ESB kynnir áætlanir fyrir Brexit-viðræður

ESB tekur stöðu með Evr­ópu­ríkjum í áætl­unum fyrir Brexit-við­ræður. Bretar verða að ganga úr ESB áður en hægt er að ræða fram­tíð­ina, að mati Donalds Tusk.

Aðildarríki Evrópusambandsins eru nú 28 en verða 27 um leið og skilnaður Bretlands og ESB tekur gildi.
Aðild­ar­ríki Evr­ópu­sam­bands­ins eru nú 28 en verða 27 um leið og skiln­aður Bret­lands og ESB tekur gildi. Mynd: EPA

Donald Tusk, for­seti Evr­ópu­ráðs Evr­ópu­sam­bands­ins, kynnti drög að áætl­unum Evr­ópu­sam­bands­ins (ESB) í aðdrag­anda við­ræðn­anna við Bretland í Kýpur í gær­morgun. Aðild­ar­ríkin 27 hafa fengið drögin send til umsagnar.

[links]Drögin verða rædd og end­ur­skoðuð á ráð­stefnu for­sæt­is­ráð­herra aðild­ar­ríkj­anna í lok apríl. Úr þeirri vinnu eiga fyr­ir­ætl­anir Evr­ópu­sam­bands­ins að vera sam­þykktar áður en við­ræður hefj­ast við Breta um útgöngu þeirra úr ESB sem verður í síð­asta lagi í mars 2019, hvort sem samn­ingar hafa tek­ist eður ei.

Í drög­unum má hins vegar finna margar vís­bend­ingar um afstöðu ESB til hinna ýmsu mála sem orðið hafa til í kjöl­far þess að Bretar ákváðu að yfir­gefa sam­bandið í þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu síð­asta sumar.

Svo gæti farið að með lög­skiln­aði Bret­lands og ESB muni Spánn fá Gíbraltar aftur úr hendi Breta. Í áætl­un­ar­drög­unum má finna klausu um að ESB ætli nú að styðja kröfu Spán­verja um að hafa sitt að segja í mál­efnum Gíbraltar.

Í frétt The Guardian segir að með þessu sé Evr­ópu­sam­bandið í raun að gefa Spán­verjum neit­un­ar­vald í öllum við­ræðum Bret­lands og Evr­ópu­sam­bands­ins. Í reynd lítur Evr­ópu­sam­bandið þannig á málið að með því að yfir­gefa ESB þá þurfi Bretar að semja upp á nýtt um land­svæðið sem til­heyrir Gíbraltar, og þá beint við Spán.

Þetta mun að öllum lík­indum reita bresk stjórn­völd til reiði, enda hafa Bretar hafnað öllum kröfum Spán­verja um að Gíbraltar verði aftur innan spænskra landamæra. Bretar tóku Gíbraltar yfir árið 1713 og íbúar þar hafa haft breskt rík­is­fang síðan.

[box]

Skotar vilja kjósa um sjálfstæði

Heima í Bret­landi berj­ast Bresk stjórn­völd við annað risa­mál því nú hafa Skotar óskað eftir því form­lega að haldin verði önnur þjóð­ar­at­kvæða­greiðsla um sjálf­stæði Skotlands. 59 þing­menn af 69 á skoska þing­inu kusu með þeirri til­lögu að óskað yrði eftir atkvæða­greiðsl­unni.

Í skoð­ana­könn­unum er ekki hægt að greina á hvorn veg slík þjóð­ar­at­kvæða­greiðsla mundi fara, en í þjóð­ar­at­kvæða­greiðsl­unni um Brexit kusu Skotar heldur að vera áfram í ESB. 62 pró­sent skosku þjóð­ar­innar kaus gegn útgöngu. Það er því hugs­an­legt að breska sam­bands­ríkið lið­ist í sundur með útgöngu Breta.

Risaákvarðanir fram undan

Síðan Bretland hóf form­lega þátt­töku í Evr­ópu­sam­vinn­unni árið 1973 hefur gríð­ar­lega margt breyst í breskri stjórn­sýslu. Ýmis verk­efni sem áður voru á könnu emb­ætt­is­manna í London hafa færst til Brussel og enn fleiri verk­efni sem urðu til á síð­ustu ára­tugum hefur ávalt verið stjórnað frá Brussel eða Frank­furt.

Það mun því verða risa­vaxið verk­efni fyrir bresk stjórn­völd að færa þessi verk­efni aftur til London og koma þeim fyrir í bresku stjórn­kerfi.

Átök eru þegar hafin um þetta mál í sölum breska þings­ins. Laga­frum­varpið sem Brexit-ráð­herr­ann David Davis hefur lagt fram hefur fengið nafnið „the Great Repeal Bill“, sem hægt er að kalla „Stóru afnámslögin“ á íslensku. Stjórn­mála­skýrendur á Bret­landseyjum telja afnámslögin vera eina stærstu aðgerð stjórn­valda þegar kemur að útgöngu Breta.

Í frum­varpi stóru afnámslag­anna er breskum stjórn­völdum gert kleift að ýta á bil­inu 800 til 1.000 mis­mun­andi lögum í gegnum þingið án þess að þau fái þing­lega með­ferð. Stjórn­ar­and­stæð­ingar og stjórn­mála­skýrendur hafa bent á spill­ing­ar­hætt­una sem fylgir þessu, og tæki­fær­unum sem bresk stjórn­völd fá til þess að auka völd sín gagn­vart þing­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár