Apple geymir fúlgur fjár í skattaskjólum - Skatturinn í viðbragðsstöðu

Eitt af því sem hefur mikið verið umræða á alþjóða­vett­vangi - ekki ein­ungis á Íslandi - frá því að fjár­mála­kerfi heims­ins var á barmi hruns, fyrir sjö árum, er það kallað er skatta­skjól. Í stuttu máli ganga þau út á það, að sér­sniðið reglu­verk til­tek­inna ríkja eða jafn­vel svæða inna þeirra, gera alþjóð­legum fyr­ir­tækjum og fjár­festum kleift, að geyma eignir án þess að þurfa greiða af þeim skatt í heima­land­inu. Íslend­ingar áttu í lok árs í fyrra um 32 millj­arða króna í skatta­skjól­inu Tortóla, en erlend fjár­muna­eign nam um þús­und millj­örðum króna, séu eignir líf­eyr­is­sjóða og fyr­ir­tækja teknar með í reikn­ing­inn, sam­kvæmt hag­tölum Seðla­banka Íslands frá því í sept­em­ber.

fjár­muna­eign

|

Create your own infographics

Lög og reglur um þessa starf­semi eru víða í end­ur­skoðun, meðal ann­ars á bresku jóm­frú­areyj­unum, Sviss, Lúx­em­borg og í Suður-Ameríku. En eng­inn ætti að gefa sér að hlut­irnir muni ganga hratt fyrir sig enda gríð­ar­lega miklir hags­munir í húfi fyrir mörg af stærstu fyr­ir­tækjum heims­ins og ein­staka fjár­festa sömu­leiðis.

Kastljósið beinist að Apple

Verð­mætasta fyr­ir­tæki heims­ins, þegar horft er til mark­aðsvirðis, er hug­bún­aðar- og fjar­skipt­ar­is­inn Apple. Mark­aðsvirði þess er nú 624 millj­arðar Banda­ríkja­dala, eða sem nemur tæp­lega 80 þús­und millj­örðum króna. Frá því um mitt ár hefur mark­aðsvirði þess lækkað tölu­vert, eða um tutt­ugu pró­sent. Ekkert fyr­ir­tæki á meiri eignir utan skatta­legs heima­lands en Apple, en Banda­ríkin er skatta­legt heima­land þess. Eignir erlendis, sem meðal ann­ars eru geymdar í skatta­skjólum, hækk­uðu um 70 millj­arða Banda­ríkja­dala milli áranna 2013 og 2014, sam­kvæmt skýrslu fjár­mála­eft­ir­lits Banda­ríkj­anna (SEC). Heild­ar­eignir utan skatta­legs heima­lands nema ríf­lega 180 millj­örðum Banda­ríkja­dala, en næsta fyr­ir­tækja sem kemur á eftir er General Electric með 119 millj­arða Banda­ríkja­dala, sam­kvæmt gögnum sem Quartz hefur tekið saman.

Gríðarlegur vöxtur

En hvers vegna geymir Apple svona stóran hluta eigna sinna erlendis, og hvers vegna fá fyr­ir­tæki að kom­ast upp með að gefa gríð­ar­lega miklar eignir sínar ekki upp til skatts? Apple hefur vaxið ógn­ar­hratt á síð­ustu árum, og eru í reynd fá dæmi í sög­unni um við­líka vöxt. Sala á iPhone símum og iPad spjald­tölvum hefur verið gríð­ar­leg, en um mitt þetta ár átti félagið 203 millj­arða Banda­ríkja­dala í lausu fé frá rekstri, eða sem nemur um 26 þús­und millj­örðum króna. Stjórn­endur félags­ins, með stuðn­ingi hlut­hafa, hafa farið í umfangs­miklar aðgerðir til þess að reyna að koma í veg fyrir að þurfa að greiða háar upp­hæðir í banda­ríska rík­is­kass­ann. Samkvæmt grein­ingu Tech Crunch ákvað Apple að fara út í umfangs­mikla skulda­bréfa­út­gáfu og lán­töku, meðal ann­ars vegna þess­arar stöðu. Peningar eru ódýrir í Banda­ríkj­unum í augna­blik­inu og fá fyr­ir­tæki hafa eins gott láns­traust og Apple, sem þarf varla að greiða neitt mark­aðsá­lag á lánum sem fyr­ir­tækið tekur. Í stað þess að koma með fjár­magnið og eign­irnar til Banda­ríkj­anna, og greiða af þeim skatt, þá hefur fyr­ir­tækið ein­fald­lega frekar kosið að stofna til skulda og greiða lága vexti. Það kemur betur út fyrir efna­hag­inn. Þá hafa lánin meðal ann­ars verið notuð í að nýta svig­rúm til kaupa á eigin bréfum, þar sem hámarkað er fimm pró­sent, og einnig í að kaupa einka­leyfi og smærri sprota­fyr­ir­tæki til að styrkja vöru­þróun.

Þrýstingur á banka

Fjár­mála­eft­ir­litið í Banda­ríkj­unum hefur fyrst og fremst unnið að því að styrkja reglur sem snúa að skilum á skatti, í tengslum við starf­semi banka á fjár­mála­fyr­ir­tæki. Samtals hafa stærstu bankar heims­ins greitt fyrir 22 millj­arða Banda­ríkja­dala í sektir vegna aðstoðar við skattaund­an­skot við­skipta­vina. Sviss­neski bank­inn UBS hefur greitt hæstu sekt­ina af öllum, vegna kerf­is­bund­innar starf­semi á sviði skattaund­an­skota fyrir við­skipta­vina, sam­tals 1,3 millj­arða Banda­ríkja­dala, eða sem nemur um 170 millj­örðum króna.

Gríð­ar­lega hraður vöxtur hug­bún­aðar-, fjar­skipta og tækni­fyr­ir­tækja, og mikil fjár­muna­myndun erlendis, hefur leitt til umræðu um hvernig eigi að taka á þessum hlutum til fram­tíðar litið. Engar sér­tækar til­lögur hafa birst, en Barack Obama, for­seti Banda­ríkj­anna, hefur sagt að skatta­skjól, utan skatta­leg heima­lands, sé að skapa mik­inn vanda fyrir margar þjóðir, meðal ann­ars Banda­ríkin. Rík­is­sjóður tapi fjár­munum á þessu, sem svo skili sér í verri þjón­ustu við almenn­ing og lak­ari lífs­kjörum. Stjórn­endur Apple, með for­stjór­ann Tim Cook í broddi fylk­ingar, segj­ast leggja áherslu á að hafa allt í starf­semi fyr­ir­tæk­is­ins uppi á borðum og fara að lögum og reglum í einu og öllu. Fyr­ir­tækið þurfi að gæta að því í sínum rekstri að haga seglum eftir vindi, vernda eignir og setja sam­keppn­is­hæfni þessi efst á for­gangs­list­ann.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár