Unnur Brá leiðir stjórnarskrárvinnu

For­sæt­is­ráð­herra hefur falið Unni Brá Kon­ráðs­dóttur að vera verk­efn­is­stjóri við end­ur­skoðun stjórn­ar­skrár­innar.

Unnur Brá Konráðsdóttir var áður forseti Alþingis.
Unnur Brá Kon­ráðs­dóttir var áður for­seti Alþingis. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Unnur Brá Kon­ráðs­dóttir, fyrr­ver­andi for­seti Alþingis og þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, verður verk­efna­stjóri vinnu við end­ur­skoðun stjórn­ar­skrár­innar. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá for­sæt­is­ráðu­neyt­inu.

Í áætlun sem for­sæt­is­ráð­herra hefur kynnt um fyr­ir­komu­lag stjórn­ar­skrár­vinnu næstu árin segir: „Verk­efn­is­stjór­inn hefur heild­ar­yf­ir­sýn yfir verk­efnið og tengir saman helstu aðila sem að því koma. Hann er málsvari verk­efn­is­ins og leit­ast við að tryggja skil­virkan fram­gang þess. Hann starfar í umboði for­sæt­is­ráð­herra, er tengiliður milli ráð­herra og sér­fræð­inga­nefndar og nýtur aðstoðar skrif­stofu lög­gjaf­ar­mála í for­sæt­is­ráðu­neyt­inu.“ Sér­fræð­inga­nefndin verður sett á lagg­irnar í sam­ráði þeirra flokka sem full­trúa eiga á Alþingi.

Í til­kynn­ing­unni er haft eftir Katrínu Jak­obs­dóttur for­sæt­is­ráð­herra að mik­ill akkur sé í því að fá reynslu­mik­inn lög­fræð­ing með bak­grunn úr stjórn­málum, sem að auki njóti trausts þvert á flokka og í sam­fé­lag­inu, til að stýra þessu vanda­sama verk­efni næstu árin. „Mark­miðið er að ná fram áföngum við heild­ar­end­ur­skoðun stjórn­ar­skrár­innar á þessu kjör­tíma­bili og því næsta. Við munum leita allra leiða til að sjón­ar­mið almenn­ings vísi veg­inn í þess­ari vinnu og sem flestir geti tekið þátt í að móta breyt­ing­ar­til­lögur. Fram­tíð­ar­sýnin er að stjórn­ar­skráin end­ur­spegli sem best sam­eig­in­leg grunn­gildi þjóð­ar­innar og renni traustum stoðum undir lýð­ræð­is­legt rétt­ar­ríki þar sem vernd mann­rétt­inda er tryggð,“ segir Katrín.

Unnur Brá lauk emb­ætt­is­prófi í lög­fræði frá Háskóla Íslands árið 2000. Hún tók sæti á Alþingi fyrir Sjálf­stæð­is­flokk­inn árið 2009 en hafði áður meðal ann­ars starfað sem sveit­ar­stjóri Rangár­þings eystra. Unnur Brá gegndi for­mennsku í alls­herj­ar­nefnd 2013-2016 og var for­seti Alþingis árið 2017. Nú situr hún á Alþingi sem vara­þing­maður.

Unnur Brá mun hefja störf í for­sæt­is­ráðu­neyt­inu 1. apríl næst­kom­andi. Hún verður ráðin sem aðstoð­ar­maður rík­is­stjórnar, sam­kvæmt lögum um Stjórn­ar­ráð Íslands.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár