75 prósent kvenna í meðferð verið beittar kynferðislegu ofbeldi

Nið­ur­stöður nýrrar rann­sóknar um reynslu og áfalla­sögu kvenna í fíkni­með­ferðum eru slá­andi. Mikill meiri­hluti þátt­tak­enda hefur verið beittur kyn­ferð­is­legu ofbeldi á lífs­leið­inni og nær 35 pró­sent verið kyn­ferð­is­lega áreittar í með­ferð.

Ný rann­sókn sem fjallar um reynslu kvenna af fíkni­með­ferð sýnir meðal ann­ars að 75 pró­sent kvenna höfðu orðið fyrir kyn­ferð­is­legu ofbeldi á full­orð­ins­aldri og 51 pró­sent höfðu orðið fyrir kyn­ferð­is­legu ofbeldi í æsku. 

Nið­ur­stöð­urnar voru kynntar á ráð­stefnu SÁÁ 2. októ­ber síð­ast­lið­inn. Markmið rann­sókn­ar­innar er að fá inn­sýn í reynslu kvenna af með­ferð­ar­úr­ræðum og upp­lýs­ingar um líðan þeirra og öryggi í með­ferð. Enn fremur að skoða sögu kvenn­anna með sér­stöku til­liti til erf­iðrar upp­lif­unar í æsku og hvort að þær eigi sögu um ofbeldi í nánum sam­böndum.

35% áreittar í meðferð

Það var RIKK – Rann­sókna­stofnun í jafn­rétt­is­fræðum við Háskóla Íslands, sem hafði umsjón með fram­kvæmd rann­sókn­ar­innar sem fram­kvæmd var í sam­starfi við Rótina – félag um mál­efni kvenna með áfengis- og fíkni­vanda og hlaut hún styrk frá Jafn­rétt­is­sjóði Íslands. Spurn­inga­listi var sendur á 305 félaga í Rótinni og bár­ust 110 svör og höfðu þar af 96 konur átt við fíkni­vanda að stríða. Alls hafa 88,7 pró­sent þátt­tak­enda leitað sér aðstoðar vegna fíkni­vanda. 

Konurnar voru spurðar út í reynslu og við­horf til með­ferð­ar­innar. Alls töldu 66,3 pró­sent að með­ferðin hefði ekki verið nægj­an­lega ein­stak­ling­smiðuð og 75,9 pró­sent töldu að vinna með áföll og annað sem hefur áhrif á and­lega heilsu hafi verið ófull­nægj­andi. Rúmlega 60 pró­sent töldu með­ferð­ina hafa verið árang­urs­ríka en rúm 15 pró­sent töldu hana ekki hafa borið árangur. Þá fannst um 43 pró­sent þátt­tak­enda starfs­fólk með­ferð­ar­innar sýna sér skiln­ings­leysi.

Þátt­tak­endur voru einnig spurðir hvort þeir hefðu orðið fyrir áreitni og ofbeldi í með­ferð eða orðið vitni að slíku. Alls sögð­ust 23 pró­sent hafa orðið vitni að ein­elti í með­ferð­inni, 21 pró­sent að óhóf­legri vald­beit­ingu starfs­fólks, 45 pró­sent urðu vitni að ófag­legum eða óvið­eig­andi athuga­semdum starfs­fólks í með­ferð­inni og 35 pró­sent ofbeldi gegn öðrum þátt­tak­anda í með­ferð­inni, af hendi ann­arra þátt­tak­enda, og 15 pró­sent að hótun.

Þegar spurt var um ofbeldi og áreitni sem kon­urnar höfðu sjálfar orðið fyrir sögð­ust 34,6 pró­sent hafa orðið fyrir kyn­ferð­is­legri áreitni í með­ferð, 12 pró­sent fyrir kyn­ferð­is­legu ofbeldi, tæp 14 pró­sent fyrir ein­elti og 28 pró­sent fyrir and­legu ofbeldi. Einnig höfðu sex pró­sent orðið fyrir lík­am­legu ofbeldi og tæp fjögur pró­sent fyrir fjár­hags­legu ofbeldi.

Mikil áfallasaga

Einnig var spurt um ofbeldi sem kon­urnar höfðu orðið fyrir á full­orð­ins­árum, ótengt með­ferð, og höfðu rúm 80 pró­sent þátt­tak­enda orðið fyrir kyn­ferð­is­legri áreitni, tæp 75 pró­sent fyrir kyn­ferð­is­legu ofbeldi, 88 pró­sent fyrir and­legu ofbeldi, tæp 56 pró­sent fyrir lík­am­legu ofbeldi og rúm 46 pró­sent fyrir fjár­hags­legu ofbeldi og sama hlut­fall hafði orðið fyrir ein­elti.

Þá var spurt út í mót­læti og áföll í æsku og sam­kvæmt nið­ur­stöð­unum höfðu 55 pró­sent þátt­tak­enda upp­lifað and­legt ofbeldi á heim­ili sínu í æsku, 34 pró­sent lík­am­legt ofbeldi, 51 pró­sent kyn­ferð­is­legt ofbeldi, 70 pró­sent sögðu að skort hefði upp á ást og umhyggju í upp­vext­inum og 37 pró­sent sögð­ust hafa verið van­rækt. Þá voru 35 pró­sent svar­enda skiln­að­ar­börn, og 20 pró­sent höfðu upp­lifað lík­am­legt ofbeldi gegn móður. Í 65 pró­sent til­fella var ein­hver á heim­il­inu með áfengis- eða fíkni­vanda og í 60 pró­sent til­fella var ein­hver þung­lyndur, and­lega veikur eða aðili sem reyndi að fyr­ir­fara sér á heim­il­inu. Í rétt tæp­lega 14 pró­sent til­fella hafi heim­il­is­með­limur farið í fang­elsi.

Taldi umfjöllun fela í sér „dylgjur“

Stundin fjall­aði um mæðgurnar Frigg Ragn­ars­dóttur og Kolbrá Braga­dóttur í júní síð­ast­liðnum, en þær höfðu báðar ann­að­hvort upp­lifað eða orðið vitni að kyn­ferð­is­legri áreitni í með­ferð hjá SÁÁ. Frigg, 22 ára, hrökl­að­ist út af Vogi í kjöl­far áreitni án þess að ljúka með­ferð en móðir hennar, Kolbrá, fylgdi vin­konu sinni í gegnum þá reynslu að vera fyr­ir­vara­laust rekin úr með­ferð eftir að hafa kvartað undan áreitni. 

 Í kjöl­far umfjöll­un­ar­innar stigu fleiri konur fram og höfðu sams konar sögur að segja. Anna Bentína Herman­sen, ráð­gjafi hjá Stíga­mótum, var á meðal þeirra sem gagn­rýndu skort á til­liti til kynja­sjón­ar­miða í til­högun með­ferða SÁÁ. Sjálf var hún til að mynda beðin um að ræða ekki nauðgun og fleiri áföll sem hún hafði orðið fyrir í með­ferð­inni, til þess að trufla ekki aðra. 

Arnþór Jónsson, for­maður SÁÁ, sendi frá sér yfir­lýs­ingu vegna umfjöll­un­ar­innar og var­aði við frétta­flutn­ingi af reynslu kvenna af með­ferðum stofn­un­ar­innar vegna þeirra áhrifa sem „slíkar dylgjur geta valdið“. 

Nokkrar tölur úr rannsókninni

Áreiti  og ofbeldi í æsku

51% kyn­ferð­is­legt ofbeldi.

55% höfðu upp­lifað and­legt ofbeldi á heim­ili sínu.

34% lík­am­legt ofbeldi.

70% skorti ást og umhyggju.

37% van­rækt.

Áreiti og ofbeldi á fullorðinsárum

80% höfðu orðið fyrir kyn­ferð­is­legri áreitni.

75% höfðu orðið fyrir kyn­ferð­is­legu ofbeldi.

88% and­legu ofbeldi.

56% lík­am­legu ofbeldi.

46% fjár­hags­legu ofbeldi.

46% ein­elti.

Áreiti og ofbeldi Í meðferð

34,6% höfðu orðið fyrir kyn­ferð­is­legri áreitni í með­ferð.

12% kyn­ferð­is­legu ofbeldi.

14% ein­elti.

28% and­legu ofbeldi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár