Í kjölfar fjölmiðlaumfjöllunar um viðskipti Samherja í Namibíu, þar sem fyrirtækið var sagt hafa stundað mútugreiðslur, peningaþvætti og skattasniðgöngu, óskaði Fjármálaeftirlitið eftir tilteknum upplýsingum frá íslenskum bönkum um það hvort að Samherji eða tengd félög hefðu verið í eða væru í viðskiptum við þá.
Ef banki var í slíkum viðskiptum var óskað eftir upplýsingum um áhættumat á þeim félögum og upplýsingum um hvernig reglubundnu eftirliti með þeim væri háttað. „Umræddar athuganir eru enn í vinnslu.“
Þetta segir í svari Fjármálaeftirlitsins við fyrirspurn Kjarnans um hvort að það sé að kanna hvort að íslenskir viðskiptabankar Samherja hafi mögulega tekið þátt í peningaþvætti með viðskiptum við fyrirtækið, sem er nú til rannsóknar vegna gruns um slíks meðal annars í Noregi.
[adspot]Þegar hefur verið greint frá því að stjórn Arion banka hafi ákveðið að fara fram á að viðskipti Samherja við bankann verði skoðuð ítarlega. Stjórn Íslandsbanka hefur einnig greint frá því að hún myndi fara yfir viðskipti Samherja við bankann. Stjórn Landsbankans hefur hins vegar ekki viljað tjá sig um málefni einstakra viðskiptavina.
Til rannsóknar í þremur löndum
Málefni Samherja komust í hámæli eftir að Kveikur og Stundin birtu umfjöllun þriðjudaginn 12. september um viðskiptahætti Samherja í Namibíu á síðustu árum á meðan að fyrirtækið náði undir sig mjög verðmætum hrossamakrílskvóta í landinu. Það var gert með mútugreiðslum til tveggja ráðherra í landinu og annarra manna úr þeirra nánasta hring, samkvæmt umfjölluninni. Þær voru sagðar nema 1,4 milljarði króna hið minnsta og hófust með því að reiðufé var afhent í íþróttatöskum en tóku svo á sig faglegri mynd og fóru fram í gegnum millifærslur á reikninga í Dúbaí.
Opinberunin byggði annars vegar á tugþúsundum skjala og tölvupósta sem sýndu viðskiptahættina svart á hvítu, og hins vegar á frásögn Jóhannesar Stefánssonar, fyrrverandi verkefnastjóra Samherja í Namibíu, sem játaði á sig fjölmörg lögbrot og sagðist hafa framið þau að undirlagi Þorsteins Más Baldvinssonar, þáverandi forstjóra Samherja og eins aðaleiganda fyrirtækisins, og Aðalsteins Helgasonar, sem var lengi yfir útgerð Samherja í Afríku. Gögnin, sem Jóhannes afhenti Wikileaks, hafa verið birt á internetinu. Þá birti Al Jazeera umfjöllun um málefni Samherja í byrjun desember sem unnin var í samvinnu við ofangreinda miðla og Wikileaks.
[adspot]Á Íslandi eru bæði héraðssaksóknari og embætti skattrannsóknarstjóra að rannsaka málið.
Búið er að ákæra sex manns í Namibíu, þar á meðal tvo fyrrverandi ráðherra, fyrir að hafa þegið 860 milljónir króna í greiðslur hið minnsta fyrir að tryggja félögum tengdum Samherja eftirsóttan kvóta í landinu. Samherjamálið er einnig til rannsóknar í Noregi, þar sem fyrirtækið hefur verið í bankaviðskiptum við DNB, og á Íslandi. Á meðal þess sem er rannsakað er meint peningaþvætti og skattasniðganga.
Þorsteinn Már Baldvinsson sagði tímabundið af sér sem forstjóri Samherja vegna málsins í kjölfar opinberunnar Kveiks og Stundarinnar og hefur auk þess sagt sig úr stjórnum fjölda félaga á Íslandi, í Noregi og í Bretlandi. Björgólfur Jóhannsson tók við sem forstjóri.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.



















































Athugasemdir