Lífeyrissjóðir hækka flestir vexti á íbúðalánum líkt og bankarnir höfðu þegar gert

Allir stóru bank­arnir þrír hækk­uðu vexti á íbúða­lánum í kjöl­far þess að Seðla­banki Íslands hækk­aði stýri­vexti um 0,75 pró­sentu­stig í síð­asta mán­uði. Nokkrir líf­eyr­is­sjóðir, sem eru stór­tækir á íbúða­lána­mark­aði, hafa fylgt í kjöl­farið.

Húsnæðislán hafa hækkað umtalsverð í verði á síðustu vikum.
Hús­næð­is­lán hafa hækkað umtals­verð í verði á síð­ustu vikum. Mynd: Pexels

Stjórn líf­eyr­is­sjóðs­ins Gildi, þriðja stærsti líf­eyr­is­sjóður lands­ins, ákvað á fundi sínum í síð­ustu viku að hækka breyti­lega óverð­tryggða vexti á íbúða­lánum frá og með 5. apríl næst­kom­andi um 0,45 pró­sentu­stig. Eftir það verða vextir á óverð­tryggðum grunn­lánum hjá Gildi 4,5 pró­sent og við­bót­ar­lánum 5,25 pró­sent.

Sjóð­ur­inn til­kynnti á sama tíma um lækkun á verð­tryggðum vöxtum. Frá deg­inum í dag eru þeir 1,6 pró­sent á grunn­lán og 2,35 pró­sent á við­bót­ar­lán. Í ljósi þess að verð­bólga er sem stendur 6,2 pró­sent eru raun­vextir á verð­tryggðum lánum þó mun hærri en á óverð­tryggðum lánum, en verð­bætur leggj­ast ofan á höf­uð­stól verð­tryggðra lána.

Þar með hafa tveir af stærstu líf­eyr­is­sjóðum lands­ins hækkað íbúða­lána­vexti sína eftir að Seðla­banki Íslands ákvað að hækka stýri­vexti um 0,75 pró­sentu­stig í síð­asta mán­uði upp í 2,75 pró­sent. Líf­eyr­is­sjóður starfs­manna rík­is­ins (LSR) gerði það 17. febr­úar síð­ast­lið­inn þegar fastir vextir óverð­tryggðra sjóðs­fé­laga­lána voru hækk­aðir um 0,4 pró­sentu­stig. Sá munur er þó á að LSR, sem er stærsti líf­eyr­is­sjóður lands­ins, býður ekki upp á breyti­lega vexti á óverð­tryggðum lánum heldur ein­ungis fasta til þriggja ára.

Líf­eyr­is­sjóður verzlunarmanna er því sá eini af þremur stærstu líf­eyr­is­sjóðum lands­ins sem, enn sem komið er, hefur ekki breytt sínum vöxtum eftir að ákvörðun Seðla­bank­ans var kunn­gjörð. Saman eiga þessir þrír líf­eyr­is­sjóðir yfir helm­ing allra hreinna eigna íslenska líf­eyr­is­sjóða­kerf­is­ins.

[adspot]Nokkrir minni sjóðir hafa líka þegar hækkað óverð­tryggða vexti. Þannig hækk­aði Birta líf­eyr­is­sjóður breyti­lega óverð­tryggða vexti úr 4,1 í 4,85 pró­sent frá og með 1. mars síð­ast­liðnum og Brú líf­eyr­is­sjóður hækk­aði óverð­tryggða breyti­lega vexti á grunn­lánum í 4,5 pró­sent og á við­bót­ar­lánum í 5,5 pró­sent frá sama tíma.

Áður hafði Söfn­un­ar­sjóður líf­eyr­is­rétt­inda hækkað vexti óverð­tryggðra lána í 5,19 pró­sent frá 16. febr­úar, sem var hækkun um 0,4 pró­sentu­stig.

Allir stóru bankarnir búnir að hækka

Bank­arnir hafa líka allir hækkað vexti breyti­legra óverð­tryggðra íbúða­lána frá því að greint var frá stýri­vaxta­hækk­un­inni. Lands­bank­inn reið á vaðið og hækk­aði þá um 0,5 pró­sentu­stig upp í 4,7 pró­sent.

Íslands­banki fylgdi í kjöl­farið og hækk­aði vexti á breyti­legum óverð­tyggðum grunn­lánum um 0,5 pró­sentu­stig upp í 4,65 pró­sent og Arion banki fylgdi í sömu fót­spor skömmu síðar og hækk­aði sína grunn­vexti upp í 4,79 pró­sent.

Bank­arnir þrír hafa nýtt sér síð­ustu tvö ár til að stór­auka hlut­deild sína á íbúða­lána­mark­aði. Hlut­deild banka í úti­stand­andi íbúða­lánum er nú um 70 pró­­­sent en var 55 pró­­­sent í byrjun árs 2020.

Þessi þróun, mik­ill vöxtur á útlána­safni, spil­aði stóra rullu í því að þeir högn­uð­ust sam­tals um 81,2 millj­arða króna í fyrra, sem var 170 pró­sent meiri hagn­aður en þeir skil­uðu árið 2020.

Vaxta­munur bank­anna þriggja var á bil­inu 2,3-2,8 pró­­sent á síð­asta ári, sem er mjög svipað og hann var á árinu 2020, þegar hann var 2,7 pró­­sent að með­­al­tali. Mestur var hann hjá Arion banka en minnstur hjá Lands­bank­an­um. Til sam­an­­burðar þá var vaxta­munur nor­ræna banka sem eru svip­aðir að stærð og þeir íslensku 1,68 pró­­sent á árinu 2020. Hjá stórum nor­rænum bönkum er hann undir einu pró­­senti, sam­­kvæmt því sem fram kemur í síð­asta birta árs­­riti Sam­­taka fjár­­­mála­­fyr­ir­tækja.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár