Hvað gerist þegar ég like-a á Facebook?

Við höfum öll gert það, en hvað ger­ist eig­in­lega þegar ég smelli á „like“?

Facebook. Fyrir tveimur millj­örðum ein­stak­linga er það per­sónu­legur blað­beri sem færir þér allar upp­lýs­ing­arnar sem þú vilt með einum mús­arsmelli. Facebook ákveður hvaða upp­lýs­ingar þú vilt með því að rýna í like-in.

Við like-um öll eitt­hvað á Facebook. Við erum kannski búin að átta okkur á að það er hvorki töff né við­ur­kennt að like-a allt sem við sjáum, sum okkar eru kannski hætt að like-a nokkurn skap­aðan hlut og fylgj­umst bara með vinum okkar úr staf­rænum skugga. Aðrir eru hættir á Facebook, búin að gef­ast upp á sam­fé­lags­njó­snum banda­rískra stór­fyr­ir­tækja.

En við höfum öll like-að.

Upplýsingar með like-i

Facebook er lang stærsti sam­fé­lags­mið­ill í heimi með nærri tvo millj­arða virkra not­enda (miðað við tölur í apríl 2017). Til sam­an­burðar eru virkir not­endur á Twitter aðeins 319 millj­ónir.

Við, virku not­end­urnir, nálg­umst Facebook á allt öðrum for­sendum en fyr­ir­tækið nálg­ast not­endur. Það má ætla að flest okkar hafi stofnað reikn­ing á Facebook með það í huga að tengj­ast vinum og kunn­ingjum, deila hug­myndum og reynslu, birta myndir og sýna öðrum.

Gagnvart Facebook eru allar aðgerðir okkar upp­lýs­ingar um okkur sjálf. Hvert like geymir upp­lýs­ingar um áhuga þinn, hvað þú vilt sjá og eftir hverju þú berð þig.

Þessar upp­lýs­ingar sem Facebook safnar um þig eru eign Facebook, fyr­ir­tækis í Banda­ríkj­unum sem lýtur banda­rískum lögum. Við höfum öll sam­þykkt skil­mála Facebook með því að ger­ast not­endur á sam­fé­lags­miðl­inum. Þetta er hins vegar ekki aðeins bundið við not­endur á Facebook, heldur einnig við aðra sam­fé­lags­miðla.

[adspot]

Facebook á fleiri verð­mætar upp­lýs­ingar um okkur. Má þar til dæmis nefna upp­lýs­ingar um áhuga­málin okkar sem við höfum skráð sam­visku­sam­lega í prófíl­inn okkar, um vinn­una okkar og vinnu­fé­laga, um námið okkar, fjöl­skyld­una okkar, hvert við höfum ferð­ast í heim­inum (nákvæm­lega) og hversu hratt við hlaupum fimm kíló­metra.

Út frá öllu þessu gagna­safni er hægt draga nákvæmar álykt­anir um hver við erum, hvernig okkur líður hverju sinni og hvaða skoð­anir við höfum á ólík­leg­ustu hlutum. Í rann­sókn sem gerð var við Cambridge-háskóla í Bret­landi og kynnt árið 2015 kemur fram að vit­vélar geti dregið nákvæm­ari álykt­anir um þig sem ein­stak­ling en nán­ustu vinir og fjöl­skylda þín, ef vél­arnar eru mataðar með like-unum þínum.

Rann­sóknin sýnir fram á að gervi­greind geti spáð nákvæmar fyrir um per­sónu­leika ein­stak­lings en vinnu­fé­lagi út frá 10 like-um. Með 70 like-um getur tölvan greint per­sónu­leika betur en náin vinur eða með­leigj­andi, með 150 like-um tókst tölv­unni betur til en for­eldrar eða systkin og maki fellur á próf­inu ef gervi­greindin fær að vinna úr 300 like-um.

Í krafti þess­ara upp­lýs­inga hefur Facebook sagst ætla að tækla ýmis konar sam­fé­lags­mein. Í byrjun árs setti Facebook saman teymi fólks sem setur sig í sam­band við fólk sem er í áhættu­hópi um að fremja sjálfs­morð. Þá hefur Facebook sagst geta útrýmt áróðri hryðju­verka­manna með því að beita gögn­unum.

Það var svo fyrir rúmu ári síðan sem Facebook hóf að bjóða upp á fleiri val­mögu­leika við like-ið. Hægt er að hengja til­finn­ingar við færslur á sam­fé­lags­miðl­inum og greina þannig ítar­legar frá við­brögðum sínum við yfir­lýs­ingum, hlekkjum eða myndum. Þetta gerir gögn Facebook vit­an­lega mun verð­mæt­ari.

Bergmálið

Þessi gagna­söfn eru notuð til þess að dreifa til okkar efni. Hér fara hlut­irnir að verða óljós­ari því Facebook passar vel upp á algórit­man – vél­ina sem knýr Facebook – og gefur ekk­ert upp um hvernig og hvaða upp­lýs­ingar búa að baki sjálf­virkum staf­rænum ákvörð­unum um hvað við fáum að sjá í frétta­veit­unni (e. Newsfeed).

Í hvert ein­asta sinn sem þú opnar Facebook fer vélin í gang. Hún skoðar allt efnið sem vinir þínir hafa sett á vef­inn und­an­farnar vikur, flettir upp öllum sem þú þekkir og í öllum hópum sem þú ert með­limur í og lítur inn á allar síð­urnar sem þú hefur like-að. Til að setja þetta í sam­hengi; Ef þú átt nokkur hund­ruð vini þá geta flett­ing­arnar verið allt að 10.000. Vélin velur síðan þær færslur sem þú ert lík­leg­ust/astur til þess að bregð­ast við eftir sér­stakri og síbreyti­legri for­múlu, og raðar þeim í frétta­veit­una þannig að færslan sem lík­leg­ast er að þér þyki áhuga­verð er efst.

[quote]Vélin velur síðan þær færslur sem þú ert lík­leg­ust/astur til þess að bregð­ast við eftir sér­stakri og síbreyti­legri for­múlu, og raðar þeim í frétta­veit­una þannig að færslan sem lík­leg­ast er að þér þyki áhuga­verð er efst.[/quote]Algórit­minn hjálpar okkur þess vegna að skima í gegnum sam­fé­lags­mið­il­inn, reiknar líkur og spáir um hvernig heim­sóknin á Facebook geti orðið sem best og árang­urs­rík­ust. Facebook er þess vegna orð­inn að per­sónu­legum blað­bera fyrir hvern og einn, sem flokkar allar til­tækar upp­lýs­ingar sem þú hefur beðið um í þá röð sem lík­leg­ast er að þér þyki not­hæfar hverju sinni.

Í grunn­inn er þetta það sama og aðrir „snjallir“ miðlar gera. Nýverið gerði und­ir­rit­aður þau mis­tök að draga þá ályktun að Kjarninn.is væri „leit­ar­véla­væn­asti frétta­vefur lands­ins“ því umfjall­anir Kjarnans birt­ust ofar í leit­ar­nið­ur­stöðum Google en nið­ur­stöður sem vís­uðu aðra miðla. Skýr­ingin er vit­an­lega sú að ég er starfs­maður Kjarnans og heim­sæki Kjarnann.is oft á dag. Google Chrome-vafr­inn skráir það sam­visku­sam­lega í gagna­grunn og leit­ar­vélin ýtir þeim nið­ur­stöðum frekar að mér. Google líkar ekk­ert betur við Kjarnann en Vísi eða Morg­un­blaðið. Google hefur sér­sniðið leit­ar­nið­ur­stöður fyrir ein­staka not­endur síðan árið 2009.

Þetta er fyr­ir­bæri sem hefur verið kallað „berg­máls­her­bergið“ (e. echo chamber). Kenn­ingin gengur út á það að ef tölvur velja allar upp­lýs­ing­arnar sem hafðar eru fyrir fólki eftir því hvað það líkar við, hvaða skoð­anir það hefur og hvaða fólk það umgengst munu ein­stak­lingar aðeins heyra berg­mál eigin skoð­ana og sjá speg­il­mynd eigin til­veru.

Í TED-fyr­ir­lestri var­aði Eli Pariser, inter­net­gúrú og höf­undur bók­ar­innar What the Internet is Hiding from You, við þess­ari síu. Sjálfur seg­ist hann vera vinstri sinn­aður en að hann hafi haft gaman af því að sjá skoð­anir hægri sinn­aðra vina sinna. Einn góðan veð­ur­dag hafi skoð­anir þeirra horfið. Skýr­ing­una segir hann vera vegna þess að hann smellti aldrei á hlekki hægri sinn­aðra vina sinna, like-aði ekki hug­myndir þeirra og heim­sótti aldrei prófíl­ana þeirra.

Vandinn var að Facebook hafði tekið ákvörðun fyrir Pariser um að hreinsa færslur þeirra sem hann var ekki sam­mála úr frétta­veit­unni. Það kom engin meld­ing um það. Úr verður að Facebook er orð­inn þinn eigin flokks­mið­ill. Maður heyrir bara það sem maður vill heyra. Hug­myndir þínar fá þá aldrei neitt áreiti frá öðrum hug­myndum.

Virði upplýsinganna

Á upp­lýs­inga­öld eru upp­lýs­ingar verð­mæt­ustu eignir fyr­ir­tækja. Verð­mætasta eign Facebook, og það sem hefur gert stofn­anda fyr­ir­tæk­is­ins Mark Zuckerberg að millj­arða­mær­ingi, eru upp­lýs­ing­arnar sem fyr­ir­tækið hefur safnað og safnar enn um not­endur.

Facebook býður þessar upp­lýs­ingar til sölu handa aug­lýsendum sem vilja kom­ast í tengsl við ákveð­inn mark­hóp, eða fyr­ir­tæki eins og Kjarnann sem vill dreifa efni til stærri hóps en þeirra sem hafa þegar „like-að“ Facebook-síðu fjöl­mið­ils­ins.

Þeir sem hafa Facebook í sím­anum og hafa leyft for­rit­inu að sækja stað­setn­ingu not­anda geta, til dæmis, átt von á að sjá aug­lýs­ingu frá nýja veit­inga­staðnum sem opn­aði í næsta húsi við vinnu­stað­inn.

Þegar öllu er á botn­inn hvolft eru Facebook og aðrir sam­fé­lags­miðlar vef­þjón­usta sem er orðin mið­punkt­ur­inn í allri okkar vef­hegðun. Hún er þægi­leg og hönnuð til þess að gagn­rýna ekki lífs­skoð­anir fólks. Þjón­ustan er hins vegar ekki frí heldur borgar maður með upp­lýs­ingum um sjálfan sig, hvort sem okkur líkar það betur eða verr.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár