„Neyðarbrautinni“ hefur verið endanlega lokað

„Þristinum“ hefur verið lagt við enda neyðarbrautarinnar svokölluðu. Ekki þarf að færa vélina aftur vegna þess að flugbrautin þarf að fara í notkun því henni hefur verið lokað endanlega.
„Þrist­inum“ hefur verið lagt við enda neyð­ar­braut­ar­innar svoköll­uðu. Ekki þarf að færa vél­ina aftur vegna þess að flug­brautin þarf að fara í notkun því henni hefur verið lokað end­an­lega. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Isavia hefur lokað norð­austur-suð­vestur flug­braut­inni á Reykja­vík­ur­flug­velli sam­kvæmt fyr­ir­mælum frá inn­an­rík­is­ráðu­neyt­inu í kjöl­far dóms Hæsta­réttar um málið. Isavia hefur sent inn­an­rík­is­ráðu­neyt­inu og Reykja­vík­ur­borg stað­fest­ingu á þessu. Sam­göngu­stofu hefur verið falið að end­ur­skoða skipu­lag Reykja­vík­ur­flug­vallar í kjöl­far lok­un­ar­innar í sam­ræmi við lög um loft­ferðir.

Fyr­ir­mæli ráðu­neyt­is­ins og stað­fest­ing Isavia á lok­un­inni voru send 30. júní. Í skila­boðum sem flug­mönnum er skylt að skoða áður en farið er um flug­völl­inn, kemur fram að flug­braut­inni hafi verið lokað end­an­lega. Skila­boðin um end­an­lega lokun, svokölluð NOTAM, eru dag­sett 4. júlí.

[adspot]

Kjarninn greindi frá því á dög­unum að flug­braut­inni, sem í umræð­unni um lokun flug­vall­ar­ins í Vatns­mýri hefur hlotið heitið „neyð­ar­brautin“, hafi verið lokað í allt sumar, eða þar til 15. sept­em­ber. Ástæðan hafi ekki verið að beiðni ráðu­neyt­is­ins heldur vegna þess hversu lítið brautin er notuð á sumrin. Douglas DC3-flug­vél Icelandair hafi þess vegna verið lagt við braut­ar­end­ann í norðri þar sem fram­kvæmdir eru hafnar við fyr­ir­hug­aða upp­bygg­ingu íbúða­hverfis í Vatns­mýr­inni.

Hæsti­réttur stað­festi á dög­unum dóm hér­aðs­dóms Reykja­víkur um að inn­an­rík­is­ráðu­neyt­inu væri skylt að loka flug­braut­inni í sam­ræmi við sam­komu­lag sem Hanna Birna Krist­jáns­dóttir, þáver­andi ráð­herra flug­mála, gerði við Reykja­vík­ur­borg haustið 2013. Þar var því lofað að flug­braut­inni yrði lokað. Reykja­vík­ur­borg réðst í kjöl­farið í upp­bygg­ingu íbúða­hverfis við nyrðri enda braut­ar­innar. Þegar Ólöf Nordal sett­ist svo í stól inn­an­rík­is­ráð­herra var ákvörð­un­inni um lokun flug­braut­ar­innar snúið við. Reykja­vík­ur­borg höfð­aði þá mál við ríkið sem hæsti­réttur hefur dæmt í eins og áður segir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár