Umræða um málefni innflytjenda gengur fram af þingmanni – Skömm að tala málið niður

Þing­maður Vinstri grænni segir að Íslend­ingar eigi að sýna þann þroska að geta sinnt útlend­inga­málum með almenni­legum hætti og gera það sem best – „við sem rík þjóð“. Umræða Mið­flokks­manna hafi gengið fram af henni í gær.

Lilja Rafney Magnúsdóttir, þingmaður VG.
Lilja Rafney Magn­ús­dóttir, þing­maður VG. Mynd: Bára Huld Beck

„Við eigum að sýna þann þroska að geta gert þetta með almenni­legum hætti og gera það sem best, við sem rík þjóð, en snúa þessu máli ekki á hvolf, að þarna sé ein­hver stór­hætta á ferð­inni, að við séum að opna fyrir óheftan flutn­ing fólks hingað víðs vegar úr heim­inum. Við erum að sam­ræma þessa þjón­ustu, vinna þetta af okkar bestu getu og eigum að gera það. Ég tel það vera skömm að tala þetta mál niður.“

Þetta sagði Lilja Rafney Magn­ús­dóttir, þing­maður Vinstri grænna, undir liðnum störf þings­ins á Alþingi í dag. Vísar hún í umræðu sem átti sér stað á Alþingi í gær um stjórn­ar­frum­varp sem snýr að því að útvíkka hlut­verk Fjöl­menn­ing­ar­set­urs og auka fjár­fram­lög til stofn­un­ar­innar.

Mið­flokks­menn héldu uppi, því sem þing­maður Vinstri grænna Kolbeinn Ótt­ars­son Proppé kall­aði mál­þóf, í gær en þeir hafa lýst yfir áhyggjum af því að laga­breyt­ingin fjölgi inn­flytj­endum á Íslandi.

Í frétt RÚV um málið í gær kom fram að Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, for­maður Mið­flokks­ins, hefði sagt það ljóst að hæl­is­leit­enda­kerfið á Íslandi væri mis­notað. „Enda ekki hægt að gera ráð fyrir að glæpa­gengi sem taka aleig­una af fólki og setja það í lífs­hættu muni vilja fylgja í öllum til­vikum settum reglum,“ sagði hann og benti á að ef kerfið auð­veld­aði mis­notkun bitn­aði það mest á þeim sem þurfa á hjálp að halda.

„Og þess vegna þurfum við við hönnun mót­töku­kerfis að setja í for­gang að það sé til þess fallið að aðstoða þá sem þurfa mest á hjálp­inni að halda.“ Með frum­varp­inu væri rík­is­stjórnin að gera sig að jað­ar­hópi í þessum mála­flokki. „Því í Danmörku er sam­staða frá hægri til Sosí­alde­mókrata, og raun lengra til vinstri, um að breyt­inga sé þörf. Og þær breyt­ingar ganga þvert á það sem lagt er til hérna,“ sagði Sig­mundur Davíð.

Staða hælisleitenda og flóttamanna alþjóðavandi

Lilja Rafney gaf lítið fyrir þessa orð­ræðu Mið­flokks­manna í máli sínu á þingi í dag. „Ég verð að við­ur­kenna það að sú mikla umræða sem hér hefur farið fram und­an­far­inn sól­ar­hring um mál­efni inn­flytj­enda gengur fram af mér. Þetta er gott mál sem er verið að leggja fram með yfir­gnæf­andi stuðn­ingi hér á Alþingi. En það virð­ist vera að einn flokkur ákveði að leggja þetta mál upp þannig að það sé rétt að sá ótta og tor­tryggni gagn­vart því við almenn­ing í land­inu. Þarna er verið að gera eitt­hvað sem er ekki gott í sam­hengi hlut­anna,“ sagði hún.

Benti hún á að staða hæl­is­leit­enda og flótta­manna væri alþjóða­vandi og við sem þjóð bærum sið­ferð­is­legar skyldur til að taka okkar skerf og gera það sem við getum til að hafa þessi mál í sem bestu lagi hér heima.

„Það erum við að gera með því frum­varpi sem hér liggur fyrir um mál­efni inn­flytj­enda. Við erum að tengja Fjöl­menn­ing­ar­setrið, sem hefur sinnt sínu hlut­verki vel og hefur verið stað­sett á Ísafirði, og víkka það núna inn á höf­uð­borg­ar­svæðið, það er verið að sam­ræma mót­töku kvótaflótta­manna og hæl­is­leit­enda og að Fjöl­menn­ing­ar­setur geti veitt sem bestar upp­lýs­ingar um þá þjón­ustu sem er í boði til þeirra sveit­ar­fé­laga sem hafa verið að taka á móti kvótaflótta­mönnum og auð­vitað heilt yfir gagn­vart inn­flytj­endum hér á Íslandi,“ sagði Lilja Rafney.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Útlendingamál

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár