Lækkun á olíu kemur sér vel - Jafngildir þriggja prósenta launahækkun

Verð­fallið á olíu hefur umtals­verð áhrif á stöðu almenn­ings hér á landi eins og ann­ars staðar, og hald­ist verðið á svip­uðum slóðum og það er nú þá skilar það sér í auknum ráð­stöf­un­ar­tekjum heim­ila sem jafn­gildir ríf­lega þriggja pró­senta launa­hækkun.

Þetta kom fram í erindi dr. Daníels Svav­ars­sonar, for­stöðu­manns hag­fræði­deildar Lands­bank­ans, á fundi um áhrif olíu­verðs­falls­ins að und­an­förnu á efna­hag Íslands og stöðu efna­hags­mála í heim­inum, sem Lands­bank­inn stóð fyrir í morgun.

Miklar sveiflur


Frá því um mitt síð­asta ár hefur verð á olíu­tunn­unni fallið hratt, úr um 110 Banda­ríkja­dölum niður fyrir 60 dali fatið, en und­an­farnar vikur hefur verðið sveifl­ast lít­il­lega í kringum þá tölu.

Þessi mikla nið­ur­sveifla er sú mesta síðan á hápunkti fjár­málakrepp­unnar á árunum 2007 til 2009. Þá hækk­aði verð á olíu fyrst hratt, upp fyrir 140 Banda­ríkja­dali, en féll síðan um nærri 70 pró­sent á örskömmum tíma eftir að eft­ir­spurn í hag­kerfum heims­ins hrundi snögg­lega. Þessi tvö tíma­bil, það er verð­fallið í fjár­málakrepp­unni á árunum 2007 til 2009 og síðan nú á tímum, eru mestu sveiflur sem sést hafa á heims­mark­aði með olíu í það minnsta síð­ustu þrjá­tíu árin.

[caption id="attachment_22015" align="alignnone" width="1103"] Þessi mynd birt­ist með erindi Daníels, en hún sýnir hversu miklar sveiflur hafa ein­kennt olíu­mark­að­inn að und­an­förnu.[/caption]

Þessi mynd birtist með erindi Daníels, en hún sýnir hversu miklar sveiflur hafa einkenn olíumarkaðinn að undanförnu.
Þessi mynd birt­ist með erindi Daníels, en hún sýnir hversu miklar sveiflur hafa ein­kenn olíu­mark­að­inn að und­an­förnu.

Í ljósi þess að Ísland er ekki olíu­fram­leiðslu­ríki, líkt og t.d. Noregur og Rússland, þá eru áhrifin af verð­fall­inu á olíu fyrst og fremst jákvæð fyrir þjóð­ar­búið. Haldist olíu­verð í kringum 60 Banda­ríkja­dali út þetta ár gæti það sparað þjóð­ar­bú­inu um 40 millj­arða króna í gjald­eyri, eða tæp­lega 270 millj­ónir evra á ári, miðað við stöð­una eins og hún var í fyrra. Sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæki njóta ekki síst góðs af þessu, þar sem verð á öðrum hrá­vörum, eins og málmum og fiski, hefur ekki fylgt verð­þróun olí­unnar. Verð­lækkun á olí­unni kemur því sjáv­ar­út­vegnum til góðs, og það sama má segja um ferða­þjón­ust­una og flug­fé­lög. Ódýrara er að fljúga og ódýr­ara er að sigla, en það var t.d. í fyrra.

100 þúsund kall á ári


Gera má ráð fyrir að áhrif þess­arar skörpu verð­lækk­unar á olí­unni, upp á um 50 Banda­ríkja­dali, geti skilað sér í auknum hag­vexti upp á hálft til eitt pró­sentu­stig fyrir Ísland, og ráð­stöf­un­ar­tekjur heim­il­anna gætu auk­ist um 100 þús­und krónur á ári. Það er einnig til marks um áhrif olíu­verðs­lækk­un­ar­innar að verð­bólga hér á landi væri nú 1,7 pró­sent í stað 0,8 pró­sent, ef það hefði hald­ist óbreytt eins og það var í fyrra.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár