Húsnæðiseigendur miklu líklegri til að geta sparað en leigjendur

Þeim leigj­endum sem geta lagt fyrir sparifé fækk­aði á milli áranna 2017 og 2018 á meðan að hús­næð­is­eig­endum sem leggja fyrir hélt áfram að fjölga. Bilið milli hús­næð­is­eig­enda og leigj­enda sem geta sparað hefur breikkað umtals­vert á und­an­förnum árum.

Gríð­ar­legur munur er á getu þeirra sem eiga eigið hús­næði og þeirra sem leigja hús­næði til að safna sparifé. Alls segj­ast 63 pró­sent þeirra sem eiga eigin hús­næði að þeir geti lagt svo­lítið eða tals­vert til hliðar en 39 pró­sent leigj­enda segj­ast vera í þeirri aðstöðu. Athygli vekur að þeim leigj­endum sem geta lagt fyrir fækk­aði hlut­falls­lega á milli áranna 2017 og 2018, en í fyrra sögð­ust 43 pró­sent þeirra geta lagt svo­lítið eða tals­vert fyrir. Þetta kemur fram í upp­lýs­ingum frá Gallup vegna nýlegrar könn­unar fyr­ir­tæk­is­ins á fjár­hags­stöðu heim­ila.

[links]Geta lands­manna til að leggja fyrir dróst saman við hrunið og þegar verst lét, árið 2011, sögð­ust ein­ungis 34 pró­sent hús­næð­is­eig­enda geta safnað sér sparifé og 26 pró­sent leigj­enda. Síðan þá hefur geta hús­næð­is­eig­enda til að leggja fyrir auk­ist mjög og þótt fleiri leigj­endur geti nú lagt fyrir en fyrir sjö árum þá hefur bilið milli hús­næð­is­eig­enda og leigj­enda, þegar geta þeirra til að safna sparifé er mæld, auk­ist umtals­vert á síð­ustu árum.

Tölurnar sýna að hlut­fall hús­næð­is­eig­enda sem geta lagt fyrir er nú nán­ast það sama og það var árið 2007, þegar það var 63 pró­sent. Þá var hlut­fall leigj­enda sem gátu lagt fyrir hins vegar mun hærra en það er í dag, eða 47 pró­sent. Því hefur geta þeirra hópa sem leigja sér hús­næði til að leggja fyrir dreg­ist saman á rúmum ára­tug á meðan að geta hús­næð­is­eig­enda til að safna sér sparifé er orðin sú sama.

Leiguverð heldur áfram að hækka

Bæði leigu verð og íbúða­verð hefur hækkað gríð­ar­lega mikið á Íslandi á und­an­förnum árum. Frá því í byrjun jan­úar 2011 hefur íbúða­verð hækkað um 99 pró­sent og leigu­verð um 91 pró­sent. Síðasta hálfa árið hefur þó árs­hækkun á leigu­verði verið ofar en árs­hækkun íbúða­verðs, sem hefur lækkað lít­il­lega upp á síðkastið.

[adspot]Alls eru um 50 þús­und manns á leigu­mark­aði á Íslandi sam­kvæmt tölum frá Íbúða­lána­sjóði, eða 18 pró­sent þjóð­ar­innar. Það hlut­fall var 12 pró­sent fyrir ára­tug síðan og fyrir liggur að hlut­fall þeirra sem leigja jókst umtals­vert eftir banka­hrunið 2008. Á sama tíma hefur Íslend­ingum auð­vitað fjölgað umtals­vert, sér­stak­lega vegna mik­illar fjölg­unar erlendra rík­is­borg­ara sem hingað flytja, og út frá mann­fjölda­tölum Hagstofu Íslands má áætla að þeim sem eru á leigu­mark­aði hafi fjölgað um rúm­lega tólf þús­und á einum ára­tug.

Grein­ingar Íbúða­lána­sjóðs sýna að það er mun frekar ungt fólk og tekju­lágir sem eru á leigu­mark­aði. Þannig eru t.d. 26-27 pró­sent þeirra ein­stak­linga sem eru með undir 400 þús­und krónum í mán­að­ar­tekjur á leigu­mark­aði á meðal an 87 pró­sent þeirra sem eru með yfir 800 þús­und krónur á mán­uði búa í eigin hús­næði.

Tölur Íbúða­lána­sjóðs sýna að 92 pró­sent lands­manna telji að það sé óhag­stætt að leigja hús­næði og 80 pró­sent telja að fram­boð af íbúð­ar­hús­næði sem sé til leigu á Íslandi sem henti sér og sinni fjöl­skyldu sé lítið.

Helmingur ráðstöfunartekna í húsnæðiskostnað

Staða leigj­enda virð­ist að mörgu leyti vera verri hér­lendis en á hinum Norð­ur­lönd­un­um. Í lok árs 2016 var leiga til að mynda 50 pró­sent ráð­stöf­un­ar­tekna hjá lág­tekju­hópum á Íslandi. Hvergi á hinum Norð­ur­lönd­unum greiða lág­tekju­hópar jafn hátt hlut­fall af þeim pen­ingum sem standa eftir þegar skattar og gjöld hafa verið greidd­ir. Nor­egur er þó ekki langt und­an. Þessi breyt­ing er til­tölu­lega nýleg. Á árunum 2008 og 2009 greiddu íslenskir leigj­endur með lágar tekjur 39 pró­sent af ráð­stöf­un­ar­tekjum sínum í leigu sem þá var lægsta hlut­fallið á Norð­ur­lönd­un­um. Sam­hliða fram­boðs­vanda og inn­komu hagn­að­ar­drif­inna leigu­fé­laga á mark­að­inn hefur þetta hlut­fall hækk­að.

[adspot]Ný skil­greind við­mið sem Íbúða­lána­sjóður ætlar að taka upp eiga að taka til­lit til við­miða Eurostat, hag­stofu Evr­ópu­sam­bands­ins, um að hús­næð­is­kostn­aður telj­ist veru­lega íþyngj­andi ef hann er yfir 40 pró­sent af ráð­stöf­un­ar­tekj­um, sem og ákvæða íslenskra laga um almennar íbúðir þar sem við­miðið til að hljóta stofn­fram­lög er að hús­næð­is­kostn­aður leigj­enda íbúð­anna nemi að jafn­aði ekki meira en 25 pró­sent af ráð­stöf­un­ar­tekjum þeirra.

Meiri menntun og hærri tekjur skipta máli

Það kemur kannski ekki mikið á óvart en þeir sem eru með háskóla­próf eru lík­legri en þeir lands­menn sem hafa lokið lægri próf­gráðum til að geta safnað sér sparifé. Alls segj­ast 58 pró­sent háskóla­mennt­aðra geta lagt fyrir, tæp­lega 50 pró­sent þeirra sem eru með fram­halds­skóla­próf geta það og tæp­lega 46 pró­sent þeirra sem hafa ein­ungis lokið grunn­skóla­prófi.

Geta allra mennt­un­ar­hópa til að safna sparifé var meiri fyrir hrun en hún er nú. Þannig gátu 72 til 68 pró­sent háskóla­mennt­aðra lagt fyrir á árunum 2005 til 2007, 56 til 60 pró­sent fram­halds­skóla­mennt­aðra og 51 til 59 pró­sent þeirra sem eru með grunn­skóla­próf sem æðstu menntun. Á árunum eftir hrun dróst geta allra hópanna til að leggja fyrir veru­lega saman.

Þá liggur fyrir að þeir hópar sem eru með hærri fjöl­skyldu­tekjur geta lagt meira fyrir. Alls segj­ast 80 pró­sent þeirra sem til­heyra tekju­hæsta fjórð­ungi lands­manna að þeir geti lagt fyrir, 68 pró­sent þeirra sem til­heyra næst tekju­hæsta fjórð­ungnum geta það og 63 pró­sent þeirra sem til­heyra þeim næst lægsta. Á meðal 25 pró­sent tekju­lægstu lands­manna segj­ast 38 pró­sent geta lagt eitt­hvað fyrir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár