Þeim sem búa miðsvæðis í Reykjavík líst best á hugmyndir um Borgarlínu

Samkvæmt nýrri könnun sem MMR fram­kvæmdi fyrir þrýsti­hóp sem vill verja minna almannafé í bættar almenn­ings­sam­göngur líst um 40 pró­sentum íbúa á höf­uð­borg­ar­svæð­inu vel á fram­komnar hug­myndir um Borg­ar­línu, en 34 pró­sentum illa.

Mikill munur virðist á afstöðu fólks til hugmynda um Borgarlínu eftir því hversu margir bílar eru í heimilishaldinu, samkvæmt þessari nýju könnun.
Mikill munur virð­ist á afstöðu fólks til hug­mynda um Borg­ar­línu eftir því hversu margir bílar eru í heim­il­is­hald­inu, sam­kvæmt þess­ari nýju könnun. Mynd: Borgarlína

Um 40 pró­sentum íbúa á höf­uð­borg­ar­svæð­inu líst vel á þær hug­myndir um Borg­ar­línu sem fram hafa komið til þessa, en 34 pró­sentum líst illa á þær áætl­anir sem uppi eru. Þetta kemur fram í nýrri könnun frá MMR. Fjórð­ungur aðspurðra, eða 25 pró­sent, segir annað hvort „bæði og“ eða tekur ekki afstöðu til spurn­ing­ar­innar.

Þrýsti­hópur sem kallar sig Sam­göngur fyrir alla (ÁS) lét MMR fram­kvæma þessa könnun fyrir sig í maí­mán­uði og spurt var út í ýmsa hluti sem tengj­ast borg­ar­línu­verk­efn­inu. Mikill munur er á afstöðu til þeirra hug­mynda sem fram hafa komið um Borg­ar­lín­una eftir því hvar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu fólk er búsett.[links]

Í Reykja­vík vestan Elliða­ár­vogar líst fólki best á hug­mynd­irnar, en 61 pró­sent íbúa á því svæði segja að þeim lít­ist ýmist mjög vel eða fremur vel á fram­komnar hug­myndir um Borg­ar­línu, á meðan 20 pró­sentum líst illa á það sem lagt hefur verið fram.

Innan höf­uð­borg­ar­innar, austan Elliða­ár­vogar, segja hins vegar ein­ungis 26 pró­sent íbúa að þeim lít­ist vel á hug­myndir um Borg­ar­línu. Rúmur helm­ingur íbúa þar, eða 55 pró­sent, segir hins vegar að þeim lít­ist mjög eða fremur illa á hug­mynd­irnar.

Í öðrum sveit­ar­fé­lögum höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins líst 39 pró­sentum íbúa mjög eða frekar illa á hug­mynd­irnar en 31 pró­senti líst mjög eða fremur vel á þær, sam­kvæmt nið­ur­stöðum könn­un­ar­innar.

Einn eða tveir bílar?

Úr nið­ur­stöðum könn­un­ar­innar má lesa að nokkur munur er á afstöðu fólks til hug­mynda um Borg­ar­línu eftir því hversu margir bílar eru í heim­il­is­hald­inu. Á heim­ilum þar sem eng­inn er bíll­inn líst 59 pró­sentum vel á hug­myndir um Borg­ar­línu en það hlut­fall er ein­ungis 23 pró­sent á heim­ilum þar sem þrír bílar eða fleiri eru til staðar, á meðan að 54 pró­sentum þeirra sem búa á heim­ili með þrjá bíla eða fleiri líst illa á fram­komnar borg­ar­línu­hug­myndir.

Skörp skil eru á milli afstöðu fólks á heim­ilum sem reka einn bíl og þeirra sem reka tvo, en af þátt­tak­endum könn­un­ar­innar, sem alls voru 611 tals­ins, voru sam­tals 488 manns af heim­ilum sem reka einn eða tvo bíla.

[adspot]

Rúmur helm­ingur þeirra sem eru með einn bíl í heim­il­is­bók­hald­inu segir að þeim lít­ist vel á borg­ar­línu­hug­myndir en ein­göngu 30 pró­sent þeirra sem taka þátt í rekstri tveggja bíla. Í hópi þeirra sem eru með tvo bíla á heim­il­inu segja 40 pró­sent að þeim lít­ist illa á hug­myndir um Borg­ar­línu en ein­ungis 24 pró­sent þeirra sem eru með einn bíl á heim­il­inu.

Víðtæk andstaða við fækkun akreina á Suðurlandsbraut

Í frum­drögum að fyrstu lotu Borg­ar­línu er gert ráð fyrir því að Suð­ur­lands­braut taki miklum breyt­ingum, en áætlað er að Suð­ur­lands­brautin allt frá Skeið­ar­vogi, með­fram Laug­ar­dalnum og að Lauga­vegi verði með tvö­faldri borg­ar­línu­braut fyrir miðju og einni akrein fyrir bíla sitt­hvoru megin.

Einnig er gert ráð fyrir því að hjóla- og göngu­stígar verði beggja vegna Suð­ur­lands­brautar og svæðið undir bíla­stæði fyrir framan bygg­ingar sunnan Suð­ur­lands­brautar verði minnkað veru­lega, en stór hluti þess­ara bíla­stæða er á landi Reykja­vík­ur­borgar. Fram kom í frum­draga­skýrsl­unni, sem kom út í byrjun febr­úar, að búist væri við að þessar breyt­ingar á göt­unni myndu draga úr umferð­ar­þunga á henni og að þær leiddu til þess að bíla­um­ferð leit­aði annað, þá helst um Sæbraut og Miklu­braut.

Þessi hug­mynd virð­ist leggj­ast öfugt ofan í marga, en sam­kvæmt könnun MMR segj­ast ein­ungis 19 pró­sent hlynnt því að þetta verði raunin á meðan að 65 pró­sent eru þessu and­víg. Einungis einn hópur sker sig úr með afger­andi hætti hvað varðar þær breyt­ingar á Suð­ur­lands­braut­inni. Það er kjós­enda­hópur Sam­fylk­ing­ar­innar, en 52 pró­sent þeirra sem segja að þeir myndu kjósa Sam­fylk­ing­una í kom­andi þing­kosn­ingum segj­ast vera mjög eða frekar hlynnt því að Suð­ur­lands­braut verði breytt með þeim hætti sem hug­myndir eru uppi um.

Mikill stuðningur við kosningaloforð Samfylkingar frá 2018

ÁS lét MMR spyrja íbúa höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins út í ýmsa hluti, meðal ann­ars afstöð­una til bygg­ingar stokks fyrir bíla­um­ferðar neð­an­jarðar milli Rauð­ar­ár­stígs og Kringlu­mýr­ar­brautar. Mikill stuðn­ingur er við slíka stokka­gerð og fáir lýsa sig and­víga þessu. 54 pró­sent segj­ast mjög eða frekar hlynnt þessu en ein­ungis 13 pró­sent lýsa sig and­víg því að ráð­ist verði í þessa fram­kvæmd. Tæpur þriðj­ungur, eða 32 pró­sent aðspurðra, segja ýmist „bæði og“ eða taka ekki afstöðu til spurn­ing­ar­innar.

Athygli vekur að þessi fyr­ir­hug­aða fram­kvæmd, sem var eitt helsta slag­orð Sam­fylk­ing­ar­innar í Reykja­vík í síð­ustu borg­ar­stjórn­ar­kosn­ingum, nýtur meiri­hluta­stuðn­ings íbúa á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, óháð því hvar þeir búa og nán­ast hvar sem þeir standa í hinu póli­tíska lit­rófi. Einungis þeir sem segj­ast ætla að kjósa Mið­flokk­inn í næstu þing­kosn­ingum eru að meiri­hluta á móti því að bíla­um­ferðin um Hlíða­hverfi verði færð neð­an­jarðar.

Könnun MMR fyrir ÁS var fram­kvæmd dag­ana 7.-12. maí og voru þátt­tak­endur 611 tals­ins, sem áður segir. Um net­könnun var að ræða og voru þátt­tak­endur valdir af handa­hófi úr hópi álits­gjafa MMR.

Nið­ur­stöður könn­un­ar­innar í heild sinni

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Borgarlína

ViðtalBorgarlína

Fyrst til að bjóða Betri sam­göngum í kaffi

Bergþóra Þor­kels­dóttir for­stjóri Vega­gerð­ar­innar segir það vera gamla klisju að tala um að Vega­gerðin sé gam­al­dags stofnun. Öllum lyk­il­stjórn­endum hafi verið skipt út frá árinu 2018 og mikil end­ur­nýjun hafi orðið í starfs­manna­hópnum. Hún og Bryndís Frið­riks­dóttir sam­göngu­verk­fræð­ingur sett­ust niður með blaða­manni og ræddu um verk­efni sam­göngusátt­mál­ans. Bergþóra hafnar því að yfir­stjórn Vega­gerð­ar­innar hafi verið ósátt með stofnun félags­ins Betri sam­gangna.

8 mín. lestur

ÚttektBorgarlína

Gam­al­dags Vegagerð sem vill vera aðal

Heim­ildin leit­aði til nokk­urra ein­stak­linga sem hafa með einum eða öðrum hætti komið að verk­efnum sem tengj­ast sam­göngusátt­mála höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins og ræddi við þau um Borg­ar­línu, vinnslu verk­efna sátt­mál­ans, fjár­mögnun þeirra og fram­hald. Í sam­töl­unum kom nokkur gagn­rýni kom fram á Vega­gerð­ina fyrir gam­al­dags stofn­anakúltúr og langar boð­leiðir, for­stjór­inn er sagður vilja hafa „putt­ana í öllu“. Yfir­stjórn Vega­gerð­ar­innar er sögð hafa átt erfitt með að sætta sig við að félagið Betri sam­göngur hafi verið stofnað til að halda utan um verk­efni sátt­mál­ans.

8 mín. lestur

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár