Gefur lítið fyrir umræðu á sam­fé­lags­miðlum um íslensku­kunn­áttu henn­ar

Nýr for­maður Eflingar segir að það að hún tali ekki íslensku verði ekki vanda­mál í hennar störfum – en hún skilur íslensku. Fólk af erlendum upp­runa sé hluti af sam­fé­lag­inu og eigi rétt á því að taka þátt í því.

Agnieszka Ewa Ziólkowska tók við sem formaður Eflingar eftir að Sólveig Anna Jónsdóttir sagði upp störfum.
Agnieszka Ewa Ziólkowska tók við sem for­maður Eflingar eftir að Sólveig Anna Jóns­dóttir sagði upp störfum. Mynd: Bára Huld Beck

„Þetta var auð­vitað mjög erfitt fyrst – að taka að sér öll þessi verk­efni vegna þess að aðstæður eru mjög óvenju­leg­ar. Þó er ég mjög ánægð með það að fá að þjón­usta félags­menn Efl­ingar en meira en helm­ingur 27.000 félags­manna Efl­ingar er af erlendu bergi brot­inn.“

Þetta segir Agnieszka Ewa Ziólkowska, for­maður Eflingar, þegar hún er spurð hvernig henni líði með það að taka óvænt við kefl­inu sem for­maður en hún var í ítar­legu við­tali við Kjarnann um helg­ina.

Hún seg­ist enn fremur vera ánægð með að for­maður Efl­ingar sé nú aðfluttur vegna þess að þá hafi fólk í þeim hóp full­trúa úr sínum röð­um.

Skilur íslensku

Agnieszka gefur lítið fyrir umræðu á sam­fé­lags­miðlum um íslensku­kunn­áttu henn­ar.

„Í fyrsta lagi vinna útlend­ingar á Íslandi flestir í lág­launa­störfum – og vinna innan um aðra útlend­inga sem einnig tala enga íslensku. Í öðru lagi skil ég íslensku og ég trúi því að það sé mjög mik­il­vægt að láta íslensk sam­fé­lag gera sér grein fyrir því að útlend­ingar eru hluti af þessu sam­fé­lagi. Við verðum að eiga rétt á því að taka þátt í sam­fé­lag­inu – sama hversu lengi við dveljum hér. Þrátt fyrir að við tölum ekki full­komna íslensku þá eigum við skilið að vera þátt­tak­endur hér.“

Hún telur að þetta sé ekki og verði ekki vanda­mál í hennar störf­um.

Mikilvægt að halda stéttarfélaginu gangandi

Þegar Agnieszka er spurð út í það hverjar áherslur Efl­ingar eru nú varð­andi kom­andi kjara­bar­áttu þá segir hún að þau hafi sömu stefnu­mál og Sól­veig Anna hafði og ein­beiti sér að lág­launa­fólki. „Við viljum halda áfram bar­átt­unni fyrir þetta fólk.“

[links]Hún seg­ist þannig ætla að vera með sömu áherslu­mál og fyrrum for­mað­ur. „Ég sé til þess þessa dag­ana að stétt­ar­fé­lagið nái að starfa með eðli­legum hætti með öllum þeim verk­efnum sem því fylg­ir. Við ein­blínum á að laga þau vanda­mál sem upp hafa komið og passa upp á að félags­menn okkar fái þá þjón­ustu sem þeir þurfa.“

Hvað er mik­il­vægt að þínu mati að leggja áherslu á núna?

„Ég hef verið félags­maður í Efl­ingu megnið af þeim tíma sem ég hef búið á Íslandi. Ég veit hversu mik­il­vægt það er að félags­menn fái þá þjón­ustu sem þeir eiga skil­ið. Ég sé for­manns­emb­ættið sem sam­ein­ing­ar­tákn fyrir félags­menn. Efl­ing verður að geta staðið með þeim þegar þeir þurfa á að halda vegna þess að lág­launa­fólk hefur ekki tök á að ráða lög­fræð­ing til að berj­ast fyrir rétti sín­um. Og trúðu mér, atvinnu­rek­endur ganga stundum allt of langt. Svo þess vegna er svo mik­il­vægt að halda stétt­ar­fé­lag­inu gang­andi – það er okkar mark­mið,“ segir hún.

Hægt er að lesa við­talið við Agnieszka hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár