á Facebook og áður.

Fjöldi not­enda á Facebook hefur aldrei verið meiri en um þessar mundir en á þessu ári urðu not­endur meira en tveir millj­arðar. Facebook glímir þess vegna við full­orð­ins­vanda, enda þarf fyr­ir­tækið á unga fólk­inu að halda til þess að geta birt því aug­lýs­ingar og ala það upp í umhverf­inu.

Hegðun ung­menna á Facebook sé að breyt­ast þannig að þau skrá sig sjaldnar inn á sam­fé­lags­mið­il­inn og eyða skemmri tíma þar en áður. Í stað­inn eyða þau tíma á Snapchat og Instagram. Auk þeirra sé að verða til hópur ungs fólks sem aldrei hefur stofnað reikn­ing á Facebook.

Á sama tíma og þetta er að ske vex hópur banda­rískra mán­að­ar­not­enda Snapchat hratt, eða um 5,8 pró­sent á þessu ári. Grein­ing­ar­fyr­ir­tækið eMar­keter jók vaxt­ar­spá sína fyrir Snapchat í öllum ald­urs­hópum nema þeim elsta. Mesti vöxt­ur­inn verður að öllum lík­indum í ald­urs­hópnum 18 til 24 ára, eða um 20 pró­sent.

[links]Hið sama má segja um Instagram þar sem hópur banda­rískra mán­að­ar­not­enda vex um 23,8 pró­sent árið 2017. Meðal barna undir 12 ára aldri vex hóp­ur­inn um 19 pró­sent og í hópi ung­linga (12 til 17 ára) fjölgar um 8,8 pró­sent á þessu ári.

Instagram er í eigu Facebook en sam­fé­lags­miðl­aris­inn keypti mynda­for­ritið á einn millj­arð Banda­ríkja­dala árið 2012 til þess að styrkja mark­aðs­hlut­deild sína meðal ungs fólks. Facebook hefur einnig reynt að kaupa Snapchat en stofn­endur snapps­ins höfn­uðu þriggja millj­arða dala til­boði. Facebook greip þá til þess ráðs að klóna ein­kenni Snapchat í miðla sína.

For­svars­menn Facebook vildu ekki tjá sig fjöl­miðla þegar eftir því var leitað.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár