Morgunblaðsmenn ekki spenntir fyrir því að ræða auglýsingu Samherja við félagsmenn BÍ

Í rit­stjórn­ar­dálki í Morg­un­blað­inu segir að það „gæti orðið bið á því“ að yfir­menn blaðs­ins þekk­ist boð um að mæta á fund félaga í Blaða­manna­fé­lag­inu til að ræða sið­ferði­leg álita­efni í tengslum við birt­ingu umdeildrar aug­lýs­ingar frá Samherja á mbl.is.

Samkvæmt því sem segir í nafnlausum skoðanadálki Morgunblaðsins í dag „gæti orðið bið á því“ að blaðið sendi fulltrúa sinn á fund félaga í BÍ til þess að ræða umdeilda skoðanaauglýsingu Samherja sem beindist gegn fréttamanninum Helga Seljan.
Samkvæmt því sem segir í nafn­lausum skoð­ana­dálki Morg­un­blaðs­ins í dag „gæti orðið bið á því“ að blaðið sendi full­trúa sinn á fund félaga í BÍ til þess að ræða umdeilda skoð­ana­aug­lýs­ingu Samherja sem beind­ist gegn frétta­mann­inum Helga Seljan. Mynd: Bára Huld Beck

„Það gæti orðið bið á því“ að yfir­menn Morg­un­blaðs­ins komi á fund með félögum í Blaða­manna­fé­lagi Íslands (BÍ) til þess að ræða aug­lýs­ingu Samherja sem birt­ist á vef mbl.is á dög­unum og vís­aði inn á mynd­band sem er hluti af her­ferð sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæk­is­ins gegn frétta­mann­inum Helga Seljan.

Þetta kemur fram í Stak­steinum Morg­un­blaðs­ins í dag, rit­stjórn­ar­dálki sem er á ábyrgð rit­stjóra blaðs­ins, Haraldar Johann­es­sen og Davíðs Odds­sonar. Þar eru skoð­anir ann­arra iðu­lega teknar upp orð­rétt og í dag er þar vísað til pistils blogg­ar­ans Páls Vil­hjálms­sonar um það sem hann kallar „RÚV-til­ræði gegn Morg­un­blað­inu.“

Páll sagði í pistli sínum að nýr for­maður BÍ, Sigríður Dögg Auð­uns­dóttir frétta­maður á Rík­is­út­varp­inu, hefði gert það að sínu fyrsta verki að „vega að lífs­af­komu blaða­manna Morg­un­blaðs­ins vegna þess að blaðið birti aug­lýs­ingu frá Samherja“. Í nið­ur­lagi Stak­stein­anna, eftir að pistli Páls sleppir, segir að for­maður Blaða­manna­fé­lags­ins eigi „enga kröfu“ til skýr­inga á birt­ingu aug­lýs­ing­ar­innar.

Stjórn Blaða­manna­fé­lags­ins sendi bréf á fram­kvæmda­stjóra og aug­lýs­inga­stjóra fyr­ir­tæk­is­ins 1. maí, þar sem meðal ann­ars sagði að birt­ing aug­lýs­ing­ar­innar hefði sett blaða­menn mbl.is í „óvið­un­andi stöðu“ sökum þess að her­ferð Samherja væri ekki ein­ungis her­ferð „gegn einum frétta­manni eða einni rit­stjórn“ heldur beind­ist hún gegn „öllum blaða­mönnum og öllum rit­stjórnum, þar á meðal blaða­mönnum á mbl.is.“

[adspot]

Óskaði stjórn BÍ eftir því að stjórn­endur Árvakurs myndu taka til­lit til þess­ara sjón­ar­miða og fleiri til, ef sú staða kæmi aftur upp að aug­lýsandi óskaði eftir birt­ingu aug­lýs­ingar þar sem vegið væri að starfs­heiðri frétta­manns eða frétta­manna.

Einnig óskaði félagið eftir því að full­trúi Árvakurs mætti á umræðu­fund með félags­mönnum BÍ sem halda á fimmtu­dags­kvöldið 6. maí, þar sem umræðu­efnið verður meðal ann­ars „sið­ferði­leg álita­efni í tengslum við birt­ingu aug­lýs­inga í íslenskum miðlum og ábyrgð fjöl­miðla.“

Miðað við nið­ur­lag Stak­stein­anna í Morg­un­blað­inu í dag er ekki lík­legt að stjórn­endur hjá útgáfu­fyr­ir­tæk­inu, sem auk Morg­un­blaðs­ins og mbl.is heldur úti útvarps­stöð­inni K100, mæti á fund félags­manna BÍ til þess að ræða þau sið­ferði­legu sjón­ar­mið varð­andi birt­ingu aug­lýs­ing­ar­innar sem hafa verið mikið rædd af hálfu fag­fólks í fjöl­miðlum und­an­farna daga.[links]

Vert er að taka fram að báðir trún­að­ar­menn Blaða­manna­fé­lags­ins hjá Árvakri sögðu sig þeim störfum á föstu­dag. Annar þeirra vís­aði til þess það væri sökum þess að stjórnin hefði farið út fyrir verk­svið sitt með því að gagn­rýna birt­ingu aug­lýs­ingar Samherja.

Ekki eru þó allir í Hádeg­is­móum á einu máli um það, en Kjarninn hefur heim­ildir fyrir því að rík óánægja hafi verið með birt­ingu aug­lýs­ing­ar­innar hjá hluta blaða­manna á rit­stjórn mbl.is og Morg­un­blaðs­ins.

Forsætisráðherra telur ástæðu til að ræða um skoðanaauglýsingar

Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra sagði við Rík­is­út­varpið í gær að hún teldi ástæðu til að ræða hvort breyta þyrfti reglu­gerð um skoð­ana­aug­lýs­ingar hér á landi.

Sá munur er á skoð­ana­aug­lýs­ingum og hefð­bundnum aug­lýs­ingum, við­skipta­boðum, að sá sem setur fram skoð­ana­aug­lýs­ingu er ekki að setja fram neitt til­boð um sölu á vöru eða þjón­ustu, heldur einmitt, að koma skoðun sinni á fram­færi.

„Skoð­ana­aug­lýs­ingar eru í raun­inni ekki hluti af því reglu­verki sem við erum með almennt um aug­lýs­ingar. Þetta hefur auð­vitað vakið mikla athygli og mikil við­brögð í sam­fé­lag­inu og sjálf hef ég sagt að mér finn­ist þetta of langt gengið í slíkum aug­lýs­ingum en við erum reyndar líka með fleiri dæmi um slíkar skoð­ana­aug­lýs­ingar sem eru í gangi núna og hafa til að mynda verið um borg­ar­stjór­ann í Reykja­vík,“ sagði Katrín við RÚV.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár