Guðmundur hættur sem bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar

Bæj­ar­stjóri Ísa­fjarð­ar­bæjar hefur látið af störfum. Ástæðan er ólík sýn hans og meiri­hluta bæj­ar­stjórnar á verk­efni á vett­vangi sveit­ar­stjórn­ar­stigs­ins.

Meiri­hluti bæj­ar­stjórnar Ísa­fjarð­ar­bæjar og Guð­mundur Gunn­ars­son bæj­ar­stjóri hafa kom­ist að sam­komu­lagi um starfs­lok Guð­mundar. Hann lætur af störfum nú þegar.

Í til­kynn­ingu segir að ástæða starfs­loka sé ólík sýn á verk­efni á vett­vangi sveit­ar­fé­lags­ins. „Telja aðilar það sveit­ar­fé­lag­inu fyrir bestu að leiðir skilji. Það mun skýr­ast á allra næstu dögum hvernig ráðn­ingu á næsta bæj­ar­stjóra verður hagað.“ Guð­mundur segir í sam­tali við Kjarnann að starfs­lokin hafi átt sér stuttan aðdrag­anda. Hann vill þó ekki tjá sig frekar um málið en það sem fram kemur í til­kynn­ing­unni.

Þangað til ráðið verður í starfið mun bæj­ar­rit­ari, sem er stað­geng­ill bæj­ar­stjóra, gegna því. Í til­kynn­ing­unni óskar meiri­hlut­inn Guðmundi vel­farn­aðar og þakkar honum fyrir sam­starfið. „Guð­mundur vill koma á fram­færi ein­lægum þökkum til íbúa Ísa­fjarð­ar­bæjar fyrir frá­bær­ara við­tökur og ánægju­legt sam­starf. Hann segir það heiður að hafa fengið tæki­færi til að vinna að mik­il­vægum hags­muna­málum Vest­firð­inga með kraft­miklu starfs­fólki sveit­ar­fé­lags­ins. Það eru spenn­andi og krefj­andi verk­efni framundan í Ísa­fjarð­arbæ og rík ástæða til að horfa björtum augum til fram­tíðar.“

Guð­mundur var ráð­inn í starf bæj­ar­stjóra í ágúst 2018 af meiri­hluta Sjálf­stæð­is­flokks og Fram­sókn­ar­flokks, sem mynd­aður var þar eftir sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ing­arnar fyrr á því ári. Hann er með meist­ara­próf í alþjóða­við­skiptum frá Háskól­anum í Reykja­vík og B.A. próf í fjöl­miðla­fræði frá Háskól­anum á Akur­eyri. Áður en Guð­mundur tók við starfi bæj­ar­stjóra hafði hann starfað þrjú ár sem fram­kvæmda­stjóri AFS á Íslandi en áður stýrði hann alþjóða­sviði 66° NORÐUR og var einnig frétta- og dag­skrár­gerð­ar­maður RÚV um nokk­urra ára skeið.

Starfs­lok Guð­mundar hafa greini­lega ekki átt sér langan aðdrag­anda. Hann vakti umtals­verða athygli á síð­ustu vikum með fram­göngu sinni eftir að snjó­flóð féllu innan sveit­ar­fé­lags­ins. Á föstu­dag var greint frá því að Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra, Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra og Sig­urður Ingi Jóhanns­son sam­göngu- og sveit­ar­stjórn­ar­ráð­herra hefðu ákveðið að skipa starfs­hóp til að móta til­lögur um aðgerðir til að treysta atvinnu­líf og búsetu á Flat­eyri við Önund­ar­fjörð í kjöl­far snjó­flóðs­ins þann 14. jan­úar síð­ast­lið­inn.

Verk­efni starfs­hóps­ins á að vera að kanna leiðir til að byggja upp traust íbúa Flat­eyrar á sam­fé­lags­legum innviðum og gera til­lögur um aðgerðir sem treyst geta stoðir byggð­ar­inn­ar.

Á meðal þeirra sem skip­aðir voru í þann starfs­hóp var Guð­mundur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár