Þyrftum að útskrifa tvöfalt fleiri heimilislækna

Síðustu ár hafa að með­al­tali átta heim­il­is­læknar útskrif­ast á Íslandi. Þeir þyrftu að vera tæp­lega tvö­falt fleiri. Stjórn­völd þurfa að grípa inn í til að ekki verði skortur á næstu árum. Skortur er í fleiri sér­greinum, til dæmis geð­lækn­is­fræðum.

Óttarr Proppé er heilbrigðisráðherra.
Óttarr Proppé er heil­brigð­is­ráð­herra. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Und­an­farin ár hafa um átta heim­il­is­læknar útskrif­ast á hverju ári hér á landi, en árleg þörf fyrir nýja heim­il­is­lækna er um það bil tvö­falt meiri, eða 15 læknar. Mjög lítil nýliðun hefur átt sér stað í stétt heim­il­is­lækna síð­ustu tíu til fimmtán ár, og mikið þarf að breyt­ast til að ekki verði skortur á heim­il­is­læknum.

Þetta er meðal þess sem kemur fram í skýrslu Rík­is­end­ur­skoð­unar um Heilsu­gæslu höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins.

Aðeins 25 heim­il­is­læknar á Íslandi eru á aldr­inum 35 til 45 ára, sam­an­borið við 64 heim­il­is­lækna á aldr­inum 61 til 70 ára. Þegar farið er í minni ald­urs­bil, til dæmis 35 til 40 ára, eru aðeins átta heim­il­is­læknar á Íslandi á þeim aldri. 30 heim­il­is­læknar eru á aldr­inum 66 til 70 ára.

Það er því ljóst að þeir heim­il­is­læknar sem fara á eft­ir­laun á næstu árum og ára­tug munu skilja eftir sig mjög stórt skarð. Það skarð verður ekki fyllt nema að útskrif­uðum heim­il­is­læknum fjölgi veru­lega á allra næstu árum. Í lok síð­asta árs, 2016, voru 24 læknar í sér­námi í heim­il­is­lækn­ingum.

Vantar 7 á ári en áætlun gerir ráð fyrir tveimur

Rík­is­end­ur­skoðun beinir því til stjórn­valda að leita þurfi allra leiða til að fjölga útskrif­uðum heim­il­is­læknum. Vandinn er ekki nýr af nál­inni því í annarri skýrslu um heild­ar­skipu­lag sér­fræði­þjón­ustu lækna árið 2011 kom fram að skortur væri á læknum, meðal ann­ars í heim­il­is­lækn­ingum. Vit­neskja um vand­ann hefur því legið fyrir lengi en ekki nógu mikið verið gert til að bregð­ast við.

„Því hvetur stofn­unin vel­ferð­ar­ráðu­neyti og Heilsu­gæslu höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins til að kanna sér­stak­lega til hvaða að- gerða megi grípa til að fjölga heim­il­is­læknum. Þá hvetur stofn­unin ráðu­neytið til að tryggja að það fjár­magn sem Heilsu­gæsla höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins fær vegna kennslu dugi fyrir kostn­aði sem henni teng­ist. Fram kemur í fjár­laga­frum­varpi fyrir árið 2017 að til standi að fjölga náms­stöðum í heim­il­is­lækn­ingum um tvær á því ári. Rík­is­end­ur­skoðun telur flest benda til þess að gera þurfi betur í þeim efnum og hvetur því vel­ferð­ar­ráðu­neyti til að meta þörf á end­ur­nýjun í stétt heim­il­is­lækna fram til árs­ins 2030.“

Einnig þyrfti að fjölga nemum í heilsu­gæslu­hjúkrun að mati Rík­is­end­ur­skoð­unar.

Heim­il­is­læknar eru hlut­falls­lega fæstir á Íslandi af Norð­ur­lönd­unum, en ein­stak­lingum á hvern heim­il­is­lækni hefur fjölgað hér á landi á und­an­förnum árum á meðan þeim hefur fækkað í Danmörku, Noregi og Svíþjóð.

Líka vöntun á geðlæknum

Það er skortur á nýliðun í fleiri sér­greinum lækn­is­fræði. Frétta­blaðið greindi frá því í gær að aðeins fjórir læknar stundi nú sér­nám í geð­lækn­ingum, en venju­lega séu það ríf­lega þrefalt fleiri. Alls er vitað um í kringum tíu Íslend­inga sem sækja sér nú áfram­hald­andi menntun í geð­lækn­ingum.

Bæði heim­il­is­lækn­ingar og geð­lækn­ingar eru sér­nám sem hægt er að klára alfarið á Íslandi. Þó eru ein­hverjir sem sækja sér mennt­un­ina erlendis, og í Frétta­blað­inu kemur fram í máli Halldóru Jóns­dóttur, yfir­læknis á bráða­geð­deild Land­spít­al­ans, að verið sé að hafa sam­band við lækna­nema erlendis og útskrif­aða geð­lækna erlendis og freista þess að fá þá heim og til starfa á Land­spít­al­anum eða á einka­stofum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár