Meirihluti bæjarstjórnar Ísafjarðarbæjar hefur ákveðið að ráða Birgi Gunnarsson í starf bæjarstjóra Ísafjarðarbæjar. BB.is greinir frá.
Fram kom í fréttum í lok janúar að Guðmundur Gunnarsson hefði látið af störfum sem bæjarstjóri og að ástæða starfsloka væri ólík sýn á verkefni á vettvangi sveitarfélagsins.
Birgir mun hefja störf 1. mars næstkomandi en ráðningin er með fyrirvara um samþykki bæjastjórnar sem kemur næst saman þann 20. febrúar, samkvæmt BB.is.
[links]Birgir er fæddur árið 1963 og er uppalinn á Siglufirði og lauk þaðan grunnskólanámi. Hann er stúdent frá Fjölbrautaskóla NV á Sauðárkróki og rekstrarfræðingur frá Háskólanum á Bifröst. Því til viðbótar lauk hann námi í rekstri og stjórnun frá háskólanum í Gautaborg. Birgir á þrjú börn og er í sambúð með Astrid Boysen sem einnig á þrjú börn.
Birgir var forstjóri Reykjalundar endurhæfingarmiðstöð í Mosfellsbæ þar til í lok síðastliðins árs. Áður var hann forstjóri á Heilbrigðisstofnuninni á Sauðárkróki frá 1991 til 2007. Hann hefur gegnt ýmsum trúnaðarstörfum, til að mynda hefur hann setið í stjórn Norræna heilbrigðisháskólans í Gautaborg, verið formaður Landssambands heilbrigðisstofnana og Félags forstöðumanna heilbrigðisstofnana.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.
















































Athugasemdir