Minnkandi atvinnuleysi en hindranir og áskoranir fyrir hendi

Atvinnu­leysi í Banda­ríkj­unum mælist nú 5,3 pró­sent og hefur minnkað um 0,9 pró­sentu­stig á einu ári og um rúm­lega tvö pró­sentu­stig á tveimur árum. Þessum tölum er sér­stak­lega fagnað í pistli Jason Furman, for­manni efna­hags­ráð­gjafa­hóps rík­is­stjórnar Barack Obama, á vef Hvíta húss­ins en þær þykja stað­festa rétta stefnu Obama í efna­hags­málum, frá því hann tók við stjórn­ar­taumunum í nóv­em­ber 2008. Áherslan hefur verið á að ná niður atvinnu­leysi og styrkja aðstæður fyrir lítil og með­al­stór fyr­ir­tæki, meðal ann­ars með övar­andi aðgerðum. Margt bendir til þess að þetta hafi heppn­ast, einkum sé horft til síð­ustu tveggja ára.

Einkageirinn spyrnir sér frá botni


Sér­stak­lega eru það góðar tölur í einka­geir­anum sem stað­festa að tölu­verð sókn er nú í banda­ríska hag­kerf­inu. Um 210 þús­und störf urðu til í júlí í einka­geir­anum og sé horft yfir síð­ustu sautján mán­uði þá hefur fimmtán sinum tek­ist að skapa meira en 200 þús­und ný störf á mán­uði, sem er sögu­lega mikið og eitt­hvað sem stjórn­völd hafa horft til sem mark­mið. Þetta eru stórar tölur enda banda­ríska hag­kerfið risa­vaxið. Það er með árlega lands­fram­leiðslu á mann upp á ríf­lega 53 þús­und Banda­ríkja­dali, jafn­virði um sjö millj­óna króna, og helsti styrkur þess felst í miklum sveigj­an­leika, fjöl­breyti­leika og öfl­ugri nýsköpun. Auk þess eru mörg stærstu fyr­ir­tæki heims­ins, sem ekki aðeins skapa störf í Banda­ríkj­unum heldur um allan heim, með rann­sóknar- og þró­un­ar­hluta sinn stað­settan í Banda­ríkj­unum sem hefur mikil marg­feld­is­á­hrif vítt og breitt um hag­kerfið.

[caption id="attachment_35991" align="alignnone" width="717"] Myndin sýnir hvernig ný störf hafa orðið til einka­geir­anum í Banda­ríkj­unum, frá því fjár­málakreppan skall á af miklum þunga fyrir mörg lítil og með­al­stór fyr­ir­tæki. Mynd: Vefur Hvíta húss­ins.[/caption]

Myndin sýnir hvernig ný störf hafa orðið til einkageiranum í Bandaríkjunum, frá því fjármálakreppan skall á af miklum þunga fyrir mörg lítil og meðalstór fyrirtæki. Mynd: Vefur Hvíta hússins.
Myndin sýnir hvernig ný störf hafa orðið til einka­geir­anum í Banda­ríkj­unum, frá því fjár­málakreppan skall á af miklum þunga fyrir mörg lítil og með­al­stór fyr­ir­tæki. Mynd: Vefur Hvíta húss­ins.

Eftir mikla erf­ið­leika í kjöl­far fjár­málakrepp­unnar á árunum 2007 til og með 2009 þá hefur einka­geir­inn náð að spyrna sér frá botni, ef svo má að orði kom­ast. Atvinnu­leysi fór upp í tíu pró­sent þegar verst lét, á árunum 2009 og 2010, og yfir­skuld­setn­ing varð mikið vanda­mál, ekki síst í iðn­aði, þar sem eft­ir­spurn dróst hratt saman en kostn­aður fylgdi ekki nægi­lega hratt með niður á við.

Langtímaatvinnuleysi festir rætur


Þrátt fyrir að hlut­irnir séu á réttri leið eru ýmis atriði ekki komin í lag, þegar rýnt er í atvinnu­leysið. Þannig hefur lang­tíma­at­vinnu­leysi fest rætur víða í Banda­ríkj­unum og er 34 pró­sent hærra en það var fyrir fjár­málakrepp­una. Þá sýna mæl­ingar einnig að atvinnu­leysi þar sem horft er sér­stak­lega til þeirra sem eru að vinna hluta­starf en myndu vilja vinna í fullri vinnu, er fjórtán pró­sent hærra en það var fyrir fjár­málakrepp­una. Konur eiga einnig í meiri erf­ið­leikum með að fá vinnu nú en fyrir fjár­málakrepp­una og sömu­leiðis spænsku mæl­andi fólk, að því er segir í stöðu­mati Hvíta húss­ins frá því fyrr í dag.

The economy added 215,000 jobs in July—mark­ing a record-break­ing 65 consecutive months of pri­vate-sector job growth.


— Barack Obama (@BarackObama) August 7, 2015


Áskoranir framundan


Þrátt fyrir að atvinnu­leysið sé að minnka, og horf­urnar séu aðrar og betri en þær voru eftir þreng­ing­arnar á fjár­mála­mark­aði, þá stendur banda­ríska hag­kerfið frammi fyrir miklum áskor­unum. Lífaldur er að aukast sífellt og er nú í 78,9 ár. Með­al­aldur er sömu­leiðis að hækka, en hann er nú 37,6 ár, en í sam­an­burði við margar aðrar þjóðir þykir hann ásætt­an­legur. Í Bret­landi er hann lið­lega 40 ár og á Íslandi er hann næstum alveg sá sami, eða 37,5 ár, sam­kvæmt gögnum Hagstofu Íslands. Framundan, horft til næstu tíu til fimmtán ára, er því þörf fyrir mikla fjölgun starfa og hraða aðlögun vinnu­mark­að­ar­ins að auk­inni atvinnu­þátt­töku fólks. Líf­eyr­is­s­kerfið, hvort sem er að hálfu einka­rek­inna sjóða eða hins opin­bera, þarf að laga sig að þess­ari stöðu. Fyrir þjóð sem telur tæp­lega 320 millj­ónir íbúa, sem búa í inn­byrðis afar ólíkum ríkjum, með mis­mun­andi stoðir undir efna­hagnum á hverjum stað, er þetta mikil áskorun.

Örvunaðgerðir - Ganga þær endalaust?


Að baki árangrinum býr einnig mark­viss og skýr stefna Seðla­banka Banda­ríkj­anna um að örva hag­kerfið með ódýru fjár­magni. Vöxtum hefur verið haldið við núllið í sjö ár og atvinnu­lífið - ekki síst fjár­mála­kerfið - hefur notið góðs af þeirri stöðu. En til lengdar litið mun hag­kerfið ekki geta treyst á örv­un­ar­að­gerðir hins opin­bera, að því er Janet Yellen, seðla­banka­stjóri Banda­ríkj­anna, hefur látið hafa eftir sér. Hún reiknar nú með því að vextir taki að hækka síðar á árinu. En eins og svo oft þegar seðla­banka­stjórar eru að ræða um hlut­ina, þá eru fyr­ir­var­arnir margir. Óvissa sé alltaf fyrir hendi og að aðstæður geti skyndi­lega breyst. Þannig hljóm­uðu svör hennar í það minnsta eftir að hún var spurð út í fram­tíð­ar­horfur á fundi í Cleveland, 10. júlí síð­ast­lið­inn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár