Tíu molar um hóp sem vill fresta Borgarlínu og malbika meira

Nýr hópur sem kallar sig „Áhuga­fólk um sam­göngur fyrir alla“ lagði á dög­unum fram til­lögur að breyt­ingum á sam­göngusátt­mála höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins. Hópurinn telur Borg­ar­línu of dýra og leggur til mörg ný mis­læg gatna­mót. Kjarninn skoð­aði til­lög­urnar.

Á dög­unum var sett upp ný vef­síða undir yfir­skrift­inni „Sam­göngur fyrir alla“ í nafni hóps sem kallar sig Áhuga­fólk um sam­göngur fyrir alla (ÁS). Hópurinn seg­ist telja að „bestu sam­göngu­kerfin byggi á frelsi fólks til að ráða sér sjálft“ og seg­ist vilja bættar, hag­kvæmar og skil­virkar sam­göngur fyrir alla í höf­uð­borg­inni og nágrenni.

Stýrihóp áhuga­hóps­ins skipa þeir Þórarinn Hjalta­son umferð­ar­verk­fræð­ingur, Gestur Ólafsson arki­tekt og skipu­lags­fræð­ingur, Jónas Elíasson verk­fræð­ingur og pró­fessor emeritus og Sveinn Óskar Sig­urðs­son bæj­ar­full­trúi Mið­flokks­ins í Mos­fellsbæ. Allir hafa þeir lagt orð í belg í opin­berri umræðu um skipu­lags­mál og Borg­ar­línu á und­an­förnum árum.

Kjarninn skoð­aði vef hóps­ins og þau gögn sem þar hafa verið lögð fram og tók saman nokkra mola um áherslu­at­riði hóps­ins og annað sem athygl­is­vert er.

1 – Telja Borgarlínu of dýra miðað við ávinning

Helsta áherslu­at­riði hóps­ins er að fallið verði frá þeim hug­myndum um Borg­ar­línu sem þró­aðar hafa verið und­an­farin ár og eru nú í hönn­un­ar­ferli. Hópurinn leggur til að fram­kvæmdum við Borg­ar­línu verði „frestað um óákveð­inn tíma“ og segir að kynna þurfi verk­efnið betur fyrir almenn­ingi.

Einnig vill hóp­ur­inn, sam­kvæmt grein­ar­gerð sem birt er á vef hans, að „hlut­lausum aðila“ verði falið að setja fram ódýr­ari val­kost til bætts almenn­ings­sam­göngu­kerfis en Borg­ar­lína er. Hópurinn setur sig upp á móti því að sér­rými Borg­ar­lín­unnar verði fyrir miðju akbrautar, eins og til dæmis er ráð­gert á Suð­ur­lands­braut. Þess í stað vill hóp­ur­inn að sér­rými verði gerð hægra megin á akbrautum, en bara þar sem „umferð er það þung að strætó þurfi sér­rými.“

Hópurinn telur sömu­leiðis að mark­mið sveit­ar­fé­lag­anna á höf­uð­borg­ar­svæð­inu um breyttar ferða­venjur, sem sett voru fram í svæð­is­skipu­lagi höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins fram til árs­ins 2040, séu afar ólík­leg til þess að ganga eftir, þrátt fyrir að Borg­ar­línan verði byggð. Þórarinn Hjalta­son, tals­maður hóps­ins, hefur haldið því fram árum saman að skoða eigi ódýr­ara hrað­vagna­kerfi, meðal ann­ars í greinum í Kjarn­anum og víðar.

Lagt er til í grein­ar­gerð hóps­ins að fjár­veit­ingar til ódyr­ara sam­göngu­kerfis verði á bil­inu 15-20 millj­arðar króna í sam­göngusátt­mál­anum sem gildir fram til árs­ins 2033.

Samkvæmt sam­göngusátt­mál­anum sem und­ir­rit­aður var á milli ríkis og sveit­ar­fé­laga á borg­ar­svæð­inu árið 2019 er ráð­gert að 49,6 millj­arðar króna fari í upp­bygg­ingu Borg­ar­línu fram til árs­ins 2033, 52,2 millj­arðar króna í stofn­vega­fram­kvæmdir, 8,2 millj­arðar í göngu- og hjóla­stíga, göngu­brýr og und­ir­göng og 7,2 millj­arðar í bætta umferð­ar­stýr­ingu og sér­tækar örygg­is­að­gerðir.

2 – Leggja til fjölda nýrra mislægra gatnamóta

Á sama tíma og hóp­ur­inn leggur til að fram­kvæmdum við Borg­ar­línu verði frestað um óákveð­inn tíma er lagt til að sam­göngusátt­mála höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins verði breytt þannig að aukin áhersla verði lögð á upp­bygg­ingu mis­lægra gatna­móta á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og í að breikka akvegi fyrir bíla.

Hópurinn leggst gegn því að lok­aðir stokkar verði gerðir fyrir bíla­um­ferð og telur það of dýra lausn sem geri lítið til að greiða fyrir bíla­um­ferð. Í stað stokka, sem til dæmis eru fyr­ir­hug­aðir við Miklu­braut og á Sæbraut, er lagt til að mis­læg gatna­mót verði byggð og þjóð­vegir lækk­aðir í landi eftir þörfum.

„ÁS varar við þeim veru­legu fjár­hæðum sem ætlað er að verja í Miklu­brautar- og Sæbraut­ar­stokka. Í sam­an­burði við mis­læg gatna­mót er ávinn­ingur götu­stokka mjög tak­mark­aður. Áætlaður stofn­kostn­aður við þessar fram­kvæmdir er 31 ma.kr. Fyrir minna en helm­ing af þess­ari upp­hæð mætti gera öll gatna­mót á Miklu­braut mis­læg, auk mis­lægra gatna­móta á Sæbraut við Skeið­ar­vog og Holtaveg,“ segir í stefnu hóps­ins.

3 – ... þar af tvö á sama blettinum í Laugarnesi

Hópurinn teiknar upp alls sex mis­læg gatna­mót á Kringlu­mýr­ar­braut í Reykja­vík. Er komið væri akandi úr suðri yrðu þau fyrstu við Lista­braut, önnur við Miklu­braut, þau þriðju við Háa­leit­is­braut og þau fjórðu örlítið norðar við mót Suð­ur­lands­brautar og Lauga­vegar.

Þegar þangað væru komið væru enn tvö mis­læg gatna­mót eftir, á leið­inni niður að sjó. Örskammt er á milli þeirri, en hóp­ur­inn gerir ráð fyrir einum mis­lægum gatna­mótum þar sem Borg­ar­tún og Sund­lauga­vegur mæta Kringlu­mýr­ar­braut­inni og svo öðrum um það bil 100 metrum norðar, á gatna­mótum Kringlu­mýr­ar­brautar og Sæbrautar.

Tvenn mislæg gatnamót eru teiknuð upp á þessum vegspotta niður að sjó í tillögum hópsins. Mynd: Arnar Þór Ingólfsson
Tvenn mis­læg gatna­mót eru teiknuð upp á þessum veg­spotta niður að sjó í til­lögum hóps­ins. Mynd: Arnar Þór Ing­ólfs­son

4 – … fjögur á Miklubraut

Núver­andi áætl­anir gera ráð fyrir því að Mikla­braut verði lögð í stokk. Þau áform eru til þess fallin að sú mikla umferð­aræð sem Mikla­brautin er hætti að skera Hlíða­hverfið í sundur.

Hópurinn leggur til að fallið verði frá þeim áformum. Í stað­inn verði Mikla­braut á milli Kringlu­mýr­ar­brautar og mis­lægu gatna­mót­anna á mörkum Snorra­brautar og Bústaða­vegs breikkuð í sex akreinar alla leið.

Er þessi veg­ar­spotti væri ekinn úr vestri væri gert ráð fyrir fjórum nýjum mis­lægum gatna­mótum austur að Grens­ás­vegi. Þau fyrstu yrðu við Löngu­hlíð, svo yrði farið um mis­læg gatna­mót við Kringlu­mýr­ar­braut, síðan við Háa­leit­is­braut og að lokum yrðu byggð mis­læg gatna­mót við Grens­ás­veg. Þá gæti bíla­um­ferðin runnið áfram án þess að nokkru sinni þyrfti að stöðva á rauðu ljósi.

Tillögur að breikkun Miklubrautar í Hlíðahverfi og mislægum gatnamótum á Miklubrautinni.
Tillögur að breikkun Miklu­brautar í Hlíða­hverfi og mis­lægum gatna­mótum á Miklu­braut­inni.

5 – … og ein í miðbæ Garðabæjar

Reyk­vík­ingar eru ekki þeir einu sem hóp­ur­inn sér fyrir sér að gætu haft hag af fleiri mis­lægum gatna­mótum í miðri byggð­inni.

Í nágrenni við mið­bæj­ar­kjarna Garða­bæjar gera núver­andi áætl­anir ráð fyrir því að Hafn­ar­fjarð­ar­vegur fari í stokk síðar á þessum ára­tug, en hóp­ur­inn leggur til að þess í stað verði gerð mis­læg gatna­mót við Víf­ils­staða­veg. Hafn­ar­fjarð­ar­veg­ur­inn verði svo lækk­aður í landi eftir þörfum.

Tillaga að mislægum gatnamótum í stað stokks í miðbæ Garðabæjar.
Tillaga að mis­lægum gatna­mótum í stað stokks í miðbæ Garða­bæjar.

6 – Virðast harma að Fossvogurinn hafi ekki verið malbikaður

Molarnir hér að ofan eru ekki tæm­andi yfir­ferð um þau nýju mis­lægu gatna­mót sem hóp­ur­inn leggur til að bæt­ist við sam­göngusátt­mál­ann, í stað stokka og borg­ar­línu­fram­kvæmda, sem litlu skila til bættra sam­gangna að þeirra mati.

Í skjali sem hóp­ur­inn birtir undir yfir­skrift­inniBorg­ar­línan - hug­myndir og veru­leiki er áformum um upp­bygg­ingu hágæða almenn­ings­sam­göngu­kerfis fundið margt til for­áttu og færð rök fyrir því að það sem vanti séu stærri vegir og fleiri mis­læg gatna­mót.

Þar er harmað að ekki hafi verið farið eftir áætl­unum sem finna mátti í aðal­skipu­lagi Reykja­víkur frá því á sjö­unda ára­tug síð­ustu aldar, hrað­brauta­skipu­lagi sem lagði grunn­inn að víð­femu gatna­kerfi borg­ar­svæð­is­ins og farið var eftir að miklu en þó ekki öllu leyti.

Aðalskipulagið frá sjöunda áratugnum lagði grunninn að stofnveganeti höfuðborgarinnar og opnaði á að byggðin á höfuðborgarsvæðinu þendist út. Þá var fyrirhugað að setja stofnbraut um Fossvogsdal, sem átti að teygja sig að Öskjuhlíðinni og þaðan inn í Vatnsmýri.
Aðal­skipu­lagið frá sjö­unda ára­tugnum lagði grunn­inn að stofn­vega­neti höf­uð­borg­ar­innar og opn­aði á að byggðin á höf­uð­borg­ar­svæð­inu þend­ist út. Þá var fyr­ir­hugað að setja stofn­braut um Foss­vogs­dal, sem átti að teygja sig að Öskju­hlíð­inni og þaðan inn í Vatns­mýri.

Samkvæmt því sem segir í þessu skjali hóps­ins má rekja umferð­ar­tafir á höf­uð­borg­ar­svæð­inu að miklu leyti til þess að hrað­brauta­skipu­lagið hafi ekki gengið eftir að öllu leyti. Þar segir að and­staða íbúa hafi komið í veg fyrir að fram­kvæmdir eins og Foss­vogs­braut, sem átti að verða hrað­braut í gegnum miðjan Foss­vogs­dal­inn og mis­læg gatna­mót á mörkum Kringlu­mýr­ar­brautar og Miklu­brautar. Þetta hafi leitt til þess að flösku­hálsar mynd­ist í umferð­inni.

„Úr þessu hefur ekki verið bætt og afleið­ing­arnar eru hverjum manni ljósar í dag,“ segir í skjali hóps­ins. Um hið 60 ára gamla hrað­brauta­skipu­lag höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins segir að það hafi „stað­ist allar vænt­ingar frá­bær­lega vel“ en „helsti þrösk­uld­ur­inn“ í vegi þess hafi verið „mót­mæli íbúa­sam­taka.“

7 – Formannsframbjóðandi í VR las inn á myndband hópsins

Helga Guðrún Jón­as­dóttir, sem þessa dag­ana skorar Ragnar Þór Ing­ólfs­son á hólm í for­mannslag í VR, stærsta stétt­ar­fé­lagi lands­ins, las inn á mynd­band þar sem hug­myndir hóps­ins eru útskýrðar. Wordpress-síða í hennar nafni er einnig notuð til að hýsa nokkur skjöl hóps­ins.

Helga Guðrún Jónasdóttir frambjóðandi til formanns VR ljáði myndbandi hópsins rödd sína.
Helga Guðrún Jón­as­dóttir fram­bjóð­andi til for­manns VR ljáði mynd­bandi hóps­ins rödd sína.

8 – Gantast með að kaupa rafbíl handa öllum sem nota strætó, ef þeir lofi að hætta að taka strætó

Í áður­nefndu mynd­bandi sem Helga Guðrún las inn á var því velt upp hvort það væri ef til vill lofts­lagsvænni lausn – og hag­kvæm­ari en Borg­ar­lína – að kaupa handa öllum not­endum strætó lít­inn raf­bíl í stað þess að ráð­ast í fyr­ir­hug­aðar fram­kvæmdir við almenn­ings­sam­göngu­kerfið. Notendur strætó þurfi á móti að hætta að nota almenn­ings­sam­göng­urnar.

Óljóst er hvort þessu var velt upp í gríni eða alvöru. Mynd­bandið, sem var aðgengi­legt í nokkra daga eftir að síða hóps­ins fór í loftið, hefur reyndar verið fjar­lægt þaðan, ein­hverra hluta vegna. Það má þó nálg­ast í umræðu­hópi um Borg­ar­línu á Facebook.

í myndbandinu var vísað til þess að „gárungar“ hafi velt því upp að ódýrara og loftslagsvænna væri að kaupa rafbíl handa öllum sem nota strætó en að leggja Borgarlínuna. Mynd: Skjáskot úr myndbandi sem hópurinn birti.
í mynd­band­inu var vísað til þess að „gár­ungar“ hafi velt því upp að ódýr­ara og lofts­lagsvænna væri að kaupa raf­bíl handa öllum sem nota strætó en að leggja Borg­ar­lín­una. Mynd: Skjáskot úr mynd­bandi sem hóp­ur­inn birti.

9 – Segja að fólk sem eigi ekki bíl láti mömmu sína skutla sér

Í skjali sem hóp­ur­inn birtir segir að á því sé ekki vafi að „hug­mynda­fræði“ Borg­ar­línu sé undir veru­legum áhrifum frá hug­mynda­fræði bíl­lausu hreyf­ing­ar­innar í Banda­ríkj­unum og „syst­ur­sam­taka þeirra hér“ sem heita Samtök um bíl­lausan lífstíl.

„Þessi hug­mynda­fræði er trúin á að einka­bílar séu óþarfir og fólk eigi ekki að eiga bíl nema í atvinnu­skyni. Reynslan sýnir að áhan­gendur halda þetta boð­orð nokkuð vel, en hins­vegar má fá lán­aðan bíl­inn hjá mömmu eða fá hana til að skutla sér þegar mikið liggur við, einkum ef það kemst ekki upp,“ segir í umfjöllun hóps­ins.

Í Facebok-hópi áður­nefndra Samtaka um bíl­lausan lífs­stíl hefur nokkuð verið rætt um til­lögur hóps­ins. Þar er skotið fast til baka: „Þetta er lítið annað en sorg­legir dauða­kippir fag­fólks á eft­ir­launum sem hélt um stýrið lung­ann af 20. öld­inni og skilur ekki af hverju við elskum ekki það sem þau gerðu,“ skrifar Samúel Torfi Pét­urs­son skipu­lags­verk­fræð­ingur og láta tugir með­lima hóps­ins sér líka við þessi ummæli hans.

10 – Fjalla lítið sem ekkert um virka ferðamáta

Þrátt fyrir að hóp­ur­inn segi að góðar sam­göngur eigi að vera fyrir alla er lítið fjallað um það á síð­unni hvernig megi bæta sam­göngur fyrir hjólandi og gang­andi á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. En þó eru ekki gerðar neinar breyt­ing­ar­til­lögur við þann anga sam­göngusátt­mál­ans sem snýr að hjóla­stígum.

Ekki er þó útskýrt af hálfu hóps­ins hvernig gang­andi og hjólandi ættu að kom­ast á hægan máta yfir eða undir þau mis­lægu gatna­mót sem teiknuð eru upp í til­lögum þeirra í dag.

Mögulega verður gerð ein­hver grein fyrir því á næst­unni, en hóp­ur­inn boðar að áfram verði haldið við að leggja fram gögn um sam­göngu­mál á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og segir fagráð sitt vera að vinna að skýrslu um fyrsta áfanga Borg­ar­línu þessa dag­ana.

Merki áhugahópsins.
Merki áhuga­hóps­ins.
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Borgarlína

ViðtalBorgarlína

Fyrst til að bjóða Betri sam­göngum í kaffi

Bergþóra Þor­kels­dóttir for­stjóri Vega­gerð­ar­innar segir það vera gamla klisju að tala um að Vega­gerðin sé gam­al­dags stofnun. Öllum lyk­il­stjórn­endum hafi verið skipt út frá árinu 2018 og mikil end­ur­nýjun hafi orðið í starfs­manna­hópnum. Hún og Bryndís Frið­riks­dóttir sam­göngu­verk­fræð­ingur sett­ust niður með blaða­manni og ræddu um verk­efni sam­göngusátt­mál­ans. Bergþóra hafnar því að yfir­stjórn Vega­gerð­ar­innar hafi verið ósátt með stofnun félags­ins Betri sam­gangna.

8 mín. lestur

ÚttektBorgarlína

Gam­al­dags Vegagerð sem vill vera aðal

Heim­ildin leit­aði til nokk­urra ein­stak­linga sem hafa með einum eða öðrum hætti komið að verk­efnum sem tengj­ast sam­göngusátt­mála höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins og ræddi við þau um Borg­ar­línu, vinnslu verk­efna sátt­mál­ans, fjár­mögnun þeirra og fram­hald. Í sam­töl­unum kom nokkur gagn­rýni kom fram á Vega­gerð­ina fyrir gam­al­dags stofn­anakúltúr og langar boð­leiðir, for­stjór­inn er sagður vilja hafa „putt­ana í öllu“. Yfir­stjórn Vega­gerð­ar­innar er sögð hafa átt erfitt með að sætta sig við að félagið Betri sam­göngur hafi verið stofnað til að halda utan um verk­efni sátt­mál­ans.

8 mín. lestur

Mest lesið undanfarið ár