Rússar auka hernaðarumsvif sín í Sýrlandi

Rúss­neski her­inn er far­inn að senda ómönnuð könn­un­ar­loft­för yfir Sýrland. Þetta hefur frétta­stofa Reuters eftir tveimur banda­rískum emb­ætt­is­mönnum. Eru það fyrstu aðgerðir rúss­neska hers­ins í loft­rými Sýrlands síðan Rússar hófu að auka hern­að­ar­um­svif sín í land­inu.

Fyrir um það bil viku var greint frá því að lík­leg­ast væru Rússar að stækka flota­stöð sína í hafn­ar­borg­inni Latakíu við Mið­jarð­ar­hafið og að und­ir­búa flug­stöð. Þá sagði Jeff Davis, upp­lýs­inga­full­trúi varn­ar­mála­ráðu­neyt­is­ins í Pentagon, að Banda­ríkin hefðu fylgst með auknum flutn­ingum fólks og varn­ings til Latakíu.

Eft­ir­lits­flug Rússa virð­ist hafa verið gert út frá Latakíu þar sem sést hefur til rúss­neskra her­þota, þyrla og stórra her­skipa und­an­farna daga.

Emb­ætt­is­menn­irnir sem Reuters ræddi við gátu ekki stað­fest hversu marga dróna Rússar hefðu sent til eft­ir­lits og yfir­völd í Pentagon neit­uðu að tjá sig um málið. Frétta­skýrendur telja nokkra hættu á að þessi tvö öfl, Banda­ríkin og Rússland, verði fyrir hvort öðru. Eft­ir­lits­för eru nú á sveimi yfir Sýrlandi frá báðum löndum.

Á föstu­dag sam­þykktu varn­ar­mála­ráð­herrar stór­veldana tveggja að kanna leiðir til það koma í veg fyrir slys og um leið koma í veg fyrir óþarfa átök þeirra á milli. Þær sam­ræður hafa að öllum lík­indum hlotið meiri for­gang eftir að Rússar hófu að fljúga eft­ir­lits­flug.

Ríkin berj­ast gegn sam­eig­in­legum óvini í Sýrlandi en Íslamska ríkið er óvinur þeirra af mis­mun­andi ástæðum. Stjórn­völd í Kreml hafa lengi staðið á bak við stjórn Bashar al-Assad í Sýrlandi og taka þátt í bar­átt­unni til að efla styrk sýr­lenskra stjórn­valda. Það er hugs­an­legt að Rússar geri ekki grein­ar­mun á milli Íslamska rík­is­ins og ann­arra her­skárra sam­taka sem berj­ast gegn stjórn­ar­her Assads. Einhver þess­ara sam­taka njóta stuðn­ings Banda­ríkj­anna.

Rússland og Bandaríkin í Sýrlandi


Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár