„Neyðarbrautinni“ lokað í sumar – Enn beðið eftir fyrirmælum frá ráðuneytinu um lokun

Nú eru aðeins tvær flugbrautir opnar á Reykjavíkurflugvelli.
Nú eru aðeins tvær flug­brautir opnar á Reykja­vík­ur­flug­velli. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Norð­austur-suð­vest­ur­flug­braut­inni á Reykja­vík­ur­flug­velli hefur verið lokað í allt sumar. Þetta stað­festir upp­lýs­inga­full­trúi Isavia. Flug­mönnum var gert við­vart um lok­un­ina í morgun. Flug­brautin hefur hlotið heitið „neyð­ar­brautin“ í umræð­unni í tengslum við lokun hennar og brott­hvarf flug­vall­ar­ins úr Vatns­mýr­inni.

Í skila­boð­unum, svoköll­uðu NOTAM sem flug­mönnum er skylt að skoða áður en farið er um flug­völl­inn, kemur fram að flug­braut­inni hafi verið lokað í morgun klukkan 9:53 og að hún opni ekki aftur fyrr en á mið­nætti aðfar­arnótt 15. sept­em­ber.

Samkvæmt upp­lýs­ingum frá Isavia er lok­unin ekki að beiðni inn­an­rík­is­ráðu­neyt­isns. Braut­inni hafi aðeins verið lokað í sumar vegna þess hversu lítið notuð hún er. Enn er beðið eftir fyr­ir­mælum frá ráðu­neyt­inu um algera lokun flug­braut­ar­innar. Óvíst er hvenær þau fyr­ir­mæli muni ber­ast, en sam­kvæmt Guðna Sig­urðs­syni, upp­lýs­inga­full­trúa Isavia, þá er gert ráð fyrir að þau komi fljót­lega.

Hæsti­réttur stað­festi á dög­unum dóm hér­aðs­dóms Reykja­víkur um að inn­an­rík­is­ráðu­neyt­inu væri skylt að loka flug­braut­inni í sam­ræmi við sam­komu­lag sem Hanna Birna Krist­jáns­dóttir, þáver­andi ráð­herra flug­mála, gerði við Reykja­vík­ur­borg haustið 2013. Þar var því lofað að flug­braut­inni yrði lokað. Reykja­vík­ur­borg réðst í kjöl­farið í upp­bygg­ingu íbúða­hverfis við nyrðri enda braut­ar­innar. Þegar Ólöf Nordal sett­ist svo í stól inn­an­rík­is­ráð­herra var ákvörð­un­inni um lokun flug­braut­ar­innar snúið við. Reykja­vík­ur­borg höfð­aði þá mál við ríkið sem hæsti­réttur hefur dæmt í eins og áður segir.

Samkvæmt upp­lýs­ingum frá Isavia er brautin ofboðs­lega lítið notuð á sumrin. Hún sé í mun meiri notkun í skíta­veðrum og ákveðnum vind­áttum sem oftar ganga yfir Reykja­vík á vet­urnar. Þá er flug­brautin oft notuð sem flug­véla­stæði á sumrin. Þar stendur til að mynda Douglas D3-vél Icelandair, oft­ast nefnd Þrist­ur­inn, við braut­ar­endan eins og er.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár