Bókunarsíðurnar að taka of mikið til sín

For­stjóri Bláa lóns­ins segir bók­un­ar­síður í ferða­þjón­ustu taka til sín mikið fjár­magn sem ann­ars færi í rekstur fyr­ir­tækj­anna.

„Í mínum huga er ljóst að íslensk fyr­ir­tæki í ferða­þjón­ustu geta ekki lifað af til lengri tíma ef þau þurfa að greiða 20 til 30 pró­sent af sinni veltu til erlendra bók­un­ar­síðna á borð við Booking.com eða Guide to Iceland, sem er íslensk bók­un­ar­síða.“

Þetta segir Grímur Sæmund­sen, for­stjóri Bláa lóns­ins og fyrr­ver­andi for­maður Samtaka ferða­þjón­ust­unnar, í sam­tali við Morg­un­blaðið í dag, en hann fjall­aði um áhrif bók­un­ar­síða á ferða­þjón­ust­una í erindi á fundi við­skipta­klúbbs Morg­un­blaðs­ins, sem ber heitið Kompaní.

Á fund­inum ræddi hann stöðu ferða­þjón­ust­unnar, upp­bygg­ingu Bláa lóns­ins frá því að fyr­ir­tækið var stofnað árið 1992 og horf­urnar í íslensku hag­kerfi, nú þegar hægt hefur á fjölgun ferða­manna sem hingað leggja leið sína. „Þessar upp­hæðir, sem bók­un­ar­síð­urnar eru að taka af starf­sem­inni hér á landi eru svim­andi háar og koma í til­felli erlendu bók­un­ar­síðn­anna aldrei inn í hag­kerfið. Það liggur í augum uppi að það er til lengri tíma litið ekki hægt að halda starf­sem­inni gang­andi ef 20 til 30 pró­sent af tekj­unum renna beint til þriðja aðila með þessum hætti.“

Grímur sagði jafn­framt að með kaupum Trip Advisor á Bókun hafi fyr­ir­tækið í raun keypt aðgang að við­skipta­gögnum um 700 íslensk ferða­þjón­ustu­fyr­ir­tæki. Það vekti upp áleitnar spurn­ingar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár