Bretar ögra Kínverjum í Suður-Kínahafi

Bretland ætlar að senda tvö glæný flug­móð­ur­skip í Suður-Kínahaf og kanna hver þol­in­mæði Kínverja er.

Bretar ætla að senda tvö glæný flugmóðurskip í Suður-Kínhaf til þess að tryggja réttmæti alþjóðlegra hafréttarlaga.
Bretar ætla að senda tvö glæný flug­móð­ur­skip í Suður-Kínhaf til þess að tryggja rétt­mæti alþjóð­legra haf­rétt­ar­laga. Mynd: Samsett mynd

Boris Johnson, utan­rík­is­ráð­herra Bret­lands, segir bresk yfir­völd hafa ákveðið að senda tvö glæný flug­móð­ur­skip breska sjó­hers­ins í Suður-Kínahaf þar sem mörg ríki deila um yfir­ráð haf­svæð­is­ins. Breska dag­blaðið The Guardian greinir frá þessu á vef sínum.

Kín­verjar hafa búið til eyjar á skerjum í Suður-Kínahafi til þess að geta gert til­kall til haf­rétt­inda á þessu alþjóða­haf­svæði. Á sumar eyj­urnar hefur kín­verski her­inn komið fyrir her­stöðvum, hvort sem það er fyrir skipa­flota eða lofther­inn.

Þessu hefur verið harð­lega mót­mælt af stjórn­völdum í nágranna­ríkjum Suður-Kínahafs sem eiga lög­sögu að þessu haf­svæði, enda er um mik­il­væga sigl­inga­leið að ræða auk verð­mætra fiski­miða sem ríkin vilja deila með sér. Talið er að flutn­inga­skip flytji varn­ing að verð­mæti um það bil 5 biljón Banda­ríkja­dala á hverju ári um haf­svæðið.

Banda­ríkin hafa ítrekað ögrað Kín­verjum í Suður-Kínahafi með því að sigla her­skipum og fljúga her­þotum inn fyrir og nærri lög­sög­unni sem Kín­verjar skil­greina sem sína.

Bretar bæt­ast nú í lið með Banda­ríkj­unum og þreifa fyrir sér hversu mikil þol­in­mæði Kínverja er fyrir auknum umsvifum ann­ara herja í Suður-Kínahafi. Johnson utan­rík­is­ráð­herra segir fyrsta verk­efni nýrra flug­móð­ur­skipa verða að sigla rak­leiðis til Asíu.

„Eitt af því fyrsta sem við ætlum að gera með þessi risa­flug­móð­ur­skip sem við höfum nýlokið smíði á, er að senda þau í Suður-Kínahaf til að und­ir­strika sigl­inga­frelsi þar,“ sagði Johnson í opin­berri heim­sókn í Sydney í morgun. „Það verður til þess að sanna rétt­mæti reglna í alþjóða­sam­fé­lag­inu.“

„Sigl­inga­frelsi um þetta haf­svæði er algjör­lega lífs­nauð­syn­legt fyrir heims­verslun.“

Skipin sem Bretar senda eru þau stærstu sem smíðuð hafa verið fyrir breska her­inn. HMS Queen Elizabeth er 280 metra langt og vegur 65.000 tonn. Verið er að prófa skipið um þessar mundir undan ströndum Skotlands og verður það tekið form­lega í notkun í lok árs.

Kínverjar byggja á 600 ára gömlum heimildum

Kín­verjar hafa byggt kröfu sína um yfir­ráð yfir haf­svæð­inu á eld gömlum sigl­inga­bókum. Svæðið sem Kína telur sitt eigið markast af hinni svoköll­uðu níu strika línu (e. nine dash line).

Þessi lína er, eins og les­endur hafa kannski getið sér til, teiknuð með níu strikum utan um smá­eyjur í Suður-Kínahafi, og byggir hún á rétt­indum sem mörkuð voru í 600 ára gömlum sigl­inga­bókum.

Suður-Kínahaf og níu strika línan

Í and­stöðu við nágranna­ríki sín hefur Kína kraf­ist yfir­ráða yfir eyj­unum í hinu alþjóð­lega skil­greinda hafi. Þar hafa Kín­verjar einnig byggt upp eyjur með land­fyll­ingum á skerjum og rifum.

Gerð­ar­dómur í Haag komst að þeirri nið­ur­stöðu í fyrra að Kín­verjar hefðu engin laga­leg rétt­indi til þess vísa í 600 ára gamlar heim­ildir fyrir yfir­ráðum á þessu svæði. Kín­verjar urðu æfir og höfn­uðu ákvörðun dóms­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár